11.11.1935
Neðri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í C-deild Alþingistíðinda. (4175)

161. mál, sláturfjárafurðir

Flm. (Sigurður Kristjánsson) [óyfirl.]:

Eins og ég tók fram í upphafi máls míns, þá sé ég ekki ástæðu til að fara út í einstök atriði frv. þessa nú, en mun hinsvegar svara hv. 2. þm. N.-M. nokkrum orðum, því að hann virtist svo ánægður með sjálfan sig, en það yrðu sár vonbrigði fyrir hann, ef enginn virti hann svars.

Hann sagði, að hann hefði ekki hitt nema eina 5 bændur á öllu landinu, sem ekki væru ánægðir með kjötsölulögin. Þetta er slík fjarstæða, að það er helzt engin ástæða til að mótmæla henni, því að ég veit það ofurvel, að hv. þm. er svo kunnugur bændum landsins, að hann hefir hitt mörgum sinnum fleiri bændur, sem telja kjötsölulögin einskis nýt og aðeins til hins verra.

Hann vildi halda því fram, að bændur hefðu fengið stórum hærra verð fyrir kjöt sitt vegna kjötsölulaganna. Það er vitanlega ekki lengi gert að þylja upp úr sér heil býsn af órökstuddum tölum, eins og hv. þm. gerði nú, og segja svo, að samkv. þeim sé þetta svona og svona. Það, sem hér er um að ræða, er það, hvort þessi umræddu lög hafi orðið þess valdandi, að kjötverðið hafi hækkað frá því, sem það annars hefði orðið, og svo hitt, hvort þær breyt., sem ég vil láta gera á lögunum, myndu hafa það í för með sér, að kjötið lækki frá því, sem það er nú. Það, sem ég held eindregið fram, er það, að kjötsölulögin hafi ekki orðið til þess að hækka kjötverðið frá því, sem það annars hefði orðið.

Eins og kunnugt er, þá hefir Sláturfélag Suðurlands og kaupfélag Borgfirðinga ráðið kjötverðinu hér sunnanlands og kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri, og yfirleitt á því verðlagssvæði. Allir þessir aðilar hafa hag af því að halda kjötverðinu sem hæstu, og myndu því eðlilega hafa sett það eins hátt og tækilegt hefði verið án þess að skaða markaðinn. Enda er það vitanlegt, að Sláturfélag Suðurlands hefir verið pínt af verðlagsnefnd til þess að borga kjötið hærra verði til meðlima sinna heldur en raunverulega var hægt að borga það, enda mun það svo, að orðið hafi að lækka verðið til bænda um 14 aura pr. kg. Þá er það og ennfremur vitanlegt, að bændur þeir, sem hv. 2. þm. N.-M. var að tala um fyrir austan og norðan, fengu bæði verðjöfnunargjaldið og ríkissjóðsstyrkinn til viðbótar við það verð, sem þeim var ákveðið í sláturtíðinni, svo það er margt, sem grípur hér inn í. Má því með sanni segja, að útreikningar hv. þm. hafi allir verið út í loftið.

Hann þykist vera ákaflega kunnugur, telur sig t. d. vita, hverjir skrifi mér, hverjir hafi tapað á kjötsölulögunum og hverjir eigi innieignir o. s. frv. o. s. frv. En um þetta er vitanlega mjög illt að vita, og vart nokkrum kleift. En hvað sem þessu líður, þá er það á allra vitorði, svo ekki verður um deilt, að þessi hv. þm. hefir gert sitt í kjötverðlagsnefndinni, að því er snertir framkvæmd kjötsölulaganna, bændum til tjóns og vandræða. Það er vitanlega ekki hægt að koma í veg fyrir það, að menn misnoti vald sitt, en það ráð er jafnan fyrir bendi að láta slíka menn leggja niður störf sín og skipa betri og hæfari menn í þeirra stað, og það er það, sem a. m. k. þarf að gera í þessu tilfelli. Það þarf tafarlaust að skipta um formann kjötverðlagsnefndar. - Ég vil í þessu sambandi geta þess, að það er ekki sama, hvernig kjötið er flokkað. Eins og kunnugt er, þá er mikil kjötsala til Siglufjarðar seinni part sumars. Áður var það svo, að bændurnir fóru sjálfir með kjöt sitt þangað og seldu það í 2 flokkum, en nú verður allt kjöt að flokkast í 6 flokka, og ræður þá af líkum, að lakasta kjötið verður ekki verðhátt. Þetta hefir að sjálfsögðu mikla þýðingu fyrir seljendurna, og ég fæ ekki annað séð en að það megi vera samkomulag á milli seljenda og neytenda, hvernig það kjöt er flokkað, sem selt er til neyzlu strax. Hitt er annað mál, þó að það kjöt sé strangt flokkað, sem ætlað er til útflutnings.

Af því að hv. þm. var að gorta af hinu háa verði, sem bændur hefðu fengið fyrir kjöt sitt í fyrra, þá ætla ég að lofa honum að heyra eina kjötinnleggsnótu, sem ég hefi hér í höndunum. Bóndinn lagði inn 12 kindur og fékk fyrir þær allar 138,41 kr. Kjötið var flokkað í 6 flokka. Fyrir hæsta flokkinn, nr. I, til útflutnings fryst, fékk hann 0,12 pr. kg. Fyrir II. flokk, sömuleiðis til útflutnings fryst, fékk hann 0,64. Það, sem salta þurfti af þessu kjöti, var flokkað í 3 flokka, b., c., d., og fékk bóndi 0,70 fyrir hvert kg. af b-flokki, 0,52 fyrir e, og 0,30 fyrir d. Fyrir það, sem svo lenti í 2. flokki til söltunar, fékk hann 0,20 pr. kg. Ég verð nú að segja það, að afskaplega hefir verðið verið lágt árið áður, ef í þessu verði hefir verið mikil hækkun frá því, sem það var þá. Á þetta verð var svo eftir uppbótin frá ríkinu og verðjöfnunargjaldið. - Hann var svo sem ekki á því, hv. þm., að viðurkenna það, að innanlandsmarkaðurinn væri yfirfylltur, og því til sönnunar sagði hann, að nú væri hér í Reykjavík 50 tonnum minna til af freðkjöti heldur en verið hefði á sama tíma í fyrra. Ég vil nú spyrja hv. þm.: Veit hann kannske ekki, að hingað til Rvíkur er flutt freðkjöt utan af landi allt árið um kring? Svo það sannar ekkert, hvað hér er til á hverjum tíma; kjötið er bara geymt úti á landi til þess að flytjast hingað þegar hentast þykir. Þetta er því blekking hjá honum, sem ekki þýðir fyrir hann að reyna að afsaka, frekar en alla framkvæmd kjötsölulaganna.

Að sumarslátrunin hafi aðeins byrjað lítið eitt seinna í sumar en venjulega, er eins og annað hjá þessum hv. þm. staðlausir stafir. Slátrun byrjaði hér venjulega um miðjan júlí og var komin í fullan gang í júlílok eða fyrst í ágúst, og venjulega seldust 1000 skrokkar á hverjum laugardegi. Þó leyfir hv. þm. sér að segja, að það hafi aðeins munað 1000 skrokkum í allt, sem minna hafi selzt í sumar en undanfarið. Slík framkoma sem þessi er að slást við staðreyndir.

Þá var hann að tala um það, að það væri firra hjá mér að ætla að miða verðjöfnunargjaldið við prósentur, og spurði, hvernig ég ætlaði að fara að því að reikna það út, eins og t. d. í því tilfelli, þar sem ekki væri farið að ákveða kjötverðið ennþá frá í fyrra. Mér kemur ekkert við, þó að ekki sé búið að reikna kjötverðið út ennþá hjá sumum kaupfélögum frá því í fyrra. Hjá kaupfélögunum er hvort sem er allt ein grautargerð; þar eru bændur t. d. látnir fá það fyrir kjöt, sem þeir í raun og veru fá fyrir gærur, o. s. frv.

Ég mun svo ekki hafa þessi orð mín öllu fleiri. Allt, sem hv. þm. hefir sagt um það, að bændur hafi fengið svo og svo mikið hærra verð fyrir kjöt sitt vegna kjötsölulaganna, er, eins og ég hefi sýnt, út í loftið. En ég sé enga ástæðu fyrir hann að setja sig á móti því, að þær umbætur séu gerðar á lögunum, sem frv. mitt fer fram á, þó aldrei nema hann hafi matarást á þeim, því að ég get glatt hann með því, að enda þótt mestu gallarnir væru sniðnir af lögunum, þá er ekki loku skotið fyrir, að pláss kunni að vera fyrir hann áfram í verðlagsnefndinni, enda þótt mér þyki nokkuð vel skammtað, að rétta að honum 5 þús. kr. bitling fyrir hin lélegu störf hans þar.