15.11.1935
Neðri deild: 74. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í C-deild Alþingistíðinda. (4189)

161. mál, sláturfjárafurðir

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Það hefir nú komið fram, sem vænta mátti, að hv. 2. þm. N.-M. hefir ekki getað raskað þeim staðreyndum, sem ég bar fram, þ. e. a. s. svo langt sem þær náðu, sem sé hvernig farið hefði með sumarslátrunina í Rvík síðasta haust, og hvernig nú væri ástatt um heildarkjötbirgðirnar í Rvík, og að sumarslátrunin í sumar hefði, vegna of mikils aðflutnings til Rvíkur haustið 1934 og fram eftir vetri, gengið svo mikið saman hjá Sláturfél. Suðurl., að hún hefði minnkað um meira en helming, og í staðinn fyrir það, sem hv. þm. hélt fram, að heildarkjötmagn Rvíkur væri nú minna en í fyrra, þá er það mun meira. Þessum staðreyndum hefir hann ekki hnekkt, og þannig orðið að viðurkenna, að skýrsla hans var í þessum atriðum röng. Nú hefir hv. þm. V.-Húnv. bent honum á, að í öðru atriði er skýrsla hans líka röng, og því hefir hann ekki heldur getað hnekkt. Og ef fleiri hefðu lagt sömu rækt og við við að gagnrýna skýrslur hans, þá má búast við, að víðar hefði komið fram ónákvæmni og röng málameðferð en ennþá er orðið. Ég sýndi einnig fram á það í gær, að hann hefði farið ónákvæmlega með í fleiri atriðum, og kem ég kannske nánar inn á það síðar.

Hv. 2. þm. N.-M. felldi nokkuð harðan dóm yfir Sláturfél. Suðurl. og kaupfél. Borgf. út af því, að þau gætu ekki staðizt samkeppnina við S. Í. S., vegna þess að hjá þeim félli meiri kostnaður á vöruna í meðferðinni hér í Rvík. Er engu líkara en hv. þm. álíti sig vera nokkurskonar refsivald yfir þessum félögum í þeirri aðstöðu, sem hann hefir sem form. kjötverðlagsn. Gekk hv. þm. svo langt, að hann sagði blátt áfram, að það væri sín skoðun, að reka ætti þessi félög og alla, sem seldu á Rvíkurmarkaðinum, úr þeirri aðstöðu að fá að njóta markaðarins fyrir sínar afurðir, heldur yrðu þau að selja á erlendan markað eitthvað af sínu kjöti, en þeim mun meira ætti að flytja hingað til Rvíkur af kjöti úr fjarlægari verðlagssvæðum.

Það er gott að fá yfirlýsingu um afstöðu hv. þm. sem form. kjötverðlagsn. í þessa átt, því hún gefur vitanlega fullkomið tilefni til þess, að þetta mál sé tekið til alvarlegrar athugunar, en það hefir hingað til ekki verið beinlínis gert.

Þá vil ég fara nokkuð inn á það, hver sá grundvöllur var, sem hv. þm. lagði fyrir þessum verðmismun. Hv. þm. sagði, að S. Í. S. hefði selt sauðakjöt og af veturgömlu fé fyrir kaupfélagið á Kópaskeri, sem hefði getað borgað kr. 1.05 fyrir kg. af reyktu kjöti. Nú er það svo hjá Sláturfél. Suðurl., að það sauðakjöt, sem selt hefir verið reykt, hefir fullkomlega staðizt þennan samanburð, þegar eingöngu er tekið reykt kjöt. En samanburður hv. þm. var því ekki á réttum grundvelli byggður, þar sem hann ber þetta reykta kjöt saman við heildarverð kjötsins hjá Sláturfél. Suðurl. En svo dregur hv. þm. þá lævíslegu ályktun af þessum ranga samanburði sínum, að þetta sé sönnun þess, að S. Í. S. borgi hærra verð fyrir kjötið í heild heldur en Sláturfél. Suðurl. og kaupfél. Borgf. Hv. þm. fer þarna vísvitandi með ranga skýrslu, því hann er tæplega svo skyni skroppinn, að hann sé sér þess ekki meðvitandi, að hann fari með villandi samanburð og rangsleitni í garð þessara félaga. - Ég þarf svo ekki að segja meira um þetta, því grundvöllurinn undir þessum samanburði hjá hv. þm. er bruninn niður, og eftir stendur illvilji hans gagnvart þessum félögum og þeim bændum, sem innan þeirra eru.

Þessu næst minntist hv. þm. á sumarslátrunina, og hann sagði, að þetta lægi ekki í því, að seinna var byrjað að slátra, heldur lægi það í því, að hér hafi verið komið upp neytendafélagi. Og sagðist hann hafa, til þess að sannprófa þennan félagsskap, blekkt á sér heimildir, hringt hann upp í síma og sagzt vera sjálfstæðismaður, til þess að komast að því, hvað fyrir þessum félagsskap vekti. Ég skal ekkert um þennan félagsskap segja; ég þekki hann ekki. En ég skaut því fram áðan, hvort S. Í. S. mundi vera í þessum félagsskap, því það er staðreynd, að það hætti viðskiptum við Sláturfél. Suðurl. með sumarslátrað kjöt á síðasta hausti. En orsökin til þess, að Sláturfél. seldi minna heldur en áður, var sú, að seinna var byrjað að slátra og framan af sumarslátruninni voru gamlar birgðir að flækjast fyrir.

Hv. þm. sagði, að viðskiptin hefðu gengið frá Sláturfél. Suðurl. yfir til kaupmannanna. Ég hefi leitað mér upplýsinga um þetta hjá kaupmönnum eins og Jóni Björnssyni frá Bæ, sem selt hefir mjög mikið af kjöti. Þar er salan miklu minni heldur en í fyrra, eða á móti 900, sem hann slátraði í fyrra, var það 500 nú. Hjá Friðriki í Miðkoti, sem einnig er stór aðili á þessu sviði, hefir salan einnig verið mun minni heldur en í fyrra. Hjá Garðari Gíslasyni er salan líka eitthvað minni, en ég hefi ekki enn fengið neinar tölur um það. - Nú vil ég bara spyrja: Hvert hafa þessir menn farið, sem hv. þm. segir, að hafi hlaupið frá Sláturfél. Suðurl. og kaupfél. Borgf., ef ekki til þessara kaupmanna? En niðurstaða mín sýnir, að þeir hafa ekki farið til þeirra. Það getur náttúrlega verið, að þeir hafi farið til S. Í. S., því það tók upp á því strax í sláturbyrjun að flytja kjöt inn á markaðinn. (PZ: Hefir hv. þm. spurzt fyrir hjá Nordalsíshúsi?). Nei, mér hefir nú láðst að leita þangað, en það er þá hið eina vígi, sem hv. þm. getur flúið til.

Þá kem ég að þriðja atriðinu hjá hv. þm., þar sem hann reyndi að bera í bætifláka fyrir sig og n. fyrir aðstöðuna til Rvíkurmarkaðsins og þess, að n. hefir orðið þess valdandi að draga niður það kjötverð, sem ákveðið var haustið 1934 til bænda, með því að leyfa ekki að leggja á fyrir frystikostnaði nema að nokkru leyti. Hr. þm. vildi halda því fram, að ég hefði farið með rangt mál, af því að við sölu á kjöti út úr íshúsunum sé sama verð sett á fyrsta og annars flokks kjöt, og á þann hátt hafi komið fram verðmismunur til góða þeim, sem seldu fryst kjöt. En með þeim útreikningi, sem ég hefi sýnt fram á, og hv. þm. hefir ekki reynt að hrekja, þá er raunverulegur frysti- og geymslukostnaður 20 aur. á kg., miðað við verð á fyrsta flokks kjöti, og hann er byggður á því, að selt sé með sama verði fyrsta og annars flokks kjöt. Þetta gerir því engan mismun, því þessu hefir þannig verið háttað að undanförnu, alveg eins og gert hefir verið nú. Hv. þm. hefir því farið hér með blekkingar, sem líklega eru líka vísvitandi fyrirfram, því hann hefir sennilega vitað, að þessi útreikningur var byggður á þannig lagaðri sölu, að selt væri með sama verði fyrsta og annars flokks kjöt.

Þá kem ég að 4. atriðinu hjá hv. þm., og það verð ég að segja, að þar náði flónska hans toppmálinu. Hann sagði sem sé, að ef ekki væri flutt inn á Reykjavíkurmarkaðinn, þá væri búið að selja allar birgðirnar í miðjum marz. (PZ: Marz til apríl). Nú segir hv. þm. í marz til apríl, en það er hvorttveggja jafnvitlaust, og skal ég reyna að sýna fram á það. Birgðirnar hjá Sláturfél. Suðurl. voru haustið 1934 í nóv. 188 tonn, þegar með eru talin þau 8 tonn, sem félagið flutti hingað úr íshúsi sínu á Akranesi. Þessar birgðir átti félagið til sölu fram undir ágústmánaðarlok. Nú situr félagið á sama tíma í haust í Rvík og Hafnarfirði með 260 tonn, og þar við má bæta 30 tonnum, sem vitað er um, að hingað verða flutt af birgðum félagsins á Akranesi, svo útkoman verður 290 tonn. Menn sjá muninn, - birgðirnar eru sem sagt 102 tonnum meiri nú en í fyrra, sem engar líkur eru til, að Sláturfél. geti selt á Rvíkurmarkaðinum með svipaðri aðstöðu og það hefir haft. Salan byggist því á því, að allir kjötkaupmenn kaupi af félaginn til viðbótar við þær birgðir, sem þeir hafa.

Ég ætla nú, að þetta nægi til þess að sýna, hvílíka fjarstæðu þessi hv. þm. leyfir sér að viðhafa í þessum málaflutningi, þegar hann segir, að þessar birgðir hér í Rvík verði uppseldar í miðjum marz. Fyrr má nú rota en dauðrota. Og ég verð að segja það, að maður, sem fer með slíka fjarstæðu eins og þetta, þarf ekki að tala um barnalega framkomu hjá öðrum í umr. um þetta mál.

Hv. þm. vék þá að því, sem ég hafði haldið fram, að í stað verðjöfnunargjaldsins ættu Sunnlendingar, sem selt hefðu hér á Rvíkurmarkaðinum, ríkt tilkall til þess markaðs. Hv. þm. sagði sem rétt var, að þeir, sem flyttu hingað á þennan markað, yrðu líka að borga þetta verðjöfnunargjald, en réttur þeirra manna, sem fyrir eru, er vitanlega þeim mun ríkari sem þeir eiga að réttu lagi að hafa rétt til þess að láta meira magn inn á þennan markað heldur en aðrir. En ég skal benda á annað atriði, sem tekur af allan vafa um það, að þeir, sem búa kringum Rvíkurmarkaðinn, eigi fyrst og fremst að njóta hans. Samkv. kjötl. er landinu, sem kunnugt er, skipt niður í verðlagssvæði. Og hvað eiga þessi verðlagssvæði að tákna? Vitanlega það, að það verðlagssvæði, sem liggur að markaðsstað, á að hafa forgöngu að því að hafa þar sölu fyrir sínar afurðir. Að þetta er tilgangur l., staðfestir 10. gr. l., sem getur kjötverðlagsnefnd það vald, að ef of miklar birgðir ætla að flytjast inn á eitthvert sérstakt verðlagssvæði, þá eigi hún að taka í taumana. Það er þess vegna alveg í mótsögn við löggjöfina, þegar n. vanrækir þá skyldu sína að sporna á móti því, að markaðurinn hér yfirfyllist.

Út af því, sem hv. þm. var að tala um það, að n. hefði gert rétt í því að hækka ekki verð á frystu kjöti síðastl. haust, vil ég benda á það, að þar sem það er tilgangurinn með kjötl., að n. ákveði verð kjötsins á hverju hausti, þá leiðir það af sjálfu sér, að n. á ekki að gera ráðstafanir á sama staðnum, sem verða þess valdandi, að úr þessu verði sé dregið. N. er bundin við að gera engar slíkar ráðstafanir, sem verða til þess að draga úr því, að bændur geti notið þess af verðinn, sem umfram verður sölumeðferðarkostnað. En þetta hefir n. gert með því að leyfa ekki álagningu nema að nokkru leyti á fryst kjöt. Og það hefir leitt til þess að draga niður það verð, sem bændur gætu fengið með hliðsjón af útsöluverðinn. Við skulum athuga þetta nánar. Þeir menn, sem selja kjötið nýtt á haustin, fá uppborið það, sem hægt er að fá út úr söluverðinu eins og n. hefir ákveðið það, en þeir, sem verða að láta svo og svo mikið af kjöti í frystingu og geymslu til sölu fram eftir öllum vetri, og jafnvel fram á sumar, fá ekki hlutfallslega út úr þessu verði, af því að þeir fá ekki að leggja á fyrir þeim kostnaði, sem stafar af frystingunni og geymslunni. Slík ráðstöfun verður því til þess að gera upp á milli bænda. Þeir, sem selja á haustin. hafa betri aðstöðu heldur en þeir, sem verða að bíða með að selja kjöt sitt þangað til seint á veturna. Þetta er ranglátt, þar sem það er alveg gagnstætt þeirri meginhugsun, sem l. eru byggð á, sem sé þeirri, að gera verðið sem jafnast, eftir því sem hægt er. miðað við markaðsskilyrðin á þeim stað, sem kjötið er selt á.

Ég ætla, að ég hafi í gær og með því, sem ég hefi sagt til viðbótar nú, gert grein fyrir því, að óánægja, sem risin er upp af framkvæmd þessara l., sé á rökum reist. N. hefir beinlínis gengið á móti anda l. með því að vernda ekki markaðinn og með því að leggja ekki á fyrir geymslu- og frystikostnaði. Það er þess vegna ekkert undarlegt, þó bændur, sem þessi l. voru sett fyrir, láti til sín heyra og óánægjuraddir komi fram, þegar l. eru þannig framkvæmd gagnstætt tilgangi þeirra. Og það verða þeir að láta sér skiljast, sem í n. verða áfram. því hefir verið hreyft hér að bryta skipun þessarar n., en ég hefi litla trú á því, að þetta öryggi fáist nema því aðeins, að bændur sjálfir fái að skipa menn í þessa nefnd.

Að því leyti sem hv. þm. N.-Þ. var að tala um það, að fram kæmi í þessum umr. skipulagsbundin árás á Norðlendinga, og þá e. t. v. Vestfirðinga líka, þá vil ég benda honum á, að þetta skipulag er lagt með löggjöfinni sjálfri, sem felur það í sér, að þau svæði, sem að markaðsstöðunum liggja, eigi að hafa forgangsrétt að markaðinum. Það getur náttúrlega verið, að þeir, sem hér eru á þessu verðlagssvæði, geti ekki fullnægt markaðinum, en n. á þá að hafa hliðsjón af því, þegar hún ákveður innflutning annarsstaðar frá, að hann sé eingöngu til viðbótar við það, sem á vantar.

Hv. þm. N.-Þ. sagði, að mótsögn væri í því, þegar raddir kæmu fram um það, að verðið væri of hátt sett, og svo kæmu aftur óánægjuraddir, þegar dregið hefði verið úr verðinu. Þetta getur ekki náð til mín. Ég hefi aldrei látið orð um það falla, að verðið hafi verið of hátt sett, heldur hefi ég mótmælt því, að n. gerði þær ráðstafanir, sem yrðu til þess að draga úr því verði, sem n. hefði sett.

Hv. þm. N.-Þ. var þá með einhverjar fyrirspurnir til mín út af ummælum, sem fallið hefðu hjá hv. (6. þm. Reykv. Hv. þm. hefir kannske beint þeim fyrirspurnum til mín af því hv. 6. þm. Reykv. var þá ekki hér í d. Hann var nú búinn að tæma svo þingsalinn undir sinni ræðu, að ekki voru nema 2 þm. inni auk forseta, og ég held jafnvel, að skrifararnir hafi líka verið horfnir. En ég verð að biðja hv. þm. N.-Þ. að snúa sér til hv. 6. þm. Reykv. sjálfs, sem nú er hér inni, með fyrirspurnir sínar.

Ég held þá, að ekki hafi fleira verið í ræðu hv. 2. þm. N.-M., sem gefur mér ástæðu til þess að taka fleira fram. Ég þykist hafa gert því nokkur skil, sem hann sagði. En ég vil bara segja það, að þessar umr. hafa leitt það í ljós, að við, sem stöndum að kaupfél. Borgf. og Sláturfél. Suðurl., megum fullkomlega vera á verði um okkar hagsmuni, ef sá andi er ríkjandi í meiri hl. kjötverðlagsn., sem fram hefir komið hjá hv. 2. þm. N.-M. í umr. um þetta mál, sem flokksbróðir hans, hv. þm. Mýr., hefir fundið ástæðu til að mótmæla.