15.11.1935
Neðri deild: 74. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í C-deild Alþingistíðinda. (4192)

161. mál, sláturfjárafurðir

Flm. (Sigurður Kristjánsson) [óyfirl.]:

Ég verð að játa, að ég heyrði lítið af því, sem hv. þm. N.-Þ. sagði. Ef hann hefir beint spurningu til hv. þm. Borgf. út af því, sem ég sagði, þá vænti ég, að hann komi henni til mín fyrir 2. umr., svo að ég geti svarað henni. - En ég heyrði þó eitt, sem hv. þm. sagði, að í blaðagreinum mínum væri skipulagsbundin árás á norðlenzka bændur. Ég veit ekki, hví ég ætti frekar að hafa tilhneigingu til að hlynna að sunnlenzkum bændum heldur en norðlenzkum. Hv. þm. hefir líklega ætlað þetta slagorð handa kjósendum sínum, svo að hann stæði sig betur á Norðurlandi. En ég held, að hv. þm. hafi enn ekki gert sér grein fyrir, að með kjötsölulögunum var það meiningin að gera öllum bændum jafnt undir höfði, svo að innanlandsmarkaðurinn yrði bændum að meira gagni, og verðjöfnunargjaldið var sett til að jafna hallann, er aðrir höfðu meiri not að útlenda markaðinum. Ég býst samt ekki við, að menn hafi ætlað að slá því föstu, að kjötverðið yrði sama á öllu landinu, heldur yrði komizt sem næst framleiðslukostnaðinum á kjötinu, en hann er ekki sá sami á öllu landinu. Og það var einmitt hlutverk kjötverðlagsn. að sveigja l. eftir þeirri vitneskju, er hún fengi í þessu efni.

Þó Reykjavíkurmarkaðurinn offylltist, þá væri það ekki bændum að gagni neinsstaðar. Það yrði til þess, að kjötið brynni inni og seldist minna verði. Það væri illt bæði fyrir sunnlenzka og norðlenzka bændur, og kæmi engum að gagni. Bezt er, að sem mest af kjötinu væri selt sem næst framleiðslustaðnum, því að þá legðist á það minnstur aukakostnaður. Það er t. d. óheppilegt, ef flytja ætti kjöt úr kjördæmi hv. þm. N.-Þ. hingað til Rvíkur, setja það hér í íshús, ef ekki gengi út, eða senda það héðan til útlanda. Það er bezt að selja framleiðsluna ú þeim markaði, sem er næstur. Verðjöfnunin á svo að vera til þess, að aðrir, sem lengra eiga á markað, biði ekki af halla.

Ég vildi bæta því við, að það situr illa á mönnum að tala um skipulagsbundna árás á bændur, sem standa að svona aðferðum gagnvart félögunum hér sunnanlands. Það þýðir ekki á móti að mæla, að þau hafa orðið fyrir hirðuleysi, ef ekki beinum árásum. Það liggur mjög nærri, að fastheldni n. við þau ákvæði l., sem gera slíkt misrétti framkvæmanlegt, gefi til kynna, að ætlazt hafi verið til, að þessi félög yrðu kyrkt, eða ætti að neyða þau til að sleppa sjálfstæði sínu.

Hv. 2. þm. N.-M. var í fyrri ræðu sinni að tala um einhvern alheimshugsunarhátt, sem ég hefði. Ég veit ekki, hvort alheimurinn hefði átt að koma þessari hugsun inn hjá mér, eða ég eigi að stjórna alheimsíhaldinu. Þetta var svo háfleygt hjá hv. þm., að ég skildi það ekki. En meiningin átti víst að vera sú, að ég vildi misskipta auðnum milli manna. Hann dró það út af brtt. minni, er fæli í sér, að menn mættu hafa frjálsa slátrun. En ég get sagt hv. þm., að þetta atriði er til að jafna auðinn, ef svo mætti nefna. Það er að koma fjölda bænda á vonarvöl, að þeir eru píndir til að taka á sig mikinn milliliðakostnað, í stað þess að þeir gátu áður komið vörum sínum í verð á frjálsum markaði. Það er því að standa með þeim snauðari og jafna auðinn, ef fylgt er till. minni.

Hv. þm. klykkti út með því, að ég hefði verið að hæla mér af drengskap í ræðu minni um daginn. Þetta er vitleysa. Orð hafa þar ekkert að segja. Það verður hver að sýna það í verki og framkomu, hvort hann er drengskaparmaður eða ekki. En þetta kem til af því, að hv. þm. var með glósur til mín og vildi gefa í skyn, að ég væri ódrengur, og var að belgja sig út um það. Og því var ég að svara, en alls ekki að hæla mér neitt fyrir drengskap. Ég þarf ekki að gefa frekari skýringar á þessu, en það, sem hv. þm. fór fram á, að ég tæki till. mína aftur, æti mitt eigið afkvæmi, eins og stundum hefir komið fyrir hans flokksmenn, þá tel ég það ekki neinn drengskap. Drengskapur er að fylgja fram máli sínu, hvort sem fleiri eða færri eru með því, en ódrengskapur að láta sveigjast frá því, sem menn álíta rétt vera.