08.11.1935
Neðri deild: 68. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í C-deild Alþingistíðinda. (4211)
166. mál, útgerð ríkis og bæja
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Ég hefi fylgzt með þessum umr. og tel það skyldu allra þm. að gera það sem bezt, því að hér er áreiðanlega stórt mál á ferðinni. - Mér kom það dálítið undarlega fyrir að heyra hv. þm. Hafnf. halda því fram, að það, sem þyrfti að hugsa um, væri að halda við nýjum og nothæfum skipum í landinu, en hitt skipti ekki máli, hvort útgerðarmönnum væri haldið við eða ekki, og þeir hefðu lífsskilyrði til þess að starfa að sínum atvinnurekstri eða ekki. Það er a. m. k. mikil skammsýni í þessum efnum, því að það kemur áreiðanlega einhverntíma að því, að þeir togarar, sem keyptir eru fyrir tilstilli ríkis og bæja, eldist eins og önnur skip, og það kemur fram sem erfiðleikar, ef ekkert er gert fyrir þessa aðila til þess að halda úti skipunum, svo að þau geti borið sig og atvinnureksturinn haldist við í landinu. Þetta verður að fylgjast að, og það er í raun og veru aðalatriðið að skapa fyrst lífvænleg skilyrði við þennan atvinnurekstur, og svo að styðja þá, sem atvinnureksturinn stunda, til að fá sér skip og önnur nauðsynleg áhöld til þess að þessi atvinnurekstur verði rekinn með sem beztum árangri. Þetta verður ávallt jafnnauðsynlegt, hvort heldur það eru einstaklingar, sem hafa þennan atvinnurekstur með höndum, eða það eru bæir og ríki. Hv. þm. Hafnf. mundi því áreiðanlega verða seinna - ef hann vill ekki gera það samhliða - að skapa bæjarfélögunum eða ríkissjóði þá aðstöðu, sem nauðsynleg er til þess að útgerðin með þessum nýju skipum geti borið sig. Hér má ekki greina í sundur þetta tvennt. Annars fannst mér það kaldar kveðjur frá þessum hv. þm. í garð þeirra manna, sem hafa staðið undir þeim mikla þunga, sem kreppuárin hafa lagt á herðar allra framleiðenda í landinu. Því að ef ásökun hv. þm. Hafnf. er réttlát í garð þessara manna, sem eru að sligast undan þessum atvinnurekstri, og ef þeir eiga með einhverjum meira eða minna ranglátum ráðstöfunum gagnvart þeim, þá hlýtur sömu spjótum að verða beint til annara framleiðenda í landinu. Og ef þeir eiga líka í vændum slíka andstöðu hér á þingi, eins og mér fannst felast í orðum hv. þm. Hafnf. gagnvart útgerðarmönnum yfirleitt, þá finnst mér, að andi kalt frá löggjafarþingi þjóðarinnar til þeirra stétta, sem velferðarmál þjóðarinnar hvíla mest á, því að undir því er velferð þjóðarbúsins komin, að framleiðendurnir fái starfað með sem beztum árangri. Öll umbótastarfsemi, sem jafnaðarmenn segjast berjast fyrir, verður að engu liði, ef framleiðendur geta ekki rekið atvinnu sína skaðlaust.