14.11.1935
Neðri deild: 73. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í C-deild Alþingistíðinda. (4229)

168. mál, fiskimálanefnd

Flm. (Ólafur Thors):

þetta frv. fer fram á það, að niður falli, a. m. k. um stundarsakir, starfsemi fiskimálanefndar, sem stofnuð var með lögum, sem afgr. voru á haustþinginu í fyrra, l. nr. 76 29. des. 1934.

Eins og hv. þdm. rekur minni til, þá var mikið deilt um sjávarútvegsmálin á þinginu í fyrra. Við sjálfstæðismenn óskuðum eftir, að útgerðarmenn væru látnir í friði með frjáls samtök á sölu framleiðslu sinnar, en vildum jafnframt, að gerðar væru ráðstafanir til þess að skapa þjóðinni forustu vegna vaxandi gengis haftastefnunnar í öðrum löndum, sem eðlilega koma niður á framleiðsluvöru okkar, einkum saltfiskinum. Þessi till. okkar náði ekki framgangi, heldur var hugmynd okkar um fiskiráð lögfest í öðru og, að okkur þótti, óaðgengilegra formi sem eru þessi lög —, þar sem einnig voru sett ákvæði um saltfiskssölu.

Ég ætla ekki að gera þau lög almennt að umræðuefni, enda sé ég ekki, að það sé nauðsynlegt til þess að þetta mál, sem hér liggur fyrir, megi hljóta samþykki þingsins. Ég skal aðeins geta þess, að sú breyt. er nú orðin á þessu máli, að frá því er horfið sem til var ætlazt 1934, að sölusamband ísl. fiskframleiðenda, sem þá var talið, að myndi leggjast niður, hefir nú, vegna tveggja bráðabirgðabreyt., sem hæstv. atvmrh. hefir gert á þeirri löggjöf, hafið starfsemi sína á ný og heldur henni nú áfram, — þó þannig, að í stað þess, að áður voru þrír framkvæmdarstjórar og tveir meðstjórnendur, þá stjórna nú þeir sömu þrír framkvæmdastjórar, sem voru áður, en með þeim hefir nú verið skipuð sjö manna stjórn.

Ég hygg, að ég geti sagt það áreitnislaust í garð fiskimálanefndar eins og hún er skipuð, að engum manni blandast hugur um, að innan stjórnar og framkvæmdastjórnar fisksölusamlagsins ríkir miklu djúptækari þekking á fiskimálum heldur en innan fiskimálanefndar. Ég ætla ekki að hefja neina árás á starfsemi fiskimálanefndar, því að ég hygg, að enda þótt menn teldu slíkar aðfinnslur ástæðulausar, þá hljóti þeir samt að geta átt samleið með okkur, sem þetta frv. flytjum, eingöngu út frá því sjónarmiði, að það er ekki viðeigandi, jafnþröngur eins og fjárhagur sjávarútvegsins er, að hlaða á hann ónauðsynlegum gjöldum, en kostnaður sá, sem leiðir af starfsemi fiskimálanefndar, er beinlínis lagður á sjávarútvegsmenn, og ef menn á annað borð geta aðhyllzt það, að innan þeirrar 10 manna yfirstjórnar, sem ræður yfir fisksölusambandinu, sé a. m. k. viðlíka haldgóð þekking eins og innan þeirra 7 manna, sem í fiskimálanefnd eru, þá eiga menn líka að aðhyllast það, að þeim 34—33 þús. kr. kostnaði, sem af fiskimálanefnd leiðir, verði létt af sjávarútvegsmönnum. auk þessa kostnaðar eru svo þau laun, sem fiskimálanefndin greiðir þremur starfsmönnum sínum og samtals nema 21—22 þús. kr. árlega. Hér gæti líka eitthvað sparazt.

En til þess að menn skilji betur, hve augljóst það er, að a. m. k. sama þekking — ég haga orðum mínum þannig til þess að þeir, sem hafa aðra skoðun en ég í þessu efni, hafi sem allra minnsta ástæðu til að andmæla mínum rökum — ræður innan fisksölusambandsins eins og innan fiskimálanefndar, vil ég geta þess, að sá maður, sem mesta þekkingu þarf fram að leggja, er skrifstofustjóri n., og hann er líka hjá sölusambandinu, og sá maður, sem næst mundi standa, formaðurinn, Héðinn Valdimarsson, á líka sæti í fisksölusambandinu. Ég er ekki í vafa um, að hver einasti maður, er til þekkir, ber það traust til fisksölusambandsins, að það sé a. m. k. eins vel, ef ekki betur fært en fiskimálanefndin um að leysa þau viðfangsefni, sem hér eru fyrir hendi, en sé svo, þá má ekki heldur leggja þannig tugi þúsunda af nauðsynjalausum kostnaði á útgerðina.

Ég býst við, að menn hafi tekið eftir því, að ég hefi algerlega sneitt hjá því að gagnrýna gerðir fiskimálanefndar, en það er ekki af því, að ég telji, að ekki megi finna óánægjuefni bæði með það, sem hún hefir gert, og það, sem hún hefir látið ógert. En ég tel það ekki þessu máli til neins gagns að fara í deilur út úr þeim atriðum. Fyrir mér vakir ekki að ná mér niðri á form. fiskimálanefndar eða öðrum nm., heldur hitt, að reyna að létta nauðsynjalausum kostnaði af hinum aðþrengda sjávarútvegi.

Ég vil leyfa mér að óska þess, að málinu verði, að lokinni þessari umr., vísað til sjútvn., og vænti, að það megi fá góðar undirtektir.