20.11.1935
Neðri deild: 78. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 681 í C-deild Alþingistíðinda. (4287)

183. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Páll Þorbjörnsson:

Hv. flm. byrjaði á því að skýra frá, að í raun og veru væri þetta frv. afspringur annars frv., sem einnig lægi fyrir þessari hv. d., en það er frv. til hafnarlaga fyrir Siglufjarðarkaupstað, og þá sérstaklega það ákvæði í því, þar sem heimilað er að leggja sérstakt vörugjald til almennra bæjarútgjalda á allar vörur, sem fara um höfnina. Því hefir nú verið haldið fram af mér og fleirum, að þessu ákvæði væri beint að síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði, og er ég þakklátur hv. flm. fyrir það, að hann hefir nú tekið af öll tvímæli um það með flutningi þessa frv. Þeir, sem eru kunnugir sögu síldarverksmiðja ríkisins, minnast þess, að það þótti talsverð búbót að því að fá þær byggðar á þeim stöðum, sem þær eru á. Þegar rætt var um byggingu þeirrar síldarverksmiðju, sem byggð var síðast, þá varð að vonum talsverð deila um það, hvar hún ætti að standa. Og það blandaðist engum hugur um, að fyrir sumum vakti það eingöngu í þeirri deilu að fá síldarverksmiðjuna byggða þar, sem þeir áttu heima. Það er nokkur sönnun fyrir því, hversu mikil búbót Siglfirðingum þótti að því að fá síldarverksmiðj. reista í sínu byggðarlagi, að þeir lögðu fram undir 200 þús. kr. til þess að fá hana byggða á Siglufirði. Við vitum líka, að það komu fram eindregnar óskir frá Raufarhöfn og Flateyrarkauptúni um það, að ríkisstj. beitti sér fyrir því, að verksmiðjurnar, sem voru á þeim stöðum, yrðu keyptar og sameinaðar síldarverksmiðjum ríkisins. Nú virðist vera að skjóta upp höfðinu sú stefna, að bæjunum sé það ekki nóg að fá þessa atvinnuaukningu, heldur vilja þeir líka fá tækifæri til þess að skattleggja fyrirtækin og taka gjöld af útvegsmönnunum og sjómönnunum, sem koma á skipum sínum norður og leggja þar upp síld til bræðslu, og skapa með því atvinnu á Siglufirði og víðar. Það má segja, að þau atvinnutæki, sem notuð eru til þess að afla síldarinnar, nefnilega skipin, séu að litlu eða engu leyti eign þeirra manna, sem búsettir eru í byggðarlaginu, þar sem verksmiðjurnar standa. Ég held, að það sé óhætt að fullyrða, að frá Raufarhöfn og Flateyri gengur ekkert skip til síldveiða, sem búsettir menn þar eiga. Og á Siglufirði munu vera tvö síldveiðiskip, sem búsettir menn þar eiga og leggja upp síld í bræðslu. Mér er kunnugt um, að hið eina skip, sem bæjarfélagið á Siglufirði hafði með að gera, hætti við að leggja aflann upp á Siglufirði, en flúði vestur á Strandir, vegna betri skilyrða hvað fiskimiðin snerti. Í þessu sambandi er vert að geta þess, að það eru nær eingöngu heimilisfastir menn á stöðunum, sem hafa atvinnu við verksmiðjurnar, eða um 150 á Siglufirði, 40 á Sólbakka og 35 á Raufarhöfn. Nú er það alls ekki svo, að verksmiðjurnar skapi ekki meiri tekjur fyrir bæjarfélögin en það, sem greitt er í vinnulaun. Það má líka benda á, að verksmiðjurnar á Siglufirði gjalda nálega 20 þús. kr. í hafnargjöld af útfluttum vörum, og verða þær líka að borga gjald af ýmsum vörum, sem þær verða að flytja inn. Nú er því haldið fram af hv. flm., að það sé ósanngjarnt, að bæjarfélögin hafi ekki hliðstæða heimild til þess að skattleggja fyrirtæki eins og heimild þá, sem þau hafa til þess að skattleggja einkasölur ríkisins, en þar sem síldarverksmiðjurnar hafi ekki verið byggðar í hagnaðarskyni, þá sé ekki hægt að fara inn á þá braut að skattleggja hagnaðinn. Nú vil ég segja það við hv. flm., sökum þess að hann er samvinnumaður, eins og kunnugt er, að það lengsta, sem mér finnst vera hægt að ganga í því að veita bæjar- og sveitarfélögum leyfi til að skattleggja stofnanir eins og síldarverksmiðjurnar, er, að þeim sé gert jafnhátt undir höfði og samvinnufélögunum, því að þótt síldarverksmiðjur ríkisins séu ekki samvinnufélög, þá er tilgangur þeirra í raun og veru sá sami, sem sé að skapa framleiðendunum sannvirði fyrir framleiðslu sína. Þeim mönnum, og einnig hv. flm., sem ég býst við, að hafi ekki gert sér fulla grein fyrir því, hvað slík heimildarlög sem þessi myndu hafa í för með sér fyrir síldarverksmiðjur ríkisins, ætla ég að benda lauslega á, hvað útgjöld þau, sem hér um ræðir, mundu hafa numið miklu þetta ár, sem þó er viðurkennt, að sé ekki nálægt því hálfdrættingur á við meðalár. Fyrir verksmiðjuna á Raufarhöfn hefði þessi skattur orðið 3450 kr., fyrir síldarverksmiðjuna á Siglufirði 21000 kr. og fyrir verksmiðjuna á Sólbakka 7255 kr. Þessi útreikningur er miðaður við afurðaverðið eins og það hefir verið á því, sem búið er að selja, og eins við það afurðaverð, sem nú er, enda þótt ekki sé búið að koma afurðunum 9 peninga. Aftur á móti mundi þessi skattur í meðalári nema 58000 kr. á Siglufirði, 10000 kr. á Sólbakka og 5000 kr. á Raufarhöfn, — og miða ég í þessu tilfelli við núv. afurðaverð hjá síldarverksmiðjum ríkisins, og hvað útreikning gjaldsins fyrir síldarverksmiðjuna á Raufarhöfn snertir, þá miða ég útreikninginn við það, sem gert var ráð fyrir, að síldarverksmiðjan gæti tekið á móti síðasta sumar. Til viðbótar við þetta vil ég geta þess, að þegar þessi áætlun var samin, þá var afkastageta verksmiðjunnar áætluð minni en hún reyndist að vera í sumar, eftir að verksmiðjan komst í hendur ríkisins. Ég skal taka það fram, að ég geri ráð fyrir, að þessar upphæðir, sem ég nefndi, geti farið fram úr þessum áætlunum. En samkv. þessum útreikningi verða öll þessi gjöld um 75000 kr. á ári. — Svo er annað, sem vert er að benda á í þessu sambandi, og það er það, að þetta 11/2% gjald af andvirði afurðanna þýðir því sem næst 3% skatt á sjómenn og útgerðarmenn, sem leggja afla upp í verksmiðjurnar, því að útborgað verð til útgerðarmanna og sjómanna nemur því sem næst helmingi af því verði, sem fæst fyrir afurðirnar. Þess vegna hlýtur þetta að tvöfaldast á útgerðarmönnum, þannig að 3% skattur skelli á þeim. Og miðað við afurðaverðið eins og það er nú í dag, ætla ég að draga fram ljóst dæmi. Sem dæmi tek ég meðalafla eins báts í samvinnufélagi Ísfirðinga, eins og hann hefir verið undanfarin meðalár. Þessi bátur leggur upp 6000 mál til bræðslu, en það þýðir, að það kemur hvorki meira né minna en 990 kr. skattur á hvern einstakan bát. Þarna er um meðalafla eins báts að ræða, miðað við síldarafla 7 báta. Nú vil ég spyrja hv. flm. þessa frv., hvort honum finnist sanngjarnt, að útgerðarmenn og sjómenn, sem leggja afla sinn á land og útvega fjölda manns atvinnu, verði að greiða þennan þunga skatt, sem nemur í þessu tilfelli, sem nefnt var, nærri því þúsund krónum á hvert skip.

Hv. flm. óskaði eftir því, að þessu frv. yrði vísað til fjhn., að þessari umr. lokinni. Ég verð að segja, að mér finnst þetta mál snerta meir sjómannastéttina og útgerðarmennina í landinu heldur en aðrar stéttir, og vil ég því mælast til þess, að frv. verði vísað til sjútvn., svo framarlega sem því verður vísað til 2. umr. og nefndar.