21.11.1935
Neðri deild: 79. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í C-deild Alþingistíðinda. (4291)

183. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Finnur Jónsson:

Ég skal ekki segja mikið við þessa umr., en ég vildi undirstrika það, sem hv. 3. landsk. sagði um þær furðu gálauslegu kröfur, er fram koma í frv. Því í ári eins og nú í ár, þegar síldarverksmiðjurnar hafa ekki fyrir lögboðnum greiðslum, vöxtum og afborgunum, ættu þær samkv. frv. að greiða til viðkomandi bæjar- eða sveitarfélaga, aðallega Siglufjarðarbæjar, 33 þús. kr., og í venjulegu ári yrði þessi skattur, sem með frv. á að leggja á sjómenn og útgerðarmenn, 73 þús. kr. Það er fyllilega þess vert, að hv. d. athugi frv. rækilega áður en hún greiðir því atkv., því varla mun finnast það bæjar- eða sveitarfélag, sem ekki myndi fúslega lofa og efna að hafa síldarverksmiðju skattfrjálsa, ef það fengi hana byggða hjá sér, — svo mikil atvinnuaukning er talin vera að slíkum fyrirtækjum. Nú má í annan stað segja, að það sé ekki með öllu ósanngjarnt, að bæirnir, þar sem síldarverksmiðjur eru, fái einhverjar tekjur af þeim, þótt mikil eftirspurn sé eftir að fá þær, vegna fólksins, sem þangað streymir og þeim ber síðan að standa straum af. En í þessu frv. er svo gálauslega á stað farið í þessu efni, að þó nokkur sanngirni kynni að mæla með því, að bæirnir fengju eitthvað, þá nær ekki neinni átt að samþ. frv. eins og það er, eða neitt svipað því. því er haldið fram at samvinnumönnum, að síldarverksmiðjurnar eigi að reka sem samvinnufyrirtæki, og í rauninni eru l. um þær þannig úr garði gerð, að samkv. þeim eru þær einskonar samvinnufyrirtæki. Lögin gera ráð fyrir, að verksmiðjurnar kaupi ekki síldina, þó sérstakar ástæður hafi gert það að verkum undanfarin ár, að verksmiðjustjórnin hefir einróma leitað til atvmrh. um, að verksmiðjurnar fengju heimild til að kaupa hana. En einmitt vegna breyt. á verksmiðjulögunum, sem gerð var á síðasta þingi, þar sem fyrsta útborgun var hækkuð og sjóðagjöld af hráefnum til verksmiðjanna lækkuð, í því skyni, að þær þyrftu ekki framvegis að kaupa síldina, heldur gætu borgað útgerðarmönnum og sjómönnum sannvirði fyrir hana, þá eru allar líkur til, að þetta fyrirtæki verði í framtíðinni rekið eftir samvinnuprincipinu. Nú er alkunnugt, að eftir samvinnulögunum gjalda samvinnufélögin ekki útsvar nema af þeim hluta viðskiptanna, sem þau geta safnað af ágóða til félagsskaparins sjálfs, nefnilega viðskiptum utanfélagsmanna. En hinsvegar borga samvinnufélögin sérstakt gjald í sveitar- eða bæjarsjóð, sem nemur 2% af fasteignamatsverði þeirra húsa, er þau nota til iðnrekstrar. Ef þessi fyrirtæki eru nokkuð hliðstæð, síldarverksmiðjurnar og venjuleg samvinnufélög, sem ekki mun vera hægt að neita, þá nær engri átt að taka hærra gjald af síldarverksmiðjunum til bæjar- og sveitarsjóða heldur en samvinnufélögin eiga að greiða. Og ég veit, að hv. flm. hlýtur að fallast á þetta, nema því aðeins, að hann vilji láta gilda annað fyrir samvinnufélög sjávarsíðumanna heldur en samvinnufélög sveitamanna. Ég hefi ekki reiknað það út, en ég býst við, að húsin, sem notuð eru við síldarverksmiðjureksturinn á Siglufirði og annarsstaðar, séu ekki yfir 500 þús. kr. virði. Lóðir eru ekki taldar með og ekki heldur vélar. Þori ég þó ekki að segja um þetta fyrir víst, en tel rétt, að n. athugi það. Það lengsta, sem mér finnst hægt að fara í þessu efni, er það, að þessum lögboðnu og lögvernduðu samvinnufélögum sjávarsíðumanna, síldarverksmiðjum ríkisins, sé gert jafnt undir höfði eins og samvinnufélögum sveitamanna og öðrum samvinnufélögum í landinu. Á þetta vil ég leggja hina mestu áherzlu, ef farið yrði út á þá braut að láta ríkisverksmiðjurnar greiða eitthvað til bæjar- og sveitarsjóða, að það yrðu undir engum kringumstæðum hærri gjöld heldur en samvinnufélögin greiða nú.

Viðvíkjandi því, til hvaða n. þetta mál á að fara, þá getur engum verið það neitt kappsmál. En það má benda á, að öllum málum, sem snert hafa síldarverksmiðjur ríkisins, hefir, að ég hygg undantekningarlaust frá því fyrsta, verið vísað hér til sjútvn. Hér er um breyt. á sjálfum síldarverksmiðjulögunum að ræða, og er því væntanlega engin ástæða til að vísa frv. neitt annað en einmitt til sjútvn.