21.11.1935
Neðri deild: 79. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í C-deild Alþingistíðinda. (4300)

183. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Forseti (JörB):

Mér heyrast þessar umr. vera komnar nokkuð á víð og dreif. Frv., sem liggur fyrir til umr., fjallar um heimild fyrir bæjarfélög og sveitarfélög til að leggja nokkurt gjald á ársviðskipti síldarverksmiðja ríkisins, miðað við söluverð afurða þeirra, er þær framleiða. En umr. hafa nú komizt inn á þá braut, að rætt er um, hve miklu síldarverksmiðjurnar afkasta, úr hve mörgum málum þær vinna á sólarhring og hafi unnið, og að bryggjur séu illa gerðar, og þegar þær brotni, þá brjóti þær aðrar bryggjur og skemmi og þar fram eftir götum. Hv. 3. landsk. hefir kvatt sér hljóðs, en hefir ekki rétt til að tala oftar við þessa umr., nema hann þurfi að bera af sér sakir. Mér er nú ekki kunnugt um, hvort svo er, af því að ég brá mér frá. — Hv. 8. landsk. fær að gera örstutta aths.