10.12.1935
Neðri deild: 95. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í C-deild Alþingistíðinda. (4318)
191. mál, þingsköp Alþingis
Magnús Torfason:
Það er ekki af því, að ég vilji taka fram fyrir hendurnar á n. og hv. frsm., að ég kveð mér hljóðs, heldur er það sökum þess, að ég þarf að víkja mér frá og vildi þess vegna geta lokið því af að tala um brtt. á þskj. 728, sem ég hefi borið hér fram, en hún er brtt. við a-lið brtt. á þskj. 716. Sú brtt. er við till. frumv. um það, hvernig útvarpsumræður skuli fara fram. Þetta er nýmæli í þingsköpum, og þess vegna er ekki nema eðlilegt, að það geti komið fyrir, að það sé ekki eins gerhugsað og skyldi. Á ég þar sérstaklega við þetta, að þessar reglur um útvarpsumr. eigi nú að vera lögákveðnar, í staðinn fyrir að hingað til hafa aðeins verið samþykktir um þetta frá stóru flokkunum. Á ég þar sérstaklega við það, að þessar reglur, sem þarna eru, virðast mér koma að nokkru leyti í bág við stjórnarskrána. Og hvað það snertir, þá veit ég ekki betur en samkv. stjskr. hafi allir þm. fullt málfrelsi. En samkv. þessum reglum um útvarpsumr. eiga einstakir þm. að vera þar undanteknir. Þetta samþýðist ekki stjskr., og því hafa verið bornar fram till. til þess að ráða bót þar á. Hv. flm. frv., 1. þm. Árn., hefir sjálfur komið með till. í þessu efni, og kann ég honum þakkir fyrir. En ég sé samt sem áður ekki, að þar sé tekið nógu djúpt í árinni; þar er ennþá hanki á. Sá hluti af brtt., sem hér á við, hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Forseti veitir þingmanni utan flokka, ef sérstaklega stendur á, færi á að eiga þátt í útvarpsumr. að einhverju leyti.“
Það eru orðin „ef sérstaklega stendur á“, sem ég verð að telja, að komi í bág við stjskr. Þingmenn eiga að hafa fullt málfrelsi. Ég vil jafnvel segja, að mjög sé lagt á tæpasta vað, þar sem stendur í till., að forseti geti veitt þingmanni utan flokka leyfi til að taka þátt í þessum umr. að einhverju leyti. Þetta er þó ekki ákveðnara en það, að það er ekki tekið fram fyrir hendurnar á forseta um að fullnægja þessu ákvæði stjskr. að öllu leyti. Þess vegna get ég látið það liggja á milli hluta.
Ég vænti þess fastlega, að brtt. mín á þskj. 728, sem bætir úr þessu, verði samþ. — Ég tel svo ekki þörf á að fara fleiri orðum hér um, nema þessu verði mótmælt.