11.03.1935
Efri deild: 22. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í C-deild Alþingistíðinda. (4421)

36. mál, prentsmiðjur

Þorsteinn Briem [óyfirl.]:

Það má vera, að það sé rétt hjá hv. 4. landsk., að á síðari árum hafi dregið úr bókakaupum vestur um haf héðan að heiman. Þetta mun standa í sambandi við það, að hugur yngra fólks þar vestra hneigist meira til enskra bókmennta. Þó munu vera margar góðar undantekningar frá því á meðal þeirra, sem bezt eru menntaðir. Við heyrðum á síðasta hausti einn þessara manna frá Vesturheimi tala í útvarpið um það, hvernig hægt væri að halda við bókmenntasambandinu á milli þessara þjóðarbrota. Ef við lítum á, hvern áhuga Norðmenn og aðrar frændþjóðir vorar sýna í því að halda við sambandi við þjóðarbrotin vestan hafs og þjóðernistilfinningu þeirra, þá hygg ég, að engum þurfi að ægja það stórræði, sem hér á að leggja út i. Því erfiðari aðstöðu sem tunga vor hefir vestra, því meiri er ástæðan til að styrkja bókasöfnin þar, svo þeir menn, sem áhuga kunna að hafa á íslenzkum bókmenntum, fái betri aðstöðu til þess að ná í íslenzkar bækur, því ég hygg, að það sé að mestu tilviljun, sem ræður því, hvaða bækur fara vestur um haf.

Hv. 4. landsk. talaði um þann kostnað, sem af sendingunum mundi leiða. Já, að vísu er hann dálítill. Nú er það svo, að lögreglustjórar eiga að sjá um sendingar bókanna, og í sambandi við þetta mætti gera Vestur-Íslendingum það að skyldu að hafa hér umboðsmann til að taka við bókunum og annast sendingu þeirra. En ég hygg, að ef borin væri saman rausn sú, sem Vestur-Íslendingar hafa sýnt íslenzku þjóðinni, og það, sem hér er farið fram á, þá yrði sú mynd, sem fram kæmi af rausn okkar, ekki okkur í hag.