11.03.1935
Efri deild: 22. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í C-deild Alþingistíðinda. (4422)

36. mál, prentsmiðjur

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Mér hefir skilizt, að hv. flm. ætli að taka aftur til 3. umr. till. á þskj. 106, og mun ég því ekki mikið ræða um hana nú. Ég er fús til að athuga hana með allri vinsemd, og ég hygg, að flestum mundi þykja skemmtilegt að geta sýnt Vestur-Íslendingum þessa vinsemd. Kemur þá helzt til athugunar, hvort nokkrir örðugleikar þyki á framkvæmd þess. Það hefir verið minnzt á það hér, að það væri varhugavert að ganga langt út á þá braut að skylda prentsmiðjur til að láta bækur án endurgjalds, og benti hv. þm. Dal. á, að fleiri mundu koma á eftir. Ég viðurkenni, að þetta geti verið. En sjálfsagt er, að þetta nái aðeins til opinberra bókasafna, t. d. ekki til bókafélaga eða lestrarfélaga í hreppum landsins. Það getur vel verið, að nú þyki þegar fulllangt gengið, en það hefir áður verið stefnt inn á þessa braut. Ég þekki engin frambærileg rök fyrir því að veita bókasafninu á Ísafirði þessi hlunnindi, en neita bókasafninu á Siglufirði um þau, og má að vísu segja það sama um Hafnarfjörð, Nes í Norðfirði og Vestmannaeyjar. Mér finnst, að nú þegar hafi verið gefið það fordæmi, að illt sé að neita öðrum hliðstæðum bókasöfnum um sama rétt. Hv. þm. Dal. gerði fyrirspurn um það, hvernig þessu væri háttað í öðrum löndum. Ég get ekki svarað því til hlítar, en þó veit ég það, að prentsmiðjum þar er gert að skyldu að láta bókasöfnum í té ókeypis bækur, en ég veit ekki, hve víðtækt það er.