21.03.1935
Efri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 771 í C-deild Alþingistíðinda. (4451)
51. mál, eftirlit með sjóðum og sjálfseignarstofnunum
Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):
Þegar þetta frv. var hér til 1. umr., gerði ég nokkra grein fyrir því almennt; auk þess fylgir frv. allítarleg grg. Ég mun því ekki ræða málið almennt nú, en eins og sjá má á nál. 189 og 218, hefir fjhn. ekki getað orðið sammála um frv. Við tveir nm., sem erum meiri hluti n., leggjum til, að frv. verði samþ. með lítilsháttar breyt., og eru brtt. okkar í nál. 189. Þessar brtt. ganga fyrst og fremst út á það, að skipta frv. í kafla með viðeigandi fyrirsögnum. Eru 1., 3. og 4. brtt. um þetta. — Í öðru lagi viljum við taka af öll tvímæli um það, að sjóðir einstakra félaga, sem tvímælalaust eru eign félaganna, heyri ekki undir þetta eftirlit. Ég lít svo á, að í raun og veru hafi þess ekki verið þörf að taka þetta fram, en vegna ummæla, sem fallið hafa, þykir okkur þetta vissara. — Í þriðja lagi leggjum við til, að gæzlustjóra, er frv. gerir ráð fyrir, skuli kjósa á því sama Alþingi, sem frv. samþykkir. Ég sé, að hv. minni hl. leggur til, að mál þetta verði afgr. með rökst. dagskrá. Ég ætla ekki að ræða nál. minni hl. að svo stöddu. Þó vil ég benda á eitt atriði í nál. og eins í dagskrártill., sem lagt er til, að verði samþ. Þar er því slegið föstu, að frv. þetta verði til útgjaldaauka bæði fyrir ríkissjóð og viðkomandi sjóði. Ég get ekki séð, að svo verði. Í frv. er ekki gert ráð fyrir, eins og hv. minni hl. veit, að ríkissjóður greiði þennan kostnað nema rétt í bili, heldur er það meiningin, að sjóðirnir sjálfir borgi kostnaðinn. Kostnaður er það að vísu, þó sjóðirnir sjálfir eigi að borga, en það er bara mín trú og meiri hl. n., að sá kostnaður borgi sig fyrir sjóðina, og þar sem svo mikið fé er bundið í þessum sjóðum, þarf ekki að muna miklu á betri vörzlu sjóðanna til þess, að kostnaðurinn hafist upp, og meira en það.