22.03.1935
Efri deild: 32. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 787 í C-deild Alþingistíðinda. (4460)
51. mál, eftirlit með sjóðum og sjálfseignarstofnunum
Jón Auðunn Jónsson:
Það mun vera tilfellið, að nokkrir misbrestir séu á því, hvernig fé sjóða, sem stofnaðir eru í góðu augnamiði, hefir verið varið, og því er sjálfsagt ekki vanþörf á því að hafa eftirlit með því. Um þetta er enginn ágreiningur, heldur hitt, hve miklu eigi að kosta til slíks eftirlits og hversu það eigi að vera víðtækt. Ég hygg nú, að það séu fleiri sjóðir en ennþá hefir verið gert ráð fyrir, sem engin vanþörf væri að líta eftir. Það væri kannske ekki minni ástæða til að líta eftir meðferð sumra bæjarstjórna á hafnarsjóðum o. fl. sjóðum, sem þær hafa umsjón með. Ríkisstj., sem á að hafa eftirlit með slíku, hefir víst heldur lítið látið til sín taka í þeim efnum, og jafnvel séð í gegnum fingur með þeim bæjarstjórnum, sem misbeitt hafa valdi sinn í þeim sökum á mjög áberandi hátt. Ég gat t. d. ekki komizt hjá því meðan ég var bæjarstjóri á Ísafirði að kæra mjög grunsamlega meðferð bæjarstj. þar á hafnarsjóði Ísafjarðar. Að því er ég bezt veit, liggur sú kæra enn í salti. Það mál var þannig vaxið, að árið 1932 lét bæjarstj. með 3 atkv. af 4 sjóðinn taka 35000 kr. lán handa einkafyrirtæki. Var sjóðurinn þá svo staddur, að hann gat ekki staðið í skilum með greiðslur af sínum fasteignalánum og umsömdu greiðslum jafnvel til erlendra lánardrottna, og ekki nóg með þetta: Eigendur Samvinnufélags Ísfirðinga, sem sjálfir greiddu atkvæði með þessu láni hafnarsjóðs til síns eigin félags, bæði í bæjarstjórn og hafnarnefnd, tóku sjálfum sér til handa veðrétt í skipum félagsins (síns eigin félags) á undan veðrétti fyrir þessu láni hafnarsjóðs og reyndu á þann hátt að bjarga eigin fé, en velta skuldaböggunum yfir á hafnarsjóð, m. ö. o., svindla fé úr opinberum sjóði, sem þeir voru forráðamenn fyrir, til bjargar eigin hagsmunum.
Meðan eftirlitið í fjmrn. með meðferð hafnarsjóða er ekki betra en það, að ekki er kippt í lag annari eins misbeitingu og þessari, heldur látið viðgangast slíkt fádæma hneyksli, þá er ekki á góðu ven. Það er auðséð, að ekki nægir, þó stjórnin eigi að hafa eftirlit með þessum sjóðum; það verður aðeins á pappírnum. Hér þarf meira og skarpara eftirlit með þessum sjóðum. — að ég ekki tali um það, hvernig bæjarstj, hefir farið með jarðeignakaupasjóðinn, sem gefinn var til jarðakaupa handa bænum og í skipulagsskránni ákveðið, að féð skyldi geyma, þar til það yrði notað, í bankavaxtabréfum eða öðrum sambærilega tryggum verðbréfum eða þá sem innstæða í banka með sambærilegum kjörum. En hvernig er svo skipulagsskrá þessa sjóðs haldin? Þannig, að allt fé þessa sjóðs er tekið og notað í þarfir bæjarins upp í eyðsluskuldir hans. Ekki einu sinni greiddir af því vextir, heldur eru á reikning sjóðsins ár eftir ár færðir útistandandi vextir, og eru þeir nú orðnir samtals hátt á annað þús. kr. Þetta hélt ég, að bæri undir eftirlit stjórnarráðsins, sem á að endurskoða alla reikninga bæjarfélaganna.
Ég nefni þetta aðeins sem dæmi upp á það, að ekki er allt fengið með því að hafa hið svokallaða eftirlit stjórnarráðsins með fjárreiðum hinna ýmsu bæjarfélaga, þegar mönnum helzt uppi með aðra eins meðferð á hafnarsjóði og jarðeignasjóði Ísafjarðar sem ég hefi nú lýst.
það eftirlit, sem hér mætti að gagni verða, mundi að sjálfsögðu kosta eitthvað meira en það pappírseftirlit, sem nú gildir, en það er ljóst, að hér þarf umbætur, ef koma á í veg fyrir það, að óhlutvandir forráðamenn þessara sjóða misbeiti valdi sínu.