22.03.1935
Efri deild: 32. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í C-deild Alþingistíðinda. (4462)
51. mál, eftirlit með sjóðum og sjálfseignarstofnunum
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Hv. þm. N.-Ísf. sagði, að deilan í þessu máli stæði um það, hvort menn vildu hér leggja mikið eða lítið í kostnað, og skildist mér á honum, að þeir, sem vildu una við l. frá síðasta þingi, vildu lítinn kostnað, en þeir, sem fylgdu þessu frv., vildu, að hann yrði mikill. Nú er þetta í raun og veru tómur útúrsnúningur, því ágreiningurinn er ekki um þetta, heldur hitt, hvort hér á að vera raunverulegt eftirlit eða bara pappírseftirlit, sem verður ekki annað eftir frv. hv. þm. Dal., sem samþ. var á síðasta þingi, sem er dæmt til þess að verða ekkert annað en pappírsgagn, auk þess sem það nær ekki til allra sjóða, sem þyrfti. Nei, hér er það ekki spurningin um kostnaðinn, sem um er skipzt, heldur hitt, hvort ganga á frá þessu máli svo, að gagn verði að, eða ekki. Um kostnaðinn er það að segja, eins og margsinnis hefir verið tekið fram, að hér er ekki um neinn aukakostnað að ræða, heldur felur frv. þetta í sér sparnað, samanborið við frv. hv. þm. Dal., er samþ. var í fyrra.
Þá var hv. þm. N.-Ísf. að tala illa um fjármálastjórn á Ísafirði. Ég er ekki kunnugur þeim málum. Hann talaði um einhvern hafnarsjóð, sem hefði verið misnotaður; þess vegna þyrftu slíkir sjóðir að heyra undir eftirlitið. Og í öðru lagi sagði hann, að úr því þessi hafnarsjóður hefði verið misnotaður, þá þýddi ekki að fela stjórnarráðinu eftirlit með þeim sjóðum.
Vera má, að það sé rétt, að haft sé slælegt eftirlit með fjárreiðum bæjarfélaga, en það kemur þessu máli bara ekkert við, og ef svo hefir verið, þá er rétt — ekki í sambandi við þetta mál, heldur í öðru sambandi — að flytja till. til umbóta á því. Annars finnst mér, að fyllilega muni vera svo um búið meðferð sveitar- og bæjarfélaga á fjármunum, að ekki sé neitt að óttast í því sambandi, þar sem andstæðingarnir venjulega gagnrýna gerðirnar, enda eru kosnir endurskoðendur af bæjar- og sveitarstjórnum, sem hafa aðgang að öllu reikningshaldi og geta auðveldlega komið sinni gagnrýni að, ef um eitthvað óleyfilegt er að ræða.
Hv. 1. þm. Reykv. var enn að tala um það, að frv. væri frv. um eftirlit, en ekki um ráðstafanir á þeim sjóðum, sem frv. fjallar um, og fannst mér helzt á ræðu hv. þm., að hann hefði ekki heyrt ræðu mína, sem ég flutti hér áðan, þar sem ég gerði grein fyrir því, hvernig þetta frv. væri hugsað sem grundvöllur fyrir því, að höfð væru áhrif á fjármeðferð sjóðanna. Ég skýrði þetta m. a. í sambandi við frv. um landbúnaðarvexti, sem afgr. var hér um daginn, að Alþ. er í öðrum l. farið að gera ráðstafanir til þess að beina fé sjóðanna í vissar áttir, og til þess að grundvöllurinn fáist undir þær ráðstafanir, þurfa að liggja fyrir glöggar upplýsingar um þessa sjóði. Þannig á þetta frv. að skapa grundvöllinn undir síðari aðgerðir í þessu máli. Auk þess benti ég á það, að þótt frv. heiti „frv. til l. um eftirlit með sjóðum og sjálfseignarstofnunum“, þá er samkv. 9. gr. frv. mjög auðvelt að hafa nokkur áhrif á að beina fé sjóðanna inn á heppilegar brautir. Annars ætla ég mér ekki að fara að halda hér aftur sömu ræðuna og áðan. Ég gerði þá grein fyrir því, hvernig þetta er hugsað sem grundvöllur síðari aðgerða. Það er t. d. ekki þýðingarlaust fyrir löggjafarvaldið að vita, hve mikið fé fellur til í sjóðum, sem hið opinbera getur haft áhrif á, að beini fjármagni sínu inn á vissar brautir, án þess að brjóta í nokkru í bága við skipulagsskrár sjóðanna, því að í mörgum tilfellum eru ákvæði skipulagsskránna svo rúm, og jafnvel svo ófullkomin, að ég tel hægt að hafa á þetta mikil áhrif, þegar um óumdeilanlega tryggan grundvöll er að ræða. Og þetta hafa allir gengið inn á í frv. um fasteignamatslán, að beina fjármagninu inn á þessa vissu braut, og sjóðaeftirlitið myndi verða í nánu sambandi við þá, sem ættu að skapa grundvöllinn fyrir því, að slíkt gæti átt sér stað.
Ég hefi lagt sérstaka áherzlu á þetta af því, að það hefir ekki komið fram hjá öðrum, en hinsvegar legg ég ekki síður áherzlu á það, að farið sé heiðarlega með sjóðina, og að tryggja það, er auðvitað höfuðtilgangurinn með þessu frv., þótt hitt eigi frá mínu sjónarmiði að koma til athugunar líka. Ég hygg, að það muni koma í ljós, þegar farið verður að taka á þessu máli, að allmjög sé ábótavant meðferð sjóðanna, og mér kæmi það ekkert á óvart, þótt þetta sjóðaeftirlit yrði talið sjálfsagt og ómissandi, þegar það hefir starfað nokkurn tíma.
Ég get ekki komizt hjá því að minnast á það, sem hv. þm. Dal. var að tala um, að hann hefði nú ætlað sér að vera svo sparsamur í sambandi við þetta eftirlit, að ætla hverjum manni, sem að þessu ynni, 100 kr. á ári. (ÞÞ: 150 krónur). Jæja, 150 krónur. Ég veit ekki, hvernig hv. þm. dettur í hug, að menn geti sinnt eftirliti með 360 sjóðum, og jafnvel mörgum fleiri, fyrir einar 150 kr. á ári. Það er ekki nokkur vafi á því, að eins og það frv. var flutt, var það hreint og beint dæmt til þess að verða pappírsgagn; að vísu var dálítið úr þessu bætt með því að einskorða greiðsluna ekki alveg við 150 kr., en ég álít þetta svo merkilegt og mikið verkefni, að ekki veiti af að setja sérstakan mann til að gegna því. Í fljótu bragði virðast falla undir þetta eftirlit um 4—5 millj. kr.