22.03.1935
Efri deild: 32. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í C-deild Alþingistíðinda. (4463)

51. mál, eftirlit með sjóðum og sjálfseignarstofnunum

Jón Auðunn Jónsson:

Hæstv. ráðh. sagði, að það kæmi lítið þessu máli við um sjóðaeftirlitið, sem ég hefði verið að benda á. Það er þó vissulega hvað snertir jarðeignakaupasjóð Ísafjarðarkaupstaðar, sem ákveðið er, að skuli stjórnað af bæjarstj. og reikningar hans birtir í B-deild Stjtíð. Skipulagsskrá þessa sjóðs hefir verið margbrotin. (Fjmrh.: Þetta sýnir þörfina á eftirliti). En þegar stjórnarráðið lítur ekki betur eftir sínum störfum en þetta? (Fjmrh.: Þá þarf sérstaka stofnun til að annast þetta). Það hefir hvað eftir annað verið gerð aths. við meðferð sjóðsins af endurskoðendum bæjarreikninga Ísafjarðarkaupstaðar. Ég geri líka ráð fyrir því, að þessi nýja stofnun muni verða undir yfirumsjón stjórnarráðsins, og ef þessu er ekki sinnt, og ekki heldur meðferð hafnarsjóðsins á Ísafirði, sem er í mesta máta einkennileg og þannig vaxin, að ástæða virðist til að taka til greina rökstuddar kærur um, að stjórn sjóðsins sé stefnt fyrir slíka meðferð, þá hygg ég, að ekki sé mikils að vænta frekar í þessum málum, þótt nýrri eftirlitsstofnun sé bætt við.

Hæstv. ráðh. telur tilgang þessa frv. að hafa áhrif á það, hvert fé sjóðanna sé veitt.

(Fjmrh.: Ég var að enda við að segja, að það væri ekki aðalatriðið). Jæja, en hann leggur mikið upp úr því atriði. En nú er það ákveðið í flestum skipulagsskrám, að sjóðsstjórnirnar, innan vissra takmarka, skuli ráða þessu. Ef sjóðsstjórninni lízt nú á að ávaxta fé sjóðsins í innlánsskírteinum, þá sé ég ekki, að hægt sé að skipa henni að ávaxta féð á annan hátt. Nú er líka oft þannig ákveðið, að sjóðirnir skuli veita fasteignaveðslán innan þeirrar sveitar, sem sjóðurinn á að starfa fyrir. Ég veit, að þannig er það um 2—3 sjóði, sem er verið og að nokkru leyti búið að stofna, að þeir eiga að geymast í fasteignaverðbréfum innan sveitarfélagsins, sem þeir eiga að starfa, fyrir, til þess m. a. að styrkja landbúnaðinn á þann hátt, að veita hagkvæm lán, að svo miklu leyti sem þessir sjóðir eru færir um. Þetta er ekki stórfé, 6—7 þús. kr., en getur þó komið sér vel fyrir frumbýlinga, sem vilja fá góð lán til að eignast jarðir sínar. Sjóðaeftirlitið getur ekki haft nein ráð með að beina þessu fé inn á aðrar en þessar fyrirfram ákveðnu brautir, og yfirleitt er hér um sjóði að ræða, sem vinna sitt verk á takmörkuðu svæði, a. m. k. meðan fasteignalánafyrirkomulagið er ekki í betra skipulagi en nú er.

Hæstv. ráðh. hefir hlotið að taka eftir því, að aths. hafa margsinnis verið gerðar við bæjarreikninga Ísafjarðar vegna þess að bæjarstj. misnotaði þessa sjóði, sem ég gat um, og ávaxtaði þá á annan hátt en lögmætt er, enda er það alls ekki nein ávöxtun, þótt tilfærðir séu á reikningunum ógreiddir vextir þessara sjóða um áramót, en þeir ekki einusinni greiddir, hvað þá sjálf lánsupphæðin.