25.11.1935
Efri deild: 78. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í C-deild Alþingistíðinda. (4475)
60. mál, klakstöðvar
Frsm. (Jón Baldvinsson) [óyfirl.]:
Það hafa legið fyrir undanförnum þingum allmiklar breytingar á laxveiðilöggjöfinni, sem vitanlega átti að miða að því að auka fiskiræktina og laxveiðina í landinu. En ég er hræddur um, að þó að löggjöfinni hafi að ýmsu leyti verið breytt í þessu augnamiði, þá hafi ekki náðst verulegur árangur, a. m. k. ekki eins og til var ætlazt. Eins og nú er háttað lögum í landinu á þessu sviði, þá virðist svo erfitt að samræma hagsmuni og ákveða veiðitíma þeirra, sem við veiðivötnin búa og eiga lönd að þeim. Þeir, sem eiga lönd að ósum veiðiánna, fá miklu verðmætari lax en hinir; sem búa ofar við árnar til dala og veiða þar gamlan og verðminni lax, er aðeins selst saltaður. Þar sem ekki hefir enn tekizt með laxveiðilöggjöfinni að samræma hagsmuni þessara manna, þá hafa hrygningarstaðirnir verið svo að segja þurrkaðir upp, og hefir það vitanlega leitt til þurrðar á laxinum. Þegar laxinn er veiddur hindrunarlaust á hrygningarstöðvunum, þá er ekki að búast við, að hægt sé að halda honum við, og má það raunar teljast undravert, að ekki skuli vera búið að útrýma laxinum með öllu úr veiðiám landsins.
Að undanförnu hefir talsvert verið rætt um að stuðla að byggingu klakstöðva sem víðast á landinu, en framkvæmdir hafa verið í smáum stíl og sáralítið á unnizt samanborið við það, ef riðastöðvarnar hefðu verið friðaðar. Þegar vel viðrar, er náttúran stórvirk í þessum efnum, ef ekkert sérstakt ber út af, þannig að ísruðningar eða stór vatnsflóð í veiðiám landsins skoli sílunum burt og eyðileggi þau, eins og stundum ber við. Það hefir lítið að segja, þó að klakið sé út nokkrum hundruðum þúsunda af laxaseiðum, móti því, að náttúran fái að vera óhindruð á riðastöðvunum. Að vísu hefir það ekki verið fundið út enn, hversu mörg prósent af laxaseiðum ná fullorðinsaldri.
Tilgangur þessa frv. er sá, að ýta á eftir ríkisstj. að láta reisa klakstöðvar, og ég hefi þá skoðun, að þær hafi litla þýðingu, nema þær séu mjög stórar og fullkomnar á allan hátt. Frá þessum stóru klakstöðvum á svo að flytja laxaseiðin og dreifa þeim í veiðiár landsins, til þess að auka laxveiðina þar, sem hún er nú orðin lítil, og halda henni við í þeim ám, þar sem enn er talsverð laxagengd. Ég held, að þetta verði ekki gert, svo að gagni komi, nema það opinbera hafi forgöngu að því og sjái um rekstur klakstöðvanna, og að þær verði, eins og sagt er í nál., reistar þar, sem auðveldast er að flytja úr þeim laxaseiði í sem flestar veiðiár í landinu.
Mér hefir verið sagt frá þeirri nýjung, að flutt hafi verið fyrir skömmu laxahrogn frá Reykjavík austur á Fljótsdalshérað, og að við þann flutning hafi aðeins 5% farið forgörðum. Ef það er hægt með þessum árangri, þá er sjálfsagt auðveldara að flytja hrogn en seiði. Laxaseiðin hafa talsvert misfarizt í flutningum, nema gætt hafi verið ýtrustu nákvæmni um, að vatnið væri ferskt og súrefnaríkt, sem seiðin eru flutt í. Menn þykjast hafa orðið varir við talsvert aukna veiði þar, sem seiðum hefir verið sleppt í veiðiár. Sést það bezt á Elliðaánum, sem eru með beztu laxveiðiám á landinu; þar hefir um nokkurra ára bil verið klakið út laxaseiðum og sleppt í árnar. Og laxveiðin hefir aukizt, þrátt fyrir það, að rafstöðvarstíflan hefir mjög hindrað vatnsrennsli í ánum og fjöldi seiða hlotið að farast í járnristunum við rafstöðina. Menn þykjast hafa tekið eftir því, að klakið hafi gert mikið gagn, þó að þessi vandkvæði hafi átt sér stað. Það er líka í fullu samræmi við reynslu nágrannaþjóðanna. Þar hefir það komið í ljós, að hægt er að fara með laxinn eins og húsdýr, í sömu á og þar sem hann er uppalinn.
Með tilliti til þessarar reynslu er frv. flutt. En í því voru engar bendingar um það, hvaða ár skyldu valdar til þess að reisa klakstöðvar við. Landbn. hefir aftur á móti nefnt tvær ár í því skyni: Laxá í Kjós fyrir Suðurland og Laxá úr Mývatni fyrir Norðurland. Veiðiréttindi í þessum ám þarf ríkið sumpart að kaupa eða taka á leigu, og ef til vill að taka þau eignarnámi, ef ekki fást hagkvæmir samningar. Þessar ár eru báðar svo laxríkar og vel settar, að frá þeim verður hægt að flytja hvort heldur sem menn vilja hrogn eða seiði um allt land. Auk þessarar brtt. um árnar hefir landbn. orðað brtt. sína þannig, að stj. er ekki bundin við að láta reisa aðeins tvær klakstöðvar; þær mega vera fleiri, ef rannsókn leiðir í ljós, að nauðsynlegt sé að hafa þær fleiri en tvær. N. vildi ekki fastbinda þetta í frv., þó að í byrjun verði þær að líkindum aðeins tvær.
Í till. n. er gert ráð fyrir, að stj. heimilist að kaupa veiðiréttindi í Laxá í Kjós, en taka á leigu öll veiðiréttindi í Laxá úr Mývatni. Renna margar stoðir undir það, að ríkið verði að eiga eina veiðiá, og kaupa aðra af þeim, sem hér er bent á, t. d. Laxá í Kjós.
Það hefir í mörg ár verið mín skoðun, að hér þyrfti að gerbreyta laxveiðilöggjöfinni og ákveða, að ekki megi veiða lax í net nema í þremur ám á landinu, Hvítá í Borgarfirði, Hvítá í Árnessýslu og Ölfusá.
Þó þær séu talsvert vatnsmiklar, má næstum því taka hverja bröndu í net, sem fer upp í árnar. En þetta yrði ekki gert, nema þeir, sem búa ofar við árnar, létu riðastöðvarnar óáreittar og sæju hag sinn í því að láta horaða haustlaxinn í friði. Það er óhjákvæmilegt að jafna hagnaðinum af laxveiðinni á milli ósabænda og þeirra, sem búa ofar við árnar. Síðan á ekki að leyfa aðra veiðiaðferð en stangarveiði í hinum smærri ám. Stangarveiði er að verða svo eftirsótt sport, bæði af innlendum og erlendum mönnum, að ég tel víst, að bændur hefðu meiri tekjur upp úr því að leigja ána sína til, stangarveiða heldur en að stunda þá ránsveiði, sem nú tíðkast. Sjálfir gætu þeir vitanlega einnig haft rétt til þess að fara með stöng og ná sér bröndu í soðið.
Þó að nú sé hannað með lögum að stunda netjaveiði á riðastöðvunum, þá kemur það ekki að haldi, af því að þeir, sem búa upp með ánum, fá ekkert fyrir vorveiðina í ósunum. Það verður því að finna leið til þess að bæta þeim það upp, þannig að þeir fái ákveðið gjald fyrir hvern lax, sem veiðist. Þeir bændur, sem búa við, ósana, fá vitanlega verðmætasta laxinn; það er því engu síður nauðsynlegt fyrir þá, að riðastöðvarpar séu friðaðar síðari hluta sumars og á haustin. — Ég er ekki að svo stöddu til þess búinn að gera till. um, hvað hátt þetta jafnaðargjald af laxinum ætti að vera, en mun athuga það betur.
Á síðustu árum hefir verið mikil eftirspurn eftir laxveiðiám, og hún er alltaf að aukast. Sumpart vegna þess, að laxveiði í ám fer smámsaman. þverrandi í nágrannalöndunum, og þar af leiðandi eru Norðmenn og Svíar, en þó sérstaklega Englendingar að sækjast eftir veiðiám hér á landi. Englendingar, eru ákaflega sólgnir í að, fá hér réttindi til stangarveiða í ám og borga miklu meira fyrir þau en bændur hafa sjálfir upp úr laxveiðinni. — Á stríðsárunum dró nokkuð úr þessu, en nú hefir eftirspurnin aukizt aftur.
Þetta spursmál, um arðjöfnuð af laxveiðinni á milli hlutaðeigenda, liggur að vísu ekki fyrir nú, en það ætti að komast sem fyrst í framkvæmd, þó að vitanlega verði mjög erfitt að koma á samkomulagi milli ósabænda og annara, sem lönd eiga að veiðiám.
N. hefir verið í dálitlum vafa um, hvort 10 aura gjaldið á hvert kg. af laxi í klaksjóð sé of hátt, á meðan ekki, fæst aukin laxveiði. vegna klaksins, og mun n. athuga það frekar milli umr.
N. hefir ekki athugað, hvernig bezt yrði fyrir komið innheimtu á þessu gjaldi af laxi, sem veiddur er t. d. í Hvítá og Ölfusá, en það eru mestar líkur til, að aðalgjöldin til klaksjóðs komi þaðan. Hinsvegar mun verða erfitt að eltast við innheimtu á þessu gjaldi, þar sem aðeins er um smáveiði, að ræða, eða örfáa laxa í stað. N. telur, að fyrst og fremst verði þó að gera ráð fyrir því, að þeir, sem hafa mesta laxveiði, greiði skilvíslega gjöld í klaksjóð. Væri æskilegt, að nokkur frestur yrði þangað til frv. kæmi til 3, umr., svo að n. gefist tóm til að athuga betur, hvaða reglum yrði fylgt um innheimtu á gjaldinu, og hverju, það mundi nema. — Það hefir komið fram síðan n. skilaði áliti sínu, að veiðimannahúsið Árnes við Laxá í Kjós er þannig sett, að n. sér, eftir atvikum, ekki ástæðu til að veita heimild til eignarnáms á því. Og er þá þýðingarlaust það ákvæði í till. n., er heimilar ríkisstj. að taka það eignarnámi. N. flytur því skrifl. brtt. við b.-lið brtt í nál. á þskj. 596, um að orðin „og eignum falli niður. Ég skal með leyfi hæstv. forseta, lesa upp þessa málsgr. í b-lið: „Takist ekki hagkvæmir samningar, að dómi ríkisstj., um kaup eða leigu á veiðiréttindum. í a- og b-lið,. skal ríkisstj. heimilt að taka þau eignarnámi, og er, það þá á valdi ríkisstj., hvort eignarnámið tekur til kaups eða leigu á veiðiréttindum þeim og eignum, er getur í a-lið þessarar greinar“. Það eru orðin „og eignum“, sem við leggjum nú til, að verði felld úr brtt. í nál., og þýðir það, að ríkisstj. fær ekki heimild samkv. þessu frv. til að taka eignarnámi annað en veiðiréttindin í þeim veiðiám, sem þar eru nefndar, ef ekki takast hagkvæmir samningar um sölu eða leigu á þeim við hlutaðeigendur.
Ég hefi þá minnzt á allar efnisbreyt., sem n. leggur til, að gerðar verði á frv., auk þess eru einstöku orðabreyt., sem ég hirði ekki að fjölyrða um.
Ég mun leggja til hæstv. forseta skrifl. brtt. sem n. hefir komið sér saman um að fella niður þau orð, er ég áður nefndi.
Að lokum vil ég geta þess, að það mun vera prentvilla í sumum eintökum af þskj. 896, og má leiðrétta það síðar.