30.11.1935
Efri deild: 83. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í C-deild Alþingistíðinda. (4485)
60. mál, klakstöðvar
Frsm. (Jón Baldvinsson) [óyfirl.]:
Formlega hefir þetta ekki verið athugað af n. Það, sem talað var um við 2. umr., var það, hve mikilla tekna mætti vænta af gjaldi því, sem á skal leggja samkv. 2. gr. frv. En við höfum gert athugun á þessu eftir fiskiskýrslum og hlunninda, sem hagstofan gefur út. Sést þar tala þeirra laxa, sem hagstofan hefir þótzt finna út, að veiddir hafi verið hér á landi ár hvert. Þessi tala er allmisjöfn eftir árum. 1910 voru t. d. taldir 4000 laxar, 1915 tæp 11000, 1925 um 15000, 1931 aftur 11000, og svo árin 1932 og '33 veiddust 20000 og 26000. Væri miðað við þessar tölur, sem eru það eina, sem hægt er að halda sér við, má gera ráð fyrir, að 10 aura skattur nemi ekki minnu en 6000 kr. Þetta höfum við talað um, að væri of hátt, og hafa komið till. um að lækka skattinn niður í 6 aura. Ég hefði gjarnan viljað koma með brtt. við þessa umr., svo að málið þyrfti ekki að tefjast, og reikna með því, að ríkið fengi 3—4000 kr. árlegt gjald af þessu, sem hægt væri að nota til að koma upp klakstöðvum, ásamt ríkissjóðstillaginu. En nú sé ég, að fram er komið nýtt atriði í málinu, sem n. hefir ekki haft tök á að athuga, en það er brtt. fjvn.manna. Ég get ekki fallizt á það fyrir mitt leyti, að farið sé að ákveða í h, að þessi n. skuli geta veitt þessa eða hina heimild. Það væri ný stefna í löggjöf okkar, og þó nokkuð mikilsverð nýbreytni. Mér finnst ekki koma til mála, að fjvn. hafi slíkt vald. Ég get reyndar skilið, að fjvn. sé svo upp með sér af sjálfri sér, að henni finnist hún eiga að ráða öllu. En gæti þá ekki farið svo, að við yrðum eins stærilátir í landbn., eða að aðrar n. settu sig á jafnháan hest? Ég vil því mælast til þess við hv. fjvn., að hún stígi niður af þessum stóli og litist um meðal almennings hér á þingi, hinna nefndanna, að hún dragi úr yfirlæti sínu og sé ekki að heimta meiri völd en aðrar n. hafa. Ég mælist til þess, að málið verði tekið af dagskrá, svo að hægt sé að komast að samkomulagi við hv. fjvn. um að orða þetta á eðlilegan hátt, t. d. þannig, að sett verði í frv. heimild handa stj. til að taka lán samkv. þessum l. Ég hefi hugsað mér, að stj. gæti í vetur þreifað fyrir sér um það, hve mikið fé þyrfti að taka, og legði svo fram fyrir næsta þing beiðni um heimild til þess. Þó að þessi till. fjvn. yrði ekki samþ., mætti samt láta frv. halda áfram, og stj. gerði þá ekki annað í málinu en að koma með beiðni til þingsins um heimildina. Ég mælist því til þess við hv. fjvn., að hún taki till. sína aftur, þó að nú sé 3. umr., eða, ef ekki fæst samkomulag um það, þá að málið verði tekið af dagskrá.