03.12.1935
Efri deild: 85. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í C-deild Alþingistíðinda. (4493)

60. mál, klakstöðvar

Magnús Guðmundsson:

Ég þarf ekki mörgu að svara.

Út af orðum hv. 2. þm. S.-M. get ég tekið það fram, að ég hefi ekkert á móti því, að orðið fjvn. sé fellt úr till., ef hann vill bera fram brtt. um það. Hún nær þá enn betur þeim tilgangi, sem fyrir mér vakti, og myndi ég greiða atkv. með henni þannig.

Hann taldi varhugavert að greiða atkv. með brtt., því að ef hún yrði samþ., væri eins og fjvn. væri sett til höfuðs stj. Ég hélt ekki, að í þessu gæti falizt neinn broddur gegn stj., en ef til vill er hann enn viðkvæmari stuðningsmaður stj. en hv. þm. S.-Þ., sem er meðflm. till. Annars er það fjarri sanni, að stj. sé gerð nokkur hneisa, þó að leitað sé til fjvn. um þetta. Hitt er rétt, að fjvn. er ekki til, nema meðan þing situr, en ég geri ráð fyrir, að mál þetta yrði lagt fyrir fjvn. á næsta þingi, núna eftir áramótin, og að þá væri búið að útvega vitneskju um kostnað og annað, og fjvn. gæti þannig tekið afstöðu til málsins. Hér er því ekki verið að seilast eftir neinu óvenjulegu valdi til handa fjvn.

Hv. 4. landsk. þarf ég ekki mörgu að svara. Hann sagði, að ég viðurkenndi góðan tilgang frv. Það er rétt. En af því ályktar hann, að ég ætti að telja sjálfsagt að fylgja frv. Þar greinir okkur á. Það er ekki alltaf nóg, að mál sé gott. Ég gæti nefnt honum þúsund dæmi um framkvæmdir hér á landi, sem hlytu að teljast þarfar og góðar, en verða þó að bíða úrlausnar vegna fjárskorts. Ég hélt, að hann sem bankastjóri hlyti að þekkja það, hve margir hafa farið flatt á því að ráðast í of margt í einu. Slíkt gildir um ríkið, engu síður en um einstaklinga.