12.12.1935
Neðri deild: 97. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í C-deild Alþingistíðinda. (4503)

60. mál, klakstöðvar

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Ég hefi verið undrandi yfir því, hvernig í því myndi liggja, að hér hefir verið hlaupið fram fyrir skjöldu í því efni, að bera fram frv. um, að ríkið taki í sínar hendur klakstarfsemi í ám og vötnum, og er sérstaklega átt við laxaklak. Það er alkunnugt, að víða er þegar kominn á nokkur vísir til klaks, bæði í stöðuvötnum og straumvötnum. Auk þess er það vitað, að hafinn er sumstaðar allvíðtækur félagsskapur til að hrinda þessu máli áfram, sem er byggður upp á samtökum bænda og samstarfi þeirra manna við laxveiðiárnar, sem þarna eiga hagsmuna að gæta. Þannig er t. d. í Borgarfirði, að þar hafa bændur félagsskap, sem ég hygg, að komi á. framkvæmdum í þessum efnum á næstu árum. Tilgangur félagsins er sá, að koma á fiskirækt eða klakstarfsemi við árnar í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Þessi félagsskapur er sem sagt byggður upp á samstarfi þeirra manna, sem þarna eiga hlut að máli; hann er yfirleitt byggður upp á þeim grundvelli, sem lagður er með laxal. frá 1932, en þar er gert ráð fyrir því að styrkja slíka starfsemi, í fyrsta lagi með því að veita styrk til klakstöðvabygginga, sem nemur 1,30 kr. fyrir hvert metið dagsverk við byggingu stöðvanna. Og til þess að styðja ennþá betur að því, að slíkri starfsemi verði komið á fót, þá er gert ráð fyrir, að lán megi veita úr ræktunarsjóði til þessara framkvæmda, og svo nánari ákvæði um það, til hve langs tíma þessi lán megi vera og með hvaða kjörum þau skuli veitt. Það er sem sé þessi grundvöllur, sem lagður er, sem er undirbúningur að slíkri starfsemi. Svo kemur þetta frv. hér eins og skólinn úr sauðarleggnum. Ríkið er farið að blanda sér í þessa hluti, og ég hygg að taka á sínar herðar allar höfuðframkvæmdir í þessu máli. Það á að leggja skatt á alla laxveiðieigendur, og eru ákvæði um, að taka megi eignarnámi laxár í landinu og leiguréttindi. Eignarnámsheimildin gengur svo langt í þessu efni, að það má kaupa upp heilar laxár í þessu skyni. Ég skil satt að segja ekki, hver nauðsyn er til þessara aðgerða af ríkisins hálfu, þegar þetta mál er í fullum gangi hjá þeim einstaklingum þjóðarinnar, sem hlut eiga að þessu og hér eiga hagsmuna að gæta. Þessi félagsskapur laxveiðieigenda í Borgarfirði er nú kominn á stofn og búinn að gera ráðstafanir til þess að kjósa stjórn og annað þess háttar og hefir notið aðstoðar ráðunauts, sem til er í þessum málum, um að velja stað fyrir klakið. Þá berast þeim þau tíðindi, að fram sé komið frv. á Alþingi um, að ríkið ætli að fara að taka þetta í sínar hendur. Þá — a. m. k. í bili stöðva þeir frekari framkvæmdir í þessu efni, þangað til séð verður, hvað ofan á verður um framkvæmdir í þessu. Ég býst við, að skýringin á þessu máli liggi í því, að hér fyrir nokkru var sett á laggirnar nefnd, sem kölluð var Rauðka, eins og menn kannast við, og átti hún að gera till. um ýms atvinnuskilyrði í landinu, og því hefir verið haldið fram af ýmsum, að þessi n. hafi í raun og veru verið skipuð til þess að færa ýmsa starfsemi, sem hingað til hefir verið í einstaklinga höndum, yfir á ríkið. Og mér virðist þetta frv. alveg órækt vitni um tilgang þessarar nefndar, þar sem hér er alveg að ófyrirsynju komin fram till. um að taka þessi mál í hendur ríkisins, sem eru nú á framfaraskeiði og eru framkvæmd meira og minna eftir frjálsri samvinnu þeirra manna, sem þarna eiga hlut að máli, þ. e. lax- og silungsveiðieigenda. Þetta brýtur gersamlega í bága við þann grundvöll, sem lagður er í þessu efni með 1. frá 7932, sem ég minntist á áðan. Þar er gert ráð fyrir því að styðja samvinnu laxveiðenda til að hrinda þessu máli í framkvæmd, bæði með fjárveitingu úr ríkissjóði og auk þess að greiða fyrir þeim með lántöku til þessarar starfsemi. — Þá er ekki síður brotin gersamlega stefnan, sem kemur fram í laxal. frá 1932, þar sem gert er ráð fyrir því, að þeir jarðareigendur, sem áður höfðu laxveiðiafnot, geti leyst inn til sín þessi réttindi, og yfirleitt að greiða fyrir því, að svo geti orðið. Það er því langeðlilegast, að þessi laxveiðiréttindi fylgi jörðunum, og sé ekki ástæða til að skilja þau frá jörðunum. Ég vil eindregið mótmæla slíkum hugsunarhætti, og sérstaklega vil ég mótmæla því, að sú n., sem kölluð er Rauðka, reyni með starfsemi að draga eins og mögulegt er atvinnureksturinn úr hendi einstaklinga yfir til ríkisins. — Nú þegar hafa verið stofnuð samtök til að hrinda þessu í framkvæmd.

Ég vænti þess, að hv. landbn. taka þetta til rækilegrar athugunar, þegar málinu verður vísað til hennar.

Það virðist annars einkennilegt, þegar verið er að ráðgera slíka fiskiræktarstarfsemi, að þá sé gengið framhjá mestu laxveiðihéruðum landsins, Mýra- og Borgarfjarðarsýslum. Þar eru flestar laxár á minnstu svæði og fiskauðugri en nokkrar aðrar ár hér á landi. Því síður ætti að ganga framhjá þessum héruðum, sem þar er þegar sköpuð öflug hreyfing í þá átt að láta málið til sin taka. Samt sem áður er ætlazt til, að tekin sé lítil laxá hér í nágrenninu, án þess að nokkuð hafi verið gert til undirbúnings þessari starfsemi. Svo er ráðgert að leggja skatt á laxinn, sem vitanlega verður til þess að hefta alla starfsemi einstaklinganna í þessu efni. Ég hefi nú heyrt, að það muni ekki einungis vera áhuginn meðal sunnanmanna fyrir þessari klakstarfsemi, sem rekið hafi á eftir um að taka þessa á eignarnámi, heldur muni ráðandi mönnum í stj. þykja handhægt að hafa laxá til að bregða sér í til veiða. Getur því verið, að skemmtanahneigð þeirra, sem fara með ríkisstj., eigi hér nokkurn hlut að máli, því að þeim mun þykja gott að eiga kost á að skemmta sér þarna á ríkisins kostnað. En það virðist ekki vera þungt á metunum til framdráttar slíku málefni sem þessu að ætla að nota það til að koma fram þeirri hugsjón hinna ráðandi manna. Auk þess hefi ég heyrt, að fram séu komin mótmæli frá flestum þeim bændum, sem land eiga að ánni, gegn þessari eignarnámsheimild. Þetta álit bænda í Kjós mun verða lagt fyrir landbn.

Ég verð að líta á þetta frv. sem nokkurskonar árás á þá starfsemi, sem hafin er í því héraði, er ég er fulltrúi fyrir, og ég veit, að hv. þm. Mýr., sem hefir hér samskonar hagsmuna að gæta, mun beita sér gegn því, að kjósendur hans séu svo grátt leiknir. Ég þykist vita, að þetta mál muni mæta mikilli andstöðu, því að ég geri ekki ráð fyrir slíkum hringsnúningi í málinu síðan laxveiðilöggjöfin var samþ., að menn séu algerlega fallnir frá þeim grundvelli, er þar var lagður.

Ég treysti því, að hv. landbn. líti svipað á málið og ég geri, skoði stefnu þá, sem fram kemur í frv., sem árás á viðleitni félagsskapar, sem stofnaður hefir verið til að hrinda fiskiræktunarmálunum í framkvæmd.