29.03.1935
Efri deild: 37. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í C-deild Alþingistíðinda. (4513)

94. mál, einkaleyfi til að flytja út hrafntinnu

Jónas Jónsson:

Ég skal taka fram, að ég býst við að geta eftir fáa daga aflað vitneskju um verðmæti þessarar vöru, sem hér er um að ræða. Og ég álít, að eins og gengið er frá frv., sé hagur landsins ekki tryggður sem skyldi í þessu efni. Ég vildi þess vegna óska eftir við hæstv. forseta, að hann taki málið út, vegna þess að það getur skipt töluvert miklu máli, að þd. fái þessi gögn til athugunar.