03.04.1935
Efri deild: 41. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í C-deild Alþingistíðinda. (4531)
94. mál, einkaleyfi til að flytja út hrafntinnu
Sigurjón Á. Ólafsson [óyfirl.]:
Ég kvaddi mér hljóðs síðast þegar þetta mál var hér til umr., aðeins til að lýsa minni afstöðu. Ég hafði greitt þessu máli atkv. til 3. umr., en þá komu fram eindregnar óskir frá tveimur hv. þm. um það, að málinu yrði ekki hraðað og það kæmi ekki svo til 3. umr., að þeir gætu ekki borið fram sín rök fyrir frestun málsins. Nú skilst mér, að hér liggi fyrir þau gögn, sem gera það að verkum, að ég sé mér ekki fært að greiða þessu frv. atkv. nú við 3. umr. Þau gögn eru þau, að hér sé ef til vill um svo stórfellda hagsmuni að ræða fyrir ríkið sjálft, að það sé ekki vert að láta þetta í hendur einstakra manna. Og þar sem ég er þeirrar skoðunar, ef um veruleg verðmæti er að ræða, sem geti orðið að miklum notum fyrir ríkið, þá eigi ekki að fá það einstökum mönnum í hendur, get ég ekki greitt þessu frv. atkv.
Þessa vildi ég láta getið við þessa umr. til skýringar því, hvers vegna ég greiði atkv. á móti frv.