03.04.1935
Efri deild: 41. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í C-deild Alþingistíðinda. (4533)
94. mál, einkaleyfi til að flytja út hrafntinnu
Pétur Magnússon [óyfirl.]:
Eins og mál þetta horfir nú við er það séð, að frv. getur ekki orðið að l. áður en þingi verður frestað. Í umr. hafa komið fram ýmsar raddir og upplýsingar um það, að hér geti verið um svo mikið að ræða, að rétt sé fyrir ríkissjóð að taka e. t. v. þennan útflutning í sínar hendur, og get ég eftir atvikum fellt mig við, að frv. verði nú tekið út af dagskrá og því frestað til haustsins, eða þar til þingið kemur aftur saman. — annars get ég ekki séð, hvaða hætta væri í því fólgin að veita þetta leyfi. Eftir því, sem ég bezt veit, er þessa steintegund að finna á tveim stöðum hér á landi, þ. e. í upprekstrarlandi Rangárvallasýslu og einhversstaðar á Norðurlandi, víst í Mývatnssveit. Ég veit ekki, hverjir eiga þau lönd, þar sem hrafntinnan er, en ég býst við því, að landeigendur hljóti að fá verðið fyrir hrafntinnu þá, sem út verður flutt, að frádregnum kostnaði við að koma henni í verð, sem er vinnulaun, flutningskostnaður, farmgjöld o. fl. Ég get ekki betur séð en að landeigendur eigi að njóta verðsins fyrir hráefnið, hvort sem ríkið eða einstakir menn annast útflutning og sölu þess.