27.03.1935
Efri deild: 36. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í C-deild Alþingistíðinda. (4537)
114. mál, dragnótaveiðar í landhelgi
Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Eins og sjá má af grg. frv., er það fram borið fyrir ósk sjómanna á Akureyri, en fyrir þeim vakir, að lögfest verði undanþága um, að þeir megi nota dragnót til að veiða kola á tímanum frá 15. júní til 1. des., eins og leyft er á svæðinu frá Hjörleifshöfða að Látrabjargi. Það hafa verið gerðar tilraunir með að nota dragnót til kolaveiða á Eyjafirði, og telja sjómenn þar, að að því geti orðið almennur tekjuauki, ef þeir fá að nota hana á þeim tíma, sem nú er bannað með l. að nota hana.
Þeir færa það sem rök fyrir þessu, að atvinna sjómanna sé svo takmörkuð, að það sé nauðsynlegt að hlynna að öllu, sem skapað geti þeim atvinnu.
Mér er nú ekki kunnugt um, hve mikil brögð eru að kolaveiðum þarna, en kunnugir telja skilyrði svo góð, að það sé hægt að veiða það mikið af kola, að nokkuð megi nota til neyzlu á Akureyri, en nokkuð til útflutnings.
Ég sé ekki, að ástæða sé til að neita um leyfi á einum stað, þar sem það er leyft á öðrum stað, og hefi ég þess vegna gerzt flm. að þessu frv. ásamt 1. þm. Eyf.
Ég skal svo ekki gera frekari grein fyrir þessu en ég hefi þegar gert, en mælist til þess að lokum, að málinu verði vísað til sjútvn.