09.12.1935
Neðri deild: 94. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í C-deild Alþingistíðinda. (4558)
125. mál, lax- og silungsveiði
Frsm. (Jón Pálmason):
Það er ekki álitlegt að taka til máls, þar sem hv. þm. eru nú margir farnir af fundi; en af því að hér er ekki um nein stórvægileg deiluatriði að ræða, skal ég víkja nokkrum orðum að þeim helztu, sem komið hafa fram. Er þá fyrst að nefna ágreining milli okkar hv. þm. Mýr. og hinna hv-. meðnm. að því er snertir hugtakið „straumlína“ eða „áll“. Þeir halda því fram, að straumlína sé vísindalegra hugtak heldur en áll, en almenningur hefir miklu betri aðstöðu til að ákveða ál. Almenningur hefir fremur ráð á að mæla dýpi í vatni heldur en straumlínu; og sé orðið straumlína notað, verður það að vera ákveðin krafa að hafa straummæli, svo auðvelt sé, þegar ágreiningur ris, að skera úr honum fyrir fullt og allt.
Mér kom það á óvart, sem hv. þm. Hafnf. sagði um skilgreininguna á straumvötnum og stöðuvötnum, og þau ummæli, sem sá maður, sem við höfðum leitað til, hafði haft, en eftir hans till. var þetta takmark sett. N. mun taka þetta til athugunar, því ég býst ekki við, að frv. fari til atkv. í nótt.
Mér kom það líka á óvart, að hv. 2. þm. N.-M. lýsti því yfir, að hann væri mótfallinn því atriði að minnka möskvana, því hann hafði ekki minnzt á það með einu orði. Í því efni skal ég svara honum því, og þá um leið hv. þm. Borgf., sem talaði mjög á móti till. um að minnka möskvastærðina, þótt hann greiddi atkv. með því bæði á aukaþinginu 1933 og á aðalþ. 1934, en þetta ákvæði var þá í frv., sem fór mótmælalaust í gegnum Nd. Það, sem á veltur viðvíkjandi þessu atriði, mun vera það, að hv. þm. hafa ekki gert sér grein fyrir, hvað það er, sem liggur til grundvallar fyrir þessari till. Þetta ákvæði hefir engin áhrif á laxveiðina, heldur eingöngu á silungsveiði. Net, sem eru ekki stórriðnari en hér er gert ráð fyrir í till., taka engan lax. Það er nýtt atriði að sníða möskvastærðina við sama takmark, hvort sem heldur á að nota netin til lax- eða silungsveiða. Form. veiðilagan. gekk inn á till. á aukaþinginu 1933, þegar brtt. kom fyrst fram, og þetta ákvæði snýr eingöngu að silungsveiði, en snertir laxeiði ekki hót.
Þá er það þessi ágreiningur við hv. 1. þm. Árn., sem vill færa laxveiðitímann fram. Þetta kom til orða í n., og hygg ég, að hún sé andvíg till. hv. þm., og get ég þar vísað til röksemda hv. þm. Borgf. Ég skal aðeins til viðbótar, út af því, sem hæstv. forseti talaði um, að með þessu væri verið að eyðileggja hlunnindi þeirra, sem ofar búa við árnar, ef ekki er leyfilegt að veiða lengra fram á haustið en til 1. sept., taka fram, að ég tel þetta ekki stafa af því, að veiðitíminn hefir verið færður aftur, að minna veiðist, stafar af öðrum ástæðum, bæði því, að veiði hefir almennt minnkað, og einkum hinu, að síðan nýju l. gengu í gildi eru ýmsar skýringar óákveðnari en í eldri l., t. d. orðið „straumlína“ fyrir „áll“, sem almenningur á miklu þægilegra með að ákveða. — Vænti ég svo, að frv. verði afgr. á þessu þingi.