09.12.1935
Neðri deild: 94. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í C-deild Alþingistíðinda. (4561)
125. mál, lax- og silungsveiði
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Það mun nú ekki hafa mikla þýðingu að ræða lengur um þetta mál, en ég vildi aðeins henda hæstv. forseta, 1. þm. Árn., á, að brtt. hans um að lengja tímann fram 2 haustið brýtur alveg í bág við kenningar hans um stangarveiði. Eftir því, sem tíminn er lengdur fram á haustið, eftir því verða menn ófúsari að hallast að samkomulagi um stangarveiði. Það yrði því þrándur í götu þess, að sú aðferð verði tekin upp.
Hæstv. forseti sagði, að það væri sama, hvort laxinn væri tekinn ofarlega eða neðarlega í ánum, ef það aðeins væri gert með takmörkunum. Nú eru lögleiddar takmarkanir á veiðinni, og veit ég ekki annað en þær gildi einnig fyrir Ölfusá. Og með þeim takmörkunum verður aldrei nema lítill hluti af laxinum tekinn í ánum að neðan, en aðstaðan er alveg gerólík þar, sem hægt er að sópa honum alveg upp á hrygningarstöðunum. Og það er sú mikla hætta, sem liggur í því að framlengja veiðitímann til 15. sept. Í höndum gömlu héraðsstjórnanna var veiði ekki leyfð nema til 1. sept. Þeir vildu ekki láta veiða langt fram á haust, auk þess að laxinn er þá orðinn svo horaður, að hann er enginn fengur, borið saman við fyrr að sumrinu. Vænti ég, að hv. þm. viðurkenni, að heppilegast sé að skipa þessum málum á þann veg, að koma upp veiðifélögum, sem leyfi ekki annað en stangarveiði. En þessi brtt. tefur fyrir heildarsamkomulagi.
Hv. þm. A.-Húnv. sagði það rangt, að minnkun á möskvastærð neta hefði nokkur áhrif á laxveiðina; það væri aðeins gert með tilliti til silungsveiði, enda þyrfti leyfi ráðh. og veiðimálastjóra að koma til. En möskvastærðin tekur einnig til laxveiðinnar. Og hafi það komizt inn í l., hefir það skotizt framhjá mér áður, og þó það hafi ekki komið að klandri, er sjálfsagt að kippa því í lag nú, samhliða öðrum breyt.