14.12.1935
Neðri deild: 99. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í C-deild Alþingistíðinda. (4567)

125. mál, lax- og silungsveiði

Eiríkur Einarsson:

Það mætti auðvitað margt um þennan lagabálk segja, því sitthvað af ákvæðum hans orkar tvímælis, en ég læt það að þessu sinni liggja milli hluta og sný mér að þeim brtt., sem ég hefi borið fram við þetta frv. á þskj. 791, og þær brtt. lúta einungis að þeim skaðabótum, sem geta komið til greina við þær breyt., sem frv. hefir í för með sér, vegna skerðingar og skaða, sem eigendur veiðiréttar verða fyrir, er breyt. laganna koma til framkvæmda. Þessar brtt. eru fæstar annað en orðabreyt., sem að mestu leyti leiðir af sjálfu sér og stefna að því að gera ákvæði laganna skýrari, en þó ná nokkrar brtt. lengra. — Fyrst vil ég minnast á það, sem tekið er fram í 11. gr. hins nýja frv., að sá veiðieigandi, sem missir með öllu veiði með þeirri veiðiaðferð, er hann hefir notað, skuli fá bætur fyrir eftir mati. Við þetta ákvæði á eftir orðunum „misst hana með öllu“ vil ég bæta: „eða veiðin rýrnað“. Það segir sig sjálft og er ómögulegt að deila um það, ef veiðieigandi á á annað borð bótarétt, þá á vitanlega að bæta skaðann, hvort sem hlutaðeigandi hefir misst veiði sína með öllu eða hann hefir misst hana að meira eða minna leyti. Þetta er eftir grundvallarreglum allrar löggjafar sjálfsagt. Ég álít því, að við samningu frv. hafi aðeins gleymzt að taka þetta fram.

Í öðru lagi legg ég til, þar sem talað er um síðar í sömu málsgr. kröfu til skaðabóta, að þar komi: „fullra skaðabóta“. Sú breyt. er í raun og veru lík þeirri fyrri, að hún er aðeins orðafylling, því eigi veiðieigandi rétt til skaðabóta, þá á hann auðvitað rétt til fullra skaðabóta. Þetta vil ég ennfremur láta taka fram, til þess að ná fyllra samræmi í heildarlögunum, því á öðrum stað í laxalögunum, þar sem talað er um í 52. gr. skemmdir, sem verði á landi vegna klakhúsbygginga eða annara mannvirkja, sem lögin gera ráð fyrir, skal landeigandi eiga rétt til fullra skaðabóta. Ég tel sjálfsagt, að einnig í þessu tilfelli eigi hlutaðeigandi rétt til fullra skaðabóta, en sé það ekki tekið fram í lögunum, gæti það valdið misskilningi vegna ósamræmisins.

Þá vil ég einnig, að 2. málsgr. 11. gr. sé samræmd við önnur ákvæði laganna. Þar er talað um, að sá, sem fyrir skaða verður vegna laganna, skuli senda ráðh. skaðabótakröfu, en hann leggi hana fyrir veiðimálastjóra og veiðimálanefnd og skipi matsmenn til að meta skaðann. Ég vil, að þessu sé breytt þannig, að í staðinn fyrir, að ráðh. skipi matsmenn, komi, að ráðh. skuli ákveða matsgerð. (Forseti: Ég vil biðja hv. þm. að hafa hljótt í deildinni). Með því er sagt, að um þetta eigi að fjalla dómkvaddir menn, en eftir ákvæðum 11. gr. er helzt að skilja, að ráðh. eigi í hvert skipti að skipa matsmenn. Þessi brtt. mín svarar til annara ákvæða í l., og væri hér ósamræmi, ef hún verður ekki samþ.

Þá er aðeins eftir síðasta breyt., sem helzt getur falizt efnisbreyt., og hún er um það, hvernig umræddar skaðabætur skuli greiðast. Í frv. stendur, að skaðabæturnar skuli greiðast að hálfu leyti úr ríkissjóði, en að hálfu leyti úr sjóði viðkomandi sýslu eða sýslna. Ég hefi leyft mér að leggja til, að skaðabæturnar skuli greiddar að 3/4 úr ríkissjóði, en að 1/4 úr viðkomandi sýslusjóði eða sjóðum. Þessi brtt. er ekki borin fram af neinu handahófi, heldur er hún studd af þeirri réttlætiskennd, að hlífa beri sýslunum svo sem verða má fyrir þeim bótakröfum, sem á þær kunna að falla. Í fyrsta lagi af því, að sé um verulegar bætur að ræða, þá gæti vel svo farið, að sýslufélögin yrðu þess ekki umkomin að greiða þær. Það er á allra vitorði, að mörg sýslufélögin eiga við fátækt að búa og eru í miklum vandræðum með tekjur til nauðsynlegustu árlegra útgjalda. Þess vegna tel ég varhugavert að krefjast þess, að sýslufélögin greiði helming skaðabótanna, sem kynnu að verða allverulegar. Ég hefði helzt viljað fría sýslufélögin alveg, en ég verð að viðurkenna, að til þess skortir mig kjark og lét því nægja að koma með þá till. að lækka kvöð þeirra um helming. Á það er líka að líta, að ég geri ráð fyrir, að sýslufélögin verði ekki til kvödd viðvíkjandi þessum bótum; þær verða ákveðnar að þeim fornspurðum, og vitanlega er það ekki lítil ástæða til að vægja þeim, og því hygg ég, að nóg sé að leggja á þau að greiða 1/4 af þeim bótum, sem fram kunna að koma. Ég veit t. d. um Árnessýslu, að þar eru stórar veiðiár. Sumstaðar meðfram þeim eru jarðir, sem ríkið á. Í þeim tilfellum hittir ríkið sjálft sig fyrir. Ef það græðir á breytingunni, er eðlilegt, að það beri einnig kostnaðinn. — Ég ætla svo ekki að fara um þessar brtt. fleiri orðum. Fyrri ákvæðin eru aðallega orðabreyt. til lagasamræmingar og hið síðasta á að samþ. af því það er sanngjarnt.