14.12.1935
Neðri deild: 99. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í C-deild Alþingistíðinda. (4570)
125. mál, lax- og silungsveiði
Eiríkur Einarsson:
Þegar minnzt var á brtt. mínar áðan, sá ég við nánari athugun, að við samræmingu skaðabóta handa þeim, sem einhvers missa vegna ákvæða frv., hafði mér sézt yfir ákvæði 8. gr. um að bæta þeim skaða, sem missa af lögn. Ég vil því leyfa mér að bera fram skrifl. brtt. um það, að sá, sem missir af lögn vegna ákvæða 8. gr., fái fullar bætur fyrir. Vil ég afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt., sem er til samræmis við fyrri brtt. mínar.
Annars vil ég segja það um andsvör hv. þm. A.-Húnv., sem varð fyrir svörum f. h. hv. landbn., að mér þótti hann býsna ákveðinn á móti till. mínum. Hann skoraði á mig að taka þær aftur, ella yrði að fella þær. Mér fannst hann vera um of ákvörðunarfastur í þessu efni, samanborið við þau rök, sem hann færði fram á móti till., því þau voru sem sagt engin, önnur en þá þau, að frv. léki í þeim bláþræði, að hætta væri á, að það næði ekki fram að ganga í hv. Ed., ef brtt. væru samþ. Ég sé ekki betur en að brtt. mínar horfi til þess að bæta frv. og að hv. Ed. ætti því fremur að samþ. frv. sem það hefir verið meira fært til betri vegar. Ég skora á hv. frsm. landbn. að viðurkenna, að hv. n. hafi láðst að færa þessi atriði til viðunandi horfs, og ég vona, að hann játi, að það sé yfirsjón, og ekki fært án rökstuðnings að segja, að ekki megi breyta neinu í frv. frá því, sem það er, þegar það kemur frá hv. landbn. Ég býst við, að hann reynist þessu samþykkur, þegar ég sýni honum fram á, hver fjarstæða það er, að ekki sé ástæða til að ákveða skaðabætur fyrir veiðitap nema veiði missist með öllu, vegna þess að það sé svo erfitt að ákveða, hve mikill skaðinn sé, ef veiðin missist ekki að öllu, þótt viðkomandi verði fyrir stórtjóni. Hvað segir réttlætistilfinning hv. þm. A.-Húnv. um þetta? Ég hefi ekki heyrt meiri vitleysu sagða en að þetta sé réttlátt. Nú er gert ráð fyrir að fá sérfræðinga, sem hafa góða aðstöðu til að meta skaðann, og ég skora á hv. þm. A.-Húnv. að gera grein fyrir því, hvers vegna hann vill skjóta sér framhjá því að lagfæra slíkt handahófsákvæði. Svo er um orðið skaðabætur. Er meint með því fullar skaðabætur? Það hljóta menn að vita, að annaðhvort eiga hlutaðeigendur fullan skaðabótarétt samkv. 63. gr. stjskr. eða þeir eiga ekki kröfu á skaðabótum, — og því á þá ekki að standa þarna í lögum „fullar skaðabætur“? Í 53. gr. laxveiðilaganna er talað um fullar skaðabætur. Því á það þá ekki líka að vera orðað eins á öðrum stöðum í sömu lögum? Nei, ég legg til, að brtt. verði felldar, segir hv. þm. A.-Húnv., og þá líklega þessi líka. Væri það ekki nær að fara gætilega og semja ekki lög, sem brjóta í bágu við grundvallaratriði stjskr. um eignarrétt? Ef hv. landbn. er einlæg í málinu og vill með till. sinum ákveða, að veiðimissir skuli bættur samkv. stjskr. vorri, svo sem annar eignamissir, hvers vegna vill hún þá ekki setja í lögin, að þar, sem nokkuð takist af veiðiréttinum, skuli koma fullar bætur fyrir, heldur setja aðeins, að sá eigi kröfu til skaðabóta — ekki fullra skaðabóta —, sem missir veiði með öllu vegna ákvæðu laganna? Ég geri ráð fyrir, ef t. d. einhver hv. þm. ætti stóra jörð og missti nokkurn hluta hennar vegna ákvæða einhverra laga, sem sett væru, og eignarnám gerðist nauðsynlegt, að hann mundi þykjast eiga skaðabótarétt, þótt hann missti ekki alla eignina, og alveg það sama á við um mikil hlunnindi, og þótt ekki missist nema nokkur hluti af veiðiréttindum, þá er jafnsjálfsagt að bæta þann skaða, og bæta hann að fullu, eins og að bæta fyrir hluta af jörðum. Það er líka gert ráð fyrir endurmati á jörðum, þegar mikil skerðing verður á hlunnindum þeirra, og það er mjög eðlilegt, og ég hygg, að sumar jarðir geti rýrnað allverulega í verði, þótt ekki sé nema skertur veiðiréttur þeirra. Hv. frsm. nefndi ekki þá brtt. mína, að ráðh. „ákveði matsgerð“, í stað þess, að í frv. stendur, að ráðh. „skipi matsmenn“, en þessa brtt. á líklega að fella líka, til þess að halda frv. óbreyttu. — Um síðara atriðið í sömu brtt. minni skal ég ekki fjölyrða. Hv. 2. landsk. minntist á hana og tók í líkan streng og ég um hlutfallið á milli sýslusjóða og ríkissjóðs, og mælti með því, að sýslusjóðunum væri hlíft, enda á ríkissjóður viða stóreignir, og þar sem hann á þær jarðir, sem verða fyrir veiðimissi, þarf hann aðeins að greiða sjálfum sér skaðabæturnar. Mér heyrðist líka, að hv. þm. A.-Húnv. væri því hlynntur, að sýslusjóðunum væri hlíft, og ég vona, að allir hv. þdm. verði því hlynntir, þegar til atkv. kemur, og að þeir sjái sér fært að samþ. bæði þá og eins hinar aðrar brtt. mínar. — Læt ég svo máli mínu lokið og bið hæstv. forseta að leita afbrigða um hina skrifl. brtt. mína.