17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í C-deild Alþingistíðinda. (4581)
125. mál, lax- og silungsveiði
Jörundur Brynjólfsson [óyfirl.]:
Það er ósköp smávægilegt atriði, sem eiginlega skiptir ekki neinu máli. Það hefir komið fram ofurlítill misskilningur hjá hv. 2. þm. N.-M. út af orðinu „straumlína“. Þetta orð er sett sem nafn í orðaskýringum, og skýrt þannig, að það sé strengur eða lína eftir endilöngu straumvatni, þar sem straumurinn er mestur. Síðar í þessum l. er skilgreining á því, hvað sé aðalstraumlína, það er þar, sem dýpið er mest. Þetta ákvæði var sett til að koma í veg fyrir, að nokkurntíma verði girt yfir aðalstraumlínu, því að slíkt er hættulegt fiskigöngum, og því hefir nú verið bjargað. Mér þykir vænt um, að landbn. hefir fallizt á þessar till. Það er aðalatriði, en ekki þetta, sem mönnum ber nú á milli. Ég vona, að mönnum sé það ljóst, að það er ekki alveg sama, þótt straumlína sé, hvaða straumlína það er; það getur verið sama, ef áin fellur í einum ál. En ef áin fellur í mörgum álum, þá eru straumlínurnar margar, en einhversstaðar er aðalstraumlínan.
Ég vil aðeins út af ummælum hv. þm. A.-Húnv., þegar hann var að svara hv. 11. landsk., votta, að það er alveg hárrétt, sem hv. þm. hélt þar fram. Þegar löggjöf er sett, sem að einhverju leyti kann að skerða hagsmuni manna frá því, sem áður var, aðeins ef það er gert með hagsmuni almennings fyrir augum, þá ber mönnum ekki bætur fyrir slíkt. Og hér er um það að ræða. Ég vil benda hv. 11. landsk. á, að þessi lagfæring er nauðsynleg, og er illa farið, ef hún verður til þess að fella frv.