15.11.1935
Efri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 865 í C-deild Alþingistíðinda. (4618)

145. mál, skotvopn og skotfæri

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Ég gerði nokkrar aths. við frv. þetta í gær, en forsrh. var ekki við þá, en nú hefir hann gert nokkra grein fyrir því, í hvaða tilgangi frv. er borið fram. Það má vel vera, að ekki sé ástæðulaust með öllu að setja einhverjar reglur hér að lútandi. En þó að maður líti svo á, að ástæða sé til að takmarka heimild manna til þess að bera vopn, þá álít ég, að í þessu frv. eins og það er séu þær takmarkanir allt of miklar. Hv. frsm. — ég ætla að það hafi verið hv. 2. þm. S.-M. — gat þess, og lagði mikla áherzlu á, að þetta væri ekki annað en umgerð utan um reglugerð. Þetta er rétt og það hefir mér verið ljóst frá upphafi. En það er hægt að skera þá umgerð svo þrönga, að í henni rúmist ekki annað en lögin sjálf. — Í 2. gr. eru ákvæði um það, að þeim einum skuli veitt þetta leyfi, sem sýna skilríki fyrir því, að þeim sé það nauðsyn atvinnu sinnar vegna. Þegar lög mæla svo fyrir, get ég ekki betur séð en að það sé bundið við að setja reglugerðina í samræmi við þetta ákvæði l. Nú er það svo, eins og ég setti fram í gær, að það eru fáir menn á landinu, sem geta sýnt skilríki fyrir því, að þeim sé það nauðsyn atvinnu sinnar vegna að hafa skotvopn. Það má segja, að það sé nauðsynlegt fyrir þá menn, sem lifa á kvikfjárrækt, að hafa skammbyssu til þess að slátra fé. En fyrir utan þetta er naumast hægt að segja, að mönnum sé nauðsyn að hafa byssu. Hinsvegar er það til afarmikilla þæginda, og fyrir suma talsverð tekjuaukning af veiðum, og þá sérstaklega rjúpnaveiðum. Það er líka sérstaklega nauðsynlegt fyrir menn í sveitum að hafa byssu til taks, ef á þarf að halda, og eins og hv. 1. þm. Reykv. sagði, hefir það verið svo að segja undantekning, að ekki sé til byssa á bæ. Nú skilst mér, að eftir ákvæðum frv. eigi að svipta þessa menn réttinum til að eiga byssu, og taka þær af þeim, sem nú eiga þær. Ég vil nú spyrja hæstv. ráðh., hvernig eigi að fara með þessar byssur. Ekki verða þær þó teknar án endurgjalds. Nú er fjöldi manna, sem eiga byssu, sumpart til skemmtunar og sumpart til þess að fá einhverjar aukatekjur af veiðum. Auk þess margir, sem miklar kyrrsetur hafa og vilja fara á veiðar sér til hressingar, því að eins og ég gat um í gær, þá er skotlistin góð íþrótt, sem æfir höndina, augað og hugann. Er meiningin, að ríkið kaupi allar þessar óþarfa byssur á landinu? Og er það meiningin með frv., að það eigi skilyrðislaust að neita mönnum um að hafa byssur til skemmtunar eða æfinga? Er ekki hægt að ná þeim tilgangi, sem ráðh. ætlast til, þó að þessu ákvæði sé breytt og þó að mönnum, sem engin ástæða er til að ætla, að misnoti byssur, sé leyft að hafa þær, þó að þeir noti þær ekki í atvinnuskyni? Þetta vildi ég, að hæstv. forsrh. og n. vildi athuga nánar til 3. umr. — Hv. frsm. virðist hafa skilið orð mín þannig, þegar ég var að tala um, að það þyrfti nánar að skilgreina orðið vopn, að ég væri beinlínis að hártoga þetta orðalag í frv. Það er öðru nær. Ég segi eins og er, að þarna í 2. málsgr. 1. gr., þar sem segir svo: „Í reglugerðinni skal ennfremur kveðið á um heimild manna til að hafa vopn í vörzlum sínum, og skulu þau ákvæði einnig ná til þeirra vopna, skotfæra, eldvopna o. s. frv., sem eru í vörzlum einstaklinga, félaga og firma við gildistöku laga þessara“, er ómögulegt að sjá annað en að hér sé eingöngu átt við skotvopn. En sannleikurinn er sá, að það er alveg eins mikil ástæða til þess að hindra menn frá að bera á sér annarskonar vopn, eins og t. d. lagvopn og annað slíkt. Hæstv. forsrh. tók fram og lagði áherzlu á, að lög svipuð þessum væru til í öllum löndum Norðurálfunnar. Ég verð að játa, að mér er ókunnugt um þessa löggjöf í nágrannalöndunum, en held þó, að óvíða séu jafnströng ákvæði eins og hér ræðir um. Og ég er hræddur um, að Englendingar kynnu því illa að mega ekki bera byssu nema til atvinnu, eins og skotlistin er vinsæl þar í landi. Ég get ekki skilið, að slík löggjöf geti gilt þar, og ég hygg helzt, að þau séu óvíða svona ströng, og jafnvel hvergi.