21.11.1935
Efri deild: 75. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í C-deild Alþingistíðinda. (4626)

145. mál, skotvopn og skotfæri

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Ég gerði fyrirspurn til hæstv. forsrh. við 2. umr. um hinn eiginlega tilgang þessarar löggjafar, því sá tilgangur, sem tilgreindur er í grg. frv., er í raun og veru einskis virði. Og þau svör, sem hæstv. forsrh. gaf mér í allýtarlegri ræðu, hafa sannfært mig enn betur um það, hvílík fjarstæða þetta frv. er. Ég held, að það hafi varla komið fram á þingi öllu fánýtara frv. heldur en þetta skotvopnafrv., svo framarlega sem ekki liggja einhverjir viðburðir á bak við þetta, sem stj. hefir komizt að og ætla mætti, að stofnuðu þjóðfélaginu í hættu.

Aðalástæður hæstv. ráðh. voru þær, að hættulegt væri að láta unglinga og innbrotsþjófa hafa byssur. Ég býst við því, að hver maður, sem les þessa löggjöf, sjái, að hún getur á engan hátt hindrað þetta. Hv. frsm., sem andmælti brtt. hv. þm. N.-Ísf. um það að banna unglingum að kaupa byssu, sýndi fram á það með góðum rökum, að þó unglingar mættu ekki kaupa byssu, þá gætu þeir fengið hana lánaða. En á ekki þessi röksemd eins heima um alla þessa löggjöf? Getur ekki unglingur alveg eins farið sér að voða með byssu, sem búið er að skrásetja? Á skrásetningin kannske að koma í veg fyrir, að hægt sé að misnota byssu og fara sér að voða með henni? Nei, þetta er ekkert nema pappírsgagn. Ég býst við því, að ef gerð væri skrá yfir slys af skotvopnum, þá kæmi það fram, að flest tilfellin hefðu ekki stafað af því, sem hægt væri að kalla ógætilega meðferð. Sem betur fer eru slík slys mjög fátíð. Algengustu slysin eru þau, sem koma fyrir á rjúpnaveiðum í hálku eða af því að menn vara sig ekki á því að byssa sé hlaðin, en ekki vegna þess, að unglingar séu að fikta með þessa hluti.

Hvað viðvíkur hinni aðalástæðunni, sem hæstv. forsrh. bar fram, að innbrotsþjófar gætu útbúið sig með byssu til þess að verja sig, ef að þeim væri komið, þá vil ég bara spyrja hv. meðmælendur þessa frv., hvernig þessi löggjöf geti komið í veg fyrir slíkt. Þetta er svo mikil dæmalaus fjarstæða, að það er alveg merkilegt, að menn skuli geta fengið sig til að bera annað eins fram. Hvernig í ósköpunum ætti skrásetning skotvopna að geta komið í veg fyrir það, að innbrotsþjófur ætlaði að verja sig með byssu? Það mundi enginn maður, sem hefði byssu með höndum, fara að gefa þá ástæðu upp, að hann ætlaði að brjótast inn og verja sig með byssunni, ef til kæmi. Og það væri undarlegur innbrotsþjófur, sem ekki hefði nokkur ráð með að útvega sér byssu vegna þess að þær væru skrásettar. Nei, í þessari löggjöf er engin trygging fyrir neinu af því, sem hæstv. ráðh. var að tala um í sinni ræðu. En það einasta, sem hægt væri að ná með þessari löggjöf, er það, að hægt væri að koma í veg fyrir mikið vopnasafn. Og þá mundu brtt. hv. þm. N.-Ísf. skilgreina þetta alveg rétt, því í þeim er heimild til þess að banna mönnum að safna skotvopnum í þeim tilgangi að nota þau sem hernaðargögn. Þetta er náttúrlega fullkomin ástæða til löggjafar, en hún á þá að segja það, sem hún meinar.

Hæstv. ráðh. er því miður nú fyrst að koma inn í d. Ég get náttúrlega ekki farið að endurtaka allt það, sem ég hefi sagt, en ég get sagt hæstv. ráðh. það í örfáum orðum, að ég skil ekki, hvernig þessi löggjöf ætti að geta komið í veg fyrir, að unglingar gætu náð í byssu eða innbrotsmenn útbyggju sig með vopnum, ef þeim skyldi detta það í hug. Ég vil því eindregið mæla á móti því, að frv. verði samþ. í því formi, sem það nú liggur fyrir. Ég mun greiða atkv. með brtt. 17. þm. N.-Ísf. um heimild til þess að banna innflutning á hverskonar hernaðartækjum, því það er fullkomlega réttmætt.