21.11.1935
Efri deild: 75. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 874 í C-deild Alþingistíðinda. (4631)
145. mál, skotvopn og skotfæri
Magnús Jónsson [óyfirl.]:
Það er ekki von, að hæstv. ráðh. heyri þær ástæður, sem færðar eru fram móti frv., þegar hann er ekki inni, og það var hann ekki, þegar ég talaði síðustu orðin. Bæði við 2. umr. og nú hafa verið færðar fram gildar ástæður á móti frv. Það hefir verið bent á, að það væri gagnslaust, og ef það er gagnslaust, eru það nægilegar ástæður á móti frv. Þar að auki fylgir því talsverður kostnaður. Það mun ekki vera minna en 20—30 þús. skotvopn, sem sjálfsagt yrði að leyfa í landinu, þó að frv. næði fram að ganga. Ég sé ekki betur en að flest sveitaheimili yrðu að hafa skotvopn, fjárbyssu, og sjálfsagt líka haglabyssu. Og vilji einhver eiga kúlubyssu fyrir stærri veiðar, þá eru komin þrjú skotvopn á heimili. Að skrásetja þetta allt er mikið verk og hefir í för með sér mikinn kostnað. Það verða að koma skrásetningarmenn um allar sveitir, náttúrlega skotfæraskrásetningarstjóri ríkisins o. s. frv. Þetta hlýtur að verða, ef lögin eiga ekki að verða tómt pappírsgagn. Þá er líka á móti þessari löggjöf, að hún orsakar mikla skriffinnsku, og önnur óþægindi. Það er því ekki hægt að segja, að ekki séu ástæður á móti frv. Og þó að engar ástæður væru á móti því, þá er hitt nóg, ef ekkert mælir með því. Það er einkennilegt að heimta sannanir fyrir því, hvað sé á móti einhverju máli, ef ekki er hægt að færa neina ástæðu með því, og málið geti verið tóm heimska. Og hæstv. ráðh. hefir ekki sýnt fram á eina einustu ástæðu til að setja svona löggjöf. Hann talaði um, að með þessu megi koma í veg fyrir slys af skotvopnum. En ekki eitt einasta af þeim slysum, sem hafa orðið, hefði verið hægt að hindra, þó að byssur hefðu verið skrásettar. Hættan á slysum minnkar ekkert við það. Hv. þm. N.-Ísf. benti á, að ef koma ætti í veg fyrir slys, yrði að setja ákvæði um meðferð á skotvopnum, en það er ekki gert í frv. (lngP: Hvernig les hv. þm. fyrirsögn frv.?). Það er ekki nóg, þó eitthvað standi í fyrirsögninni, þegar ekkert ákvæði er í sjálfum greinum frv. En ég vil skora á hv. þm. að benda mér á eitthvert ákvæði, er t. d. banni mönnum að selja öðrum byssur eða leggi sekt við því að skilja eftir skot í byssu. En það er ekki hægt að leggja sekt við slíku, nema það sé nánari útfærsla á því í lögunum. Þó ég lesi hér greinar frv., þá er þar ekkert ákvæði, sem heimilar sektir við því, sem ég nefndi. Og það er galli á frv., þegar það fer þannig framhjá marki. Hæstv. forsrh. er enn með það sama, að þetta sé til að koma í veg fyrir, að unglingar fari með skotvopn. Hann talaði um, að þeir hefðu oft orðið fé að bana, og hann ætti nú manna bezt að þekkja, hvað, hætta getur stafað af því fyrir fuglalífið, ef menn fara ógætilega með skotvopn. Hann minntist á sitt eigið slys, og var að sanna, að hann hefði ekki skotið á fuglinn. Það er ósköp sennilegt, hann skaut, fuglinn lá dauður, en svo segist hæstv. ráðh. ekki hafa skotið á hann. Ég held því, að hæstv. forsrh. hafi fengið orð fyrir annað frekar en skotfimi. Hann ætlaði sér að skjóta í mark, en hitti í þess stað fuglinn. Það er svipað og með söguna af Diogenes, er hann stóð við markið, er maður var að skjóta, og sagðist gera það af því, að það væri eini bletturinn, þar sem óhætt væri að standa.
Hæstv. ráðh. sagði, að það ætti með þessu frv. að koma í veg fyrir, að misindismenn fari með skotvopn. Á þá að heimta siðferðisvottorð líka? Eða hvernig á að fara að? Ég held það sé lítill misindismaður, sem vill nota byssu, en hefir ekki einhver tök á að ná sér í hana.
Ég vil svo ekki orðlengja frekar um jafneinfalt mál; ég vildi aðeins sýna fram á, hvað nauðahégómlegt það er, og það er nægileg ástæða á móti því. Ég tel það óvirðingu fyrir Alþingi að setja lög, sem eru gagnslaus og ekkert tilefni er til. Það er fullgild ástæða á móti frv.