12.03.1935
Efri deild: 23. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (4667)
72. mál, heimilisfang
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Í byrjun þessa þings bar hv. þm. Dal. fram frv. til l. um breyt. á útsvarslögunum. Af aths. við frv. og ræðu þeirri, sem hann lét fylgja frv., mátti sjá, að það, sem fyrir honum vakti, var að fyrirbyggja það, að menn gátu talið heimilisfang sitt hvar sem skyldi og þeim sýndist. Með tilliti til þessa ákvað allshn. að flytja till. til þál. um undirbúning lagasetningar um heimilisfang. N. leit svo á, að ef hægt væri að fá góða löggjöf um þetta efni, þá myndu hverfa þeir annmarkar á útsvarslöggjöfinni, sem hv. þm. Dal. vildi bæta úr með sínu frv.
Það er svo, að í íslenzkum l. eru ekki til skýr fyrirmæli um það, hvar menn skuli hafa heimilisfang. Víða í ísl. lögum er gert ráð fyrir, að menn skuli eiga lögheimili, en venjulega er ekki tekið fram, hvað skuli teljast lögheimili, og eru engar skorður við því settar, að menn geti talið sér lögheimili á hinum ólíklegustu stöðum. En þetta á sér stað t. d. þegar menn telja heimili sitt í annari sýslu en þeirri, sem þeir stunda atvinnu í, þó að þeir hafi aldrei komið þar allt árið. Þetta gera þeir til þess að koma sér undan gjöldum þar, sem þeir hafa atvinnu. Þetta getur verið hættulegt fyrir þau sveitarfélög, sem hafa mikil sveitarþyngsli, því það eru þau, sem verða helzt fyrir barðinu á þessu, en þau eiga auðvitað erfiðast með að standast slíkt. Úr þessu er löggjöf um heimilisfang ætlað að bæta. Hún þarf ekki að vera umfangsmikil, en þess verður að gæta, að þrengja ekki kosti manna um of um leið og reynt er að varna því, að menn hringli hingað og þangað til þess að komast undan lögboðnum gjöldum.
Ég vænti þess, að hv. d. sé sammála um, að það sé rétt, sem allshn. leggur til, en það er að skora á ríkisstj. að undirbúa löggjöf um þetta efni.