12.03.1935
Efri deild: 23. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (4669)

72. mál, heimilisfang

Páll Hermannsson:

Ég ætla nú ekki að fara að bera hönd fyrir höfuð stj., en ég vildi aðeins til viðbótar því, sem hv. frsm. benti á, geta þess að í undirbúningi er breyt. á framfærslulöggjöfinni. Ég veit nú ekki, hvernig henni reiðir af, en á því stigi, sem það mál er nú, þá mun vera gert ráð fyrir, að framfærsluskyldan hvíli á sveitunum, og má þá líta á það atriði sem viðbótarástæðu fyrir því, hversu nauðsynlegt það er, að glögg ákvæði séu um heimilisfang. Ég bendi á þetta til þess að sýna, hversu mikil þörf er á löggjöf um þetta efni.