25.03.1935
Sameinað þing: 6. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (4701)

112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Ég sé ekki ástæðu til að svara hv. þm. V.-Húnv. mörgum orðum. Þetta er sama ræðan, sem hann flytur hér í þd. upp aftur og aftur, og hjakkað á sömu orðunum: ég legg til, ég krefst o. s. frv. — Þetta gengur svo langt fyrir hv. Bændafl.mönnum, að þeir virðast því fegnastir, að ríkisstj. verði ekki við þeirra kröfum, enda eru þeir farnir að hlæja að sjálfum sér. Hv. þm. endaði ræðu sína á því, að stj. ætti að sjá sjálf fyrir tekjum til þess að greiða kjötuppbótina. Hann vildi ekki afla tekna til þess á þann hátt, sem till. fer fram á. Hv. þm. er með sífelldar kröfur um hækkun á útgjöldum úr ríkissjóði, en jafnframt hefir hann reynt að spyrna fæti við öllum till. til tekjuöflunar, sem eiga að gera það mögulegt fyrir ríkissjóð að framkvæma þessar greiðslur til stuðnings landbúnaðinum. Í þessu sambandi má líka benda á sanngirnina og samræmið í till. hv. þm. um það, á hvern hátt eigi að tá þetta fé, þar sem hann segir í síðustu ræðu sinni, að það komi ekki svo mikið að sök, þó að tekið verði 10% af áætluðum framlögum úr ríkissjóði til þjóðvega, en finnst hitt aftur á móti sérstaklega ósanngjarnt, að teknar verði þær 50 þús. kr., sem ætlaðar eru til samvinnubyggða, bara vegna þess, að ekki er á nokkurn hátt skert framlagið til verkamannabústaða í kaupstöðum. Frumlög til þjóðvega og saminnubyggða má telja, að komi að mestu sveitunum til góða og landbúnaðinum, en hið síðartalda verður ekki notað á þessu ári, af því að lögin um samvinnubyggðir verða ekki afgr. fyrr en á síðari hluta þingsins í haust. — Finnst hv. þm., ef hann athugar það niður í kjölinn, að það sé nú svo sérstaklega ósanngjarnt, þó að ekki sé verið að seilast eftir fjárframlögum, sem verkamennirnir í kaupstöðunum eiga að fá, til þess að veita uppbót á afurðaverði bænda? Nei, þessi tilhögun, sem ákveðin er í þáltill., er alveg með ráðnum huga gerð á þennan hátt. Þegar farið er að færa til á fjárl., þá verður að taka tekjur af þeim liðum, er teljast þeirri stétt og atvinnugrein til hagsbóta, sem á hinn bóginn á að njóta þeirrar uppbótar, er greidd verður. Það þýðir ekkert að draga fjöður yfir það, að ef jafnað er á milli liða á fjárl. eftir á, þá verður það gert á þann hátt, að raskist til muna hlutföllin á milli þeirra fjárframlaga, sem hver stétt á að njóta fyrir sig. Ef fyrir lægi till. um að bæta að einhverju leyti fyrir þeim, sem í kaupstöðunum búa þá yrði að færa fé á milli til. þess á sama hátt, frá þeim fjárl.liðum, sem tilheyra kaupstaðabúum. — Eins og ég vék að áðan, þá verður vegna þingfrestunarinnar ekki hægt að ganga frá lögunum um nýbýli og samvinnubyggðir fyrr en á haustþinginu, og geta þau því ekki komið til framkvæmda fyrr en 1936. Þess vegna, þótti fært að taka þá upphæð, sem til þeirra er ætluð, til uppbótar á kjötverðinu. En hitt er fullkomlega ljóst, að eins og kjötverðið er nú lágt á erlendum markaði, þá verður þessi verðuppbót að sitja fyrir öllu öðru.

Ég bjóst náttúrlega við því, að hv. þm. V.-Húnv. mundi reyna að gera yfirboð eins og fyrri daginn. Það er sama sagan og í vaxtaspursmálum landbúnaðarins. Þar þótti honum einnig við eiga að gera yfirboð út í bláinn, án þess að nokkur till. fylgdi um tekjuöflun til framkvæmda vaxtalækkuninni. Nú er svo komið, að engum, sem fylgist með þessum skrípaleik hv. þm., dettur í hug, að nokkur alvara fylgi tylliboðum hans. Þessar yfirboðstill. hv. þm. munu því ekki reynast eins fengsælar beitur fyrir kjósendur í sveitunum og hann gerir sér vonir um. Fólkið í sveitunum mun sjá það og skilja, að fjármálastjórnin, sem þessi hv. þm. hefir. stutt undanfarin ár og samþ. hefir tillögur hans og afgr. fjárlög á undanförnum þingum með 11 millj. kr. áætluðum útgjöldum, en 17 millj. kr. útgjöldum á tilsvarandi landsreikningi, er ekki til fyrirmyndar.