01.04.1935
Sameinað þing: 7. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í D-deild Alþingistíðinda. (4711)

112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Ég á hér brtt. á þskj. 344, og fer hún í þá átt, sem ég lýsti hér við l. umr. þessa máls. Í till. er gert ráð fyrir, að þetta fé verði fengið með því að draga 10% af framlagi til nýrra akvega og 50000 kr. af framlagi til Búnaðarbanka Íslands, þ. e. a. s. af þeim hluta, sem heimilt er að verja til samvinnubyggða. — Þó margar ástæður séu til þess, vil ég samt sem áður ekki mótmæla því, að dregið sé úr framlagi til þjóðveganna; ég býst við, að víðar verði við að koma með niðurskurð á fjárl., ef ekki á allt að lenda í öngþveiti, og vil því ekki leggja til, að horfið sé frá því ráði, sem lagt er til í till. sjálfri, ef þá er látið við þetta sitja og ekki dregið meira af því fjárframlagi heldur en þar er gert ráð fyrir. En hitt þykir mér órétt, að aðeins sé klipið af þeim lið, og vil taka annan lið, sem er 1/2 millj. til atvinnubóta í kaupstöðum. Sýnist mér ekki ósanngjarnt, að þar verði klipið af líka, þegar rík þörf er til sparnaðar, og er ekki sízt ástæða að koma við þann lið, þar sem ákveðið er, að 100 þús. kr. af honum megi verja til stofnunar nýbýla. Nú hefði það verið forsvaranlegt, ef hæstv. ríkisstj. hefði ráðizt á þann lið, en látið vera að eiga við tóbaksverzlunarhagnaðinn. En nú. þegar ég sé, að þessi liður hefir ekki verið notaður til nýbýlastofnunar, þá sýnist mér ekki ósanngjarnt, að af þessum lið séu tekin 10% eins og af framlagi til akveganna, þar sem verið er að krukka í tóbakssöluhagnaðinn á annað borð. Hv. 1. þm. Skagf. taldi, að það væri vissa um það, að sá liður yrði ekki borgaður út. Ég veit ekki, hvað hann hefir haft fyrir sér. Svo framarlega sem borgaður er út annar samskonar liður, þá er engin ástæða til að halda, að hinn liðurinn, sem nákvæmlega eins er ástatt um, verði ekki borgaður líka Hagnaðurinn af tóbakseinkasölunni á að skiptast í tvennt á milli þessara lið., og ef tekið er af öðrum þeirra, þá er ósanngjarnt að taka ekki af þeim báðum. Nú vil ég leggja til, að tekin séu 20% af þeim hagnaði tóbakseinkasölunnar, sem skipt er á milli beggja þessara liða, og verða þá 20 þús. kr. teknar af hvorum lið, og þá haldið því rétta hlutfalli, sem ver. á milli þessara tveggja sjóða. Þetta sýnist mér sjálfsagt og nauðsynlegt til þess að halda í gildi ákvæðum tóbakseinkasölulaganna um, að ágóðanum sé skipt jafnt á milli þessara tveggja aðilja.

Mér þótti vænt um að heyra yfirlýsingu hæstv. forseta, þar sem hann hélt því fram, að kjötuppbótin væri samskonar styrkur og sá, sem veittur er til atvinnubóta í kaupstöðunum. Hér er um að ræða atvinnubótasyrk til bænda í sveitum alveg á sama hátt og sá styrkur er veittur til verkamanna í kaupstöðunum. Og nú, þegar örðugt er að láta einstaka liði fjárl. haldast og talað er um niðurskurð á þeim, þá virðist eðlilegt að taka af því fé, sem ríflega er áætlað, á lið, sem ekki er gert ráð fyrir, að notaður verði nema að litlu leyti. Þessar 50 þús. kr. eru ekki nema helmingur af því, sem gert er ráð fyrir, að renni til smábýlanna, og mér finnst réttmætt, að þetta gangi til að létta undir með atvinnubætur til smábændanna. Mér finnst þessi skilningur á kjötuppbótinni sé einmitt rök fyrir því, að féð eigi að taka jafnt af þessum tveimur liðum, framlagi til akvega og atvinnubótaframlagi til kaupstaðanna, til þess að gera ekki upp á milli þessara tveggja aðilja. Ég býst við, að hæstv. ríkisstj. geti ekki annað en fallizt á, að þetta er eðlilegt, þar sem hún sjálf hefir skapað fordæmi með uppbótinni til sjómanna í vetur, sem tekin var af óskiptu fé ríkissjóðs. Það féllu þau orð hjá hæstv. landbrh., að þessa kjötuppbót yrði að taka frá landbúnaðinum, því það væri engin von, að kaupstaðirnir féllust á, að það yrði tekið frá þeim. Á sama hátt má segja, að í vetur hefði uppbótin til sjómannanna átt að takast af atvinnubótafénu eða einhverju öðru, sem átti að verja til hagsbóta kaupstaðarbúum, en þetta var ekki gert og því hlýtur þingið að taka þá ákvörðun nú að láta þetta dreifast sem jafnat milli sveitanna og kaupstaðanna. Fyrst ekki er hægt að stofna til beinna tekna, heldur verður að grípa til niðurskurðarráðstafana, þá sé ég ekki, að önnur réttlátari leið verði fundin en sú, sem lagt er til að farin sé í till. minni á þskj. 344.