02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í D-deild Alþingistíðinda. (4716)

112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Það var eitt atriði í umr., sem kom fram síðast þegar þetta mál var til umr., sem mig langaði til að minnast á, til þess að draga þar fram nýtt sjónarmið. Það var viðvíkjandi prentun á umræðuparti Alþt.

Þetta mál hefir verið hér til umr. áður og ég hefi verið í vafa um, hvað rétt væri að gera í því. Það er ekki hægt að neita því, að það er út af fyrir sig réttara að prenta umræðupartinn, ef nógu fé er úr að spila. En ég vil benda á það, að kostnaður við prentun þingtíðinda er hlutfallslega miklu meiri hjá okkur en nokkurri annari þjóð. Þing hér stendur hlutfallslega miklu lengur en annarsstaðar og prentun umræðuparts Alþt. er margfalt meiri liður á landsreikningum okkar en hjá öðrum þjóðum. En að ég frekar hallast að því og mun fylgja því, að hætt sé að prenta umræðupart þingtíðindanna, er samt alls ekki af sparnaðarástæðum, heldur af því, að ég held, að það væri umbót á þingtíðindunum, ef hætt væri að prenta umræðupartinn. Ég hefi fengizt þó nokkuð við að lesa þingtíðindin, kannske meira en flestir aðrir. Ég hefi skoðað Alþt. til þess að draga út úr þeim sögu eins og annars. Ég hefi gert þetta tvisvar sinnum og ég hefi orðið undrandi yfir því, hve feikilega mikið skilur á milli umræðupartsins og skjalapartsins. Skjalapartur Alþt. er einhver sú allra merkilegasta söguheimild, sem hægt er að fá, og þar má engu sleppa, en mér hefir reynzt umræðuparturinn mjög ónýtur sem heimild. Það er undantekning, ef þar kemur nokkuð fram, sem upplýsir málin. Það getur komið fyrir einstöku sinnum í framsöguræðu eða þegar mælt er fram með brtt., sem skrifleg greinargerð er ekki látin fylgja. En ef hætt væri að prenta umræðupartinn, þá yrði skrifuð ýtarlegri grg. með frumvörpum og nefndarálitum, og þá að sjálfsögðu rétt að skrifa stutta grg. með öllum brtt., sem væru fluttar. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að skjalaparturinn þannig útbúinn yrði margfalt meira virði en umræðuparturinn hefir verið og er nú. Ég hefi oft saknað þess, sem fer þó vaxandi, að menn kasta höndunum til skjalapartsins og skrifa of ófullnægjandi greinargerðir og segja svo „nánar í framsögu“, og svo verður að vinsa úr umræðupartinum.

Það hefir verið talað um, að umræðuparturinn væri nokkurt sýnishorn af mælsku þingmanna, en ég held satt að segja, að þingskrifurum ólöstuðum, að það sé æðimismunandi, sem þeir ná yfirleitt úr ræðum þingmanna; a. m. k. hefir mér fundizt það, þegar ég hefi verið að bera saman ræður í gömlum Alþt. við það orð, sem farið hefir af mælsku manna, að það væri mjög undarleg mynd af mælsku, sem þar kæmi fram. Benedikt Sveinsson þótti einn bezti ræðumaður sinnar samtíðar, en ræður hans í þingtíðindunum bera ekki vott um þessa mælsku. Yfirleitt eru þær ekki fjörmiklar og sundurlausar. Sú mynd, sem þingtíðindin sýna af honum sem mælskumanni, er áreiðanlega afarskökk. Hann hefir sjálfsagt talað afarhart og haft gott orðaval; hitt veit ég ekki, hvort hann hefir byggt ræður sínar eins vel upp eins og þær voru áhrifamiklar.

Um hitt atriðið, hvort umræðuparturinn verði dómurum að miklu liði, hefi ég enga reynslu og skal ekki um það dæma; það má vera, að þeir geti stundum fengið þær stuðning fyrir skilning á lögum, en ég hygg, að þar komi í staðinn ef menn skrifa ýtarlegar greinargerðir með frumvörpum og tillögum sínum.

Það er augljóst eftir þessu, að ef þingtíðindin yrðu þannig útbúin, þá yrði sparnaðurinn af því að hætta að prenta umræðupartinn alveg hverfandi. Vegna þess hve skjalaparturinn lengdist. En eins og ég sagði í upphafi, þá er þetta ekki gert í sparnaðarskyni, heldur held ég, að með þessu móti yrðu þingtíðindin meira virði en áður. Hitt er annað mál, að ég tel rétt að skrifa áfram ræður þingmanna, svo að þær verði geymdar, því það er eins með þetta eins og með fjandann, þegar hann var tekinn út úr sálmabókinni, en svo settur þar inn aftur. Þá var einn góður prestur spurður að því, hvers vegna hann hefði verið settur aftur inn í sálmabókina, og presturinn varaði með þessum orðum: „Enginn veit hvað átt hefir fyrr en misst hefir“. Eins getur verið, að þegar hætt væri að prenta umræðupart Alþt., þá færu menn að sjá eftir honum, og þess vegna væri þá rétt, að hann væri einhversstaðar til. Hinu atriðinu vil ég mæla á móti, að það verði meiri kostnaðar að prenta umræðupart Alþt. fyrir mörg ár í einu. Kostnaðurinn verður ekki meiri. Það verður aðeins tilflutningur á kostnaði, og raunverulega verður hann minni að því leyti, að síðari peningar kosta minna en þeir fyrri, og þetta yrði þá aðeins dráttur á kostnaði, ef menn sæju svo mikið eftir umræðupartinum, að farið yrði að prenta hann aftur. Auk þessa má benda á það viðvíkjandi því að hætta við prentun umræðupartsins, að aðstaðan er orðin æðimikið breytt frá því, sem áður var. Nú eiga menn yfirleitt kost á því að fá prentaðar þær ræður, sem svo mikið er til vandað og svo mikil vinna er lögð í, að þeim þykir máli skipta að koma þeim á framfæri. Blöð eru fús til að flytja viturlegar og vel byggðar ræður, og auk þessa er svo útvarpið, sem ber út til fólksins umræður frá hinu háa Alþingi.

Mér hefir verið sagt — og hefi það fyrir satt —, að þingtíðindin séu lítið lesin og að sá pólitíski skóli muni ekki missa mikið, þó að hætt væri að prenta umræðupart þeirra. Þeir greindu menn, sem virkilega vilja fylgjast með málunum. munu kynna sér meira skjalapartinn. Nú eru fréttir frá Alþingi birtar í útvarpinu, og er þar eingöngu skýrt frá skjölum, og ég hefi orðið þess var, að þeir hlustendur, sem fylgjast nákvæmlega með fréttum útvarpsins, eru svo vel heima í málunum, að það er sýnilegt, að umræðuparturinn er ekki nauðsynlegur til þess að menn geti fylgzt með. Ég vil fyrir mitt leyti nota þetta tækifæri, sem býðst, og greiða atkv. með því, að prentun á umræðuparti Alþingistíðinda talið niður, og spara með því eitthvað upp í þann kostnað, sem ætlazt er til, að með þessu sé greiddur.