02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í D-deild Alþingistíðinda. (4717)
112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt
Pétur Ottesen:
Eitt af því, sem hefir komið greinilega fram við þessar umr., einkum í ræðum hv. 4. landsk. og hv. 9. landsk., er þessi alþekkta andúð gegn því að spara. Hún kemur greinilega fram í því, sem sagt hefir verið um þessa sjálfsögðu tillögu, sem fram hefir verið borin, nú þegar í nauðirnar rekur með að spara, að þá sé frestað eða fellt niður að prenta umræðupart Alþt. og með því sparaðar 40 þús. krónur. Þó með ýmsum útreikningi sé reynt að draga frá þessari upphæð, hlaupið upp í ríkisprentsmiðju og annað til þess að fá þær tölur og umbúðir, sem geri það líklegt, að hægt sé að koma því í lóg, sem sparast á þennan hátt, þá vita samt allir, þeir sem af alhug vilja fara inn á þá braut að spara þann kostnað, sem leiðir af prentun umræðuparts Alþt., að vitanlega er hægt að varðveita handritin á ódýrari hátt heldur en þann að vélrita þau og kosta til þess 8—10 þús. kr. Það er hægt að láta skrifara skila tveimur einstökum og geyma þau svo og varðveita sem heimild fyrir þá, sem vilja, annaðhvort í sagnfræðilegum tilgangi eða öðrum, kynna sér það, sem einstakir þm. hafa sagt, svo þeir menn eigi aðgang að umræðupartinum á þennan hátt. Kostnaður af þessu yrðu engar 8—10 þús. kr. — Hitt atriðið, að ríkisprentsmiðjan missti við þetta spón úr askinum sínum, kemur fram með því eina móti, að hún geti ekkert fengið í skarðið. En kannske það sé svo með hana, að henni sé ekki lífvænt án þess að ríkið stofni til útgjalda til þess að halda lífi í þessu fóstri stjórnarfl. Ég vil benda á, að þessi fyrirsláttur, um að sparnaðurinn af því að fella niður umræðupart Alþt. sé raunverulega enginn eða miklu minni en gert hefir verið ráð fyrir, er vísvitandi tilbúinn til þess að hnekkja framgangi málsins. Sannleikurinn er sá, að ef fara á að spara — og margir munu líta svo á, að þess sé full þörf —, þá sé hægt að bera hér niður. Það getur vel að því rekið, og það fyrr en varir, að harðhentur veruleikinn sýni þeim það, sem eru að gera hér lítið úr tilraunum til sparnaðar, að það sé ekki að ófyrirsynju eða ástæðulausu að reynt sé að draga úr útgjöldunum. Það mun því vera bezt að hafa vaðið fyrir neðan sig. Það er talað um, að þetta sé iðnaður og vinna í landinu, og það jafnvel af sömu mönnum, sem lagt hafa til að fella niður vegavinnu, sem er þó ekki síður vinna í landinu. En þeir kveinka sér ekki eins fyrir hönd þeirra manna, sem misstu þar atvinnu og lífsframfæri, og þeirra, sem handfjalla prentsvertuna og misstu að einhverju leyti atvinnu, ef lögð væri niður prentun á umr.-parti þingtíðindanna. — Ég vil út af sérstöku tilefni spyrja þá hv. 4. landsk. og hv. 9. landsk., hvort það sé rétt, sem ég hefi frétt — að vísu ekki af þeirra flokki, en frá kunnugum —, að þeir hefðu ekki á móti að samþ. að fella niður prentun á umr.partinum, ef Sjálfstfl. allur yrði með því. En þegar það kvisaðist, að Sjálfstfl. væri eitthvað skiptur í málinu, þá hafi verið afráðið að taka afstöðu móti því að fella prentunina niður. Ég vildi aðeins skjóta þessu fram, því það sýnir aðeins, að ekki stendur sérlega djúpt umhyggjan fyrir því, að menn eigi þess kost að lesa þingtíðindin, sem raunar fáir gera.
Mín afstaða mótast af því, að ég tel viðskipaástandið svo alvarlegt, að við séum neyddir til þess að spara einhversstaðar, og þá vil ég heldur byrja á þessu en öðru, sem er margfalt meira virði fyrir þjóðina í heild.
Annars vildi ég beina þeirri spurningu til hæstv. forseta, út af fregn, sem mér hefir borizt — það gerist nú mikið um lausafregnir —, hvort það er rétt, að hann ætli að úrskurða þál. frá atkvgr., vegna þess að ekki sé hægt að fresta l. með þál. Ef hæstv. forseti hefir ákveðið að úrskurða þál. frá, er þýðingarlaust að vera að halda áfram umr., ef enginn árangur fæst af þeim rökum, sem borin verða fram. Og ef engin von er um að spara prentunina, er a. m. k. bezt að spara tíma, sem fer í gagnslausar umr. Ég vildi því fastlega óska eftir því að hæstv. forseti vildi láta uppi álit sitt, svo tíma sé ekki lengur eytt í gagnslausar umr. — En ég ætla vitanlega ekki að láta uppi álit mitt á slíkum úrskurði, a. m. k. ekki fyrr en hann er falinn.