02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (4730)
112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Þar sem ég tel mér skylt að verja þessa till., sem ég bar fyrstur fram á þingi, enda þótt hæstv. stj. hafi tekið hana í fóstur, þá get ég ekki látið ómótmælt þessari skrifl. brtt., sem borin hefir verið fram, vegna þess að hún er byggð á misskilningi. Það var talað um, að þeir, sem nytu markaðsverðs á innanlandsmarkaði, fengju 25 aur. hærra fyrir hvert kg. af kjöti en árið áður, en aftur á móti þeir, sem notuðu útlenda markaðinn, fengju 10—12 aur. lægra en árið áður.
Þennan mismun á till. að reyna að jafna. Ég vona því, að hv. þing felli þessa brtt. eða að hv. flm. hennar taki hana aftur, þegar hann fær þessa skýringu á málinu.
Svo vil ég beina nokkrum orðum að hv. 9. landsk. Ég varð undrandi yfir því, hvað hann er viðkvæmur. Ég hélt ekki, að hann hefði svo hárfína vog til þess að vega heiður sinn á, að hann móðgaðist, þótt ég nefndi hann þingmann Bolvíkinga. Ég skal gefa skýringu á þessu. Þegar Vilmundur Jónsson afsalaði sér uppbótarþingsæti í Norður-Ísafjarðarsýslu, þá varð það til þess, að hv. núv. 9. landsk. komst á þing, þ.e.a.s. það var sama hvort heldur hann hefði verið í kjöri á landslista sósíalista eða það hefði komið fram, sem hann reiknaði með, að hann ætti meira fylgi í Bolungavík, en fylgið þar reyndist vera minna en sósíalistar gerðu ráð fyrir. Þess vegna var þeim kennt það, að V.J. féll í N.-Ísafjarðarsýslu, og þar af leiðandi hefir hv. 9. landsk. verið nefndur þm. Bolvíkinga, en það er síður en svo, að ég vilji segja honum það til lasts. Annars hefir oft og tíðum komið fyrir annað eins og þetta. Ég hefi t. d. stundum verið kallaður „móðurskipið“, og mér þykir skemmtilegt að heyra það af vörum hv. þm., svo að ég held, að hv. þm. þurfi ekki að taka sér þetta svona nærri. Annars tel ég það vel farið, ef hv. þm. hefir sópað svo vel frá sínum dyrum, að hvergi falli ryk á hans æru meira en í þessum ummælum mínum.