02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (4732)

112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt

Hannes Jónsson:

Ég veit ekki, hvort hv. 9. landsk. er með þessum samanburði á því, hvernig ég komst að í V.-Húnavatnssýslu og hvernig Jón Auðunn komst að í N.-Ísafjarðarsýslu að bera sósíalistum það á brýn, að þeim hafi verið lánuð atkv. Annars vil ég minna hv. 9. landsk., þennan æruverða klerk, á vísu, sem kveðin var um hann á framboðsfundi í Barðastrandarsýslu. Vísan er ágæt lýsing á manninum. — Ég sé að hv. þm. veigrar sér við að heyra hana, og skal ég því lofa honum að heyra hana utan þings á eftir.