04.04.1935
Sameinað þing: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í D-deild Alþingistíðinda. (4747)

124. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Sjálfstæðismenn hafa óskað eftir útvarpsumr. um það. hvort nú skuli fresta fundum Alþingis, og það er síður en svo, að ríkisstj. sé það móti skapi að fá tækifæri til að ræða það atriði í heyranda hljóði.

Alþingi 1934 var háð á óvenjulegum tíma vegna aukaþingsins 1933. Þessu þingi lauk rétt fyrir jólin. Tíminn til undirbúnings þessu þingi, sem nú situr, var því janúar og hálfur febrúarmánuður. því samkv. ákvæðum stjskr. ber að kalla Alþingi saman eigi síðar en 15. febrúar. Þessi undirbúningstími fyrir Alþingi, er nú situr, var allt of stuttur, því vandasöm og yfirgripsmikil mál, sem eru til meðferðar, þurfa að vera undirbúin milli þinga og þingmönnum og þjóðinni að gefast tækifæri til að rannsaka málin og ræða þau. Þannig var því háttað með löggjöfina um afurðasöluna, er sett var á síðasta þingi; hún hafði verið rædd áður í a. m. k. tvö ár.

Það þing, sem nú situr, hefir ýms mjög þýðingarmikil mál til meðferðar, er sannarlega þarfnast mikillar athugunar, og er full nauðsyn á, að þjóðin fái tækifæri til að kynnast þeim málum vandlega og ræða þau nú á milli þinghaldanna. — Ég nefni þá fyrst og fremst hinn mikla fyrirhugaða lagabálk um samvinnubyggðir og nýbýli. um útgerðarsamvinnufélög, frumvarp um erfðaábúð á þjóðjörðum, frumvarp til nýrra launalaga og ennfremur mál, sem er nú nýlega lokið við að undirbúa, og eru þar á meðal tryggingarmálin, fátækralöggjöfin, frumvarp um jarðakaup ríkisins o. fl. Öll þessi mál, sem hag þjóðarinnar varðar miklu, hvernig ráðið verður til lykta, gefst nú kostur á að ræða milli þinghaldanna, og tel ég það mikils virði.

Andstöðuflokkarnir deildu mjög á ríkisstj. bæði hér á Alþingi og annarsstaðar fyrir það, að þingið 1931 hefði verið háð þannig, að mál hefðu verið knúið fram án undirbúnings og í flýti — en þau mál höfðu að vísu verið rædd meðal þjóðarinnar lengi og rækilega undirbúin, svo sem afurðasalan. En nú deila andstöðuflokkarnir á ríkisstj. fyrir það, að hún vill gefa þingmönnum tækifæri til að athuga og ræða við þjóðina milli þinganna hin vandasömustu mál. er ég hefi nefnt hér áður — mál, sem ekki voru eins vel undirbúin og hin. — Nú er líka deilt á ríkisstj. fyrir það, að þingið hafi verið allt of hægfara og gætið í afgreiðslu mála, og sagt, að það hafi ekkert gert. Þetta er alrangt, því fyrst og fremst hefir Alþingi komið áleiðis ýmsum hinna stórmerku mála, er ég áður nefndi, og verður afgreiðslu þeirra haldið áfram þar sem frá er horfið nú. Vegna þess að Alþingi er frestað, en ekki slitið, er hvert verk þessa þings nothæft á næsta þingi. Auk þess hefir Alþingi fullafgreitt ýms mjög merk mál. — Ég nefndi þingsályktunartillögu um verðuppbætur á kjöti, vegna hins lága verðlags á erlendum markaði. — Ég hygg, að bændum þyki það nokkru skipta. — Ég get nefnt umbætur á löggjöfinni um hæstarétt. Lögin um landbúnaðarvexti munu bændur ekki heldur láta sig engu skipta eftir að heimildin, sem áður var til að greiða vaxtatillag úr ríkissjóði, féll niður í byrjun þessa árs. Lögin um skuldaskilasjóð vélbátaeigenda er og mjög þýðingarmikil löggjöf fyrir smábátaútveginn. Lög um sölu og flutning á kartöflum hafa nú og verið afgr. á þessu þingi, og hefir það vonandi talsverða þýðingu fyrir framleiðslu þessarar vörutegundar, sem er og þarf sannarlega að verða stærri atvinnugrein í landinu. Lögin um rannsóknarstofnun í þágu atvinnuveganna eru og ein allra merkasta löggjöf, sem Alþingi hefir afgr. seinni árin. — Ýms fleiri mál mætti og telja.

Öll þessi mál höfðu verið rækilega undirbúin og flestöll borin fram á fyrri þingum, og sum þeirra oft. Ég tel því rétt og hyggilegt, og held, að mikill hluti þjóðarinnar sé mér þar sammála, að minna undirbúin stórmál eins og launamálið, samvinnu- og nýbýlamálið, frumvarp um útgerðarsamvinnufélög, erfðaábúðarmálið ásamt öðrum frumvörpum um landbúnaðarmálin, fátækralöggjöfin og hinn stórfelldi lagabálkur um almannatryggingar eigi nú að leggja fyrir alþjóð, athugast og ræðast áður en tekin er lokaákvörðun um þau á næsta þingi. — Þetta eru hin almennu rök fyrir frestun Alþingis til haustsins, og væru þau raunverulega ein næg. En undir þessa þingsályktun renna þó enn önnur og alveg sérstök rök, og það er afgreiðsla fjárl. fyrir árið 1936 — í þeirri óvissu, sem allt er nú um utanríkisverzlun þjóðarinnar.

Afkoma ríkissjóðs byggist aðallega á utanríkisverzluninni, vegna þess að verulegs hluta af tekjum ríkisins er aflað með tollum. Jafnframt byggist afkoma atvinnuveganna og gjaldgeta þeirra á því, hversu framleiðslan selst erlendis.

Þegar fjárlög eru samin, verður því — ef þau eiga ekki að vera út í bláinn — að gera sér sem allra nákvæmasta grein fyrir inn- og útflutningnum fyrir það ár, sem fjárl. eiga að gilda. Fjárlögin fyrir árið 1935 eru miðuð við, að útflutningurinn verði svipaður og þó heldur minni en 1934, en þá var hann um 481/2 millj. samkv. bráðabirgðaskýrslum. Það var jafnframt miðað við það, að innflutningurinn yrði rúmlega 37 millj., svipað og var árið 1932. Af þeirri ástæðu valdi ríkisstj. jafnhliða þá leið að fá nýjar tekjuaflanir með beinum sköttum, hækka einstaka lúksustolla og auka nokkuð einkasölur, til þess að ekki þyrfti að skerða framlög til landbúnaðarins og verklegra framkvæmda.

Fjárlagafrumvarpið fyrir 1936 var samið í janúarmánuði á svipuðum grundvelli og fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1935, enda lá þá ekkert nýtt fyrir. En um það leyti, sem þingið kom saman, bárust hingað ýmsar slæmar fregnir viðvíkjandi utanríkisverzluninni. Sú hætta vofir yfir þjóðinni, að innflutningur á saltfiski til Ítalíu verði lækkaður stórlega, jafnvel niður í 1/5 af því, sem verið hefir, en Ítalía er eins og kunnugt er eitt af þremur helztu markaðslöndunum fyrir íslenzkan saltfisk. Ástandið í Portúgal hefir ekki heldur verið glæsilegt undanfarna daga.

Meðan svo mikil óvissa ríkir um markaðshorfur okkar Íslendinga, meðan enn er allt í óvissu um helztu markaðsvöruna er ómögulegt að segja um það, hve útflutningurinn verður mikill né innflutningurinn, sem vitanlega verður að miðast við útflutninginn. En við þetta verður afgreiðsla fjárl., eins og áður hefir verið bent á, fyrst og fremst að miðast.

Það er því um tvær leiðir að velja: 1) Að afgreiða fjárl. nú, þó allt sé í slíkri óvissu með utanríkisverzlunina sem rök hafa verið leidd að, og án þess að vita, hvernig rætist úr þeim samningum um utanríkisverzlunina, sem nú standa fyrir dyrum. 2) Hin leiðin er sú, að fresta þinginu, þar með afgreiðslu fjárl. og þeirra laga annara, er krefjast útgjalda úr ríkissjóði. Er þá meiri von til, að ríkisstj. hafi fengið nokkra vitneskju um það, hvernig viðskiptasamningarnir takast og hvernig sá grundvöllur verður, sem byggja verður á, þegar útgjöld eru ákveðin úr ríkissjóði fyrir árið 1936. Það þótti gætilegri leið og á allan hátt hyggilegri að velja einmitt þennan kostinn, og þess vegna hefir ríkisstj. gert það.

Ég vil ekki heldur láta hjá líða að benda á það, að ef svo illa tekst til, að útflutningur okkar lækkar verulega frá því, sem verið hefir, verður ekki hjá því komizt, að Alþingi geri margskonar ráðstafanir til að mæta því illa viðhorfi, sem við það skapast. Það gæti því vel farið svo, ef þinginu yrði ekki frestað nú en fjárl. og þau lög, sem fara fram á útgjöld úr ríkissjóði, afgreidd, að þá yrði ekki hjá því komizt að kalla saman aukaþing í haust. Það mundi kosta alveg sérstakan útgjaldaauka fyrir ríkissjóðinn og gæti vel farið svo, að nokkuð af þeim ákvörðunum, sem varið hefði verið peningum og tíma til að samþykkja nú, yrði þá einskis virði.

Það er óskandi, að til þess þurfi ekki að koma að gera neyðarráðstafanir á þinginu í haust. Ríkisstj. mun gera allt, sem í hennar valdi stendur, til þess að ná sem hagkvæmustum samningum um utanríkisverzlunina, og á þessum mínútum leggja 3 menn á stað til útlanda til þess að rýna að undirbúa samninga við Ítalíu. við vitum ekki, hvernig ferð þeirra muni takast; það er við mikla erfiðleika að etja. Það getur óneitanlega svo farið, að ekki verði hjá því komizt að færa fjárlögin niður úr þeim 14 millj., sem gert er ráð fyrir að útgjöldin verði árið 1935, en það er þrem millj. lægra en útgjöldin voru árið 1934, því þá voru þau 11 millj.

En hitt er fullvíst, að ríkisstj. mun ekki fyrr en í allra síðustu lög færa niður fjárframlög til landbúnaðarins og verklegra framkvæmda. En fyrir utanaðkomandi og óviðráðanlegum erfiðleikum um sölu afurðanna verður þó að beygja sig. En ef svo færi, að framkvæma þyrfti svona neyðarsparnað, þá verður það vitanlega óhjákvæmilegt að gera jafnframt meira og minna óvenjulegan niðurskurð á öðrum fjárlagaliðum.

Tel ég mig með þessu, er ég nú hefi sagt, hafa fært næg rök að því, að það sé hyggilegast og réttast að fresta fundum Alþingis þar til síðar á árinu, og vænti ég, að þáltill. mín þar um verði samþ.