04.04.1935
Sameinað þing: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (4759)
124. mál, frestun á fundum Alþingis
Forseti (JBald):
Það er venja, að forsetar aðvari ræðumenn, þegar ettir eru fáeinar mínútur af ræðutímanum. Hæstv. varaforseti fékk hv. þm. G.-K. aðvörunarseðil, þegar ræðutími hv. þm. var að verða búinn. Þótti mér hann taka því illa, þegar hann fékk þennan seðil, og er það undarlegt, þar sem þetta er gert við alla þm. og af hverjum forseta undir sömu kringumstæðum.