04.04.1935
Sameinað þing: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í D-deild Alþingistíðinda. (4789)

120. mál, skaði af ofviðri

Sigurður Einarsson:

Ég hafði kvatt mér hljóðs, þegar umr. var frestað, og það var einungis til þess að endurtaka það, sem ég áður hefi sagt, og undirstrika það, að það er engin önnur leið, sem ég sé færa til þess að verða að liði þeim héruðum og stöðum, sem hér þurfa nauðsynlegrar hjálpar við, en sú, að fallast á brtt. mínum.

Brtt. þær, sem fram eru komnar um að fella niður styrki til skóla, eins og t. d. gagnfræðaskólans í Reykjavík og Flensborgarskólans, eru þannig, að við jafnaðarmenn getum ekki fallizt á þær. — Hvenær sem harðnar í ári, þá er það gömul saga, að Sjálfstfl. ræðst á skólafræðsluna í landinu. Og hefi ég áður látið í ljós efa minn um, að það væri fullkomlega lögmætt að taka einstaka liði úr fjárl. og gera að sparnaðarliðum.

Ég verð að halda því fram, að fjvn. lagði sig svo mikið í það að athuga, hvernig mögulegt væri að mæta þessum töpum, að það voru sannarlega engin úrræði látin eftir óathuguð. En það fundust engin hæfileg úrræði, sem náðu samkomulagi allra. Ég held því, að hv. þm. geri bezt í því að sameinast um mínar brtt. og samþ. þær.