02.03.1935
Neðri deild: 18. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (480)
5. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Frv. þetta er nákvæmlega samhljóða lögum, sem afgr. voru frá síðasta Alþingi, og er því ekki um annað en framlengingu að ræða á ákvæðum, sem gilt hafa nokkur ár, um að framkvæmd vissrar löggjafar, sem hefir í fór með sér nokkurn kostnað fyrir ríkissjóð, verði frestað um sinn. Og með því að fjárhagur ríkisins er á þá lund, sem hv. þm. þekkja, þá leggur fjhn. óskipt til, að þetta frv. nái fram að ganga, að framlengt verði gildi þessara laga til ársloka 1936.