31.10.1935
Sameinað þing: 18. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í D-deild Alþingistíðinda. (4803)
139. mál, landhelgisgæsla
Jón Auðunn Jónsson [óyfirl.]:
Út af því, sem hv. 3. landsk. sagði, þá held ég, að það sé hrein og bein fávizka að halda því fram, að Óðinn sé orðið úrelt skip til landhelgisgæzlu, og að Þór sé það skipið, sem sé þýðingarmest fyrir landhelgisgæzluna. Ég held, að varla sé hægt að snúa hlutunum rækilegar við heldur en svona, og náttúrlega er gagnslaust að koma með slík rök sem þessi, því mönnum er of kunnugt um starfsemi þessara skipa, hvernig þau eru útbúin og hverju þau geta annað, til þess að menn láti glepjast af slíkum rangfærslum.
Annars er það ekki meiningin, eftir því sem frsm. fjvn. segir, að draga neitt úr björgunarstarfi og eftirliti við Vestmannaeyjar, sem ekki heldur má. Þvert á móti er gert ráð fyrir því, að það sé aukið með því að hafa þar betra skip. Og ég get ekki trúað því, að hv. þm. (PÞ) álíti, að Ægir sé lakara skip heldur en Þór og Óðinn.
Hv. frsm. segir, að Þór muni tiltölulega auðseldur. Ég býst við, að svo sé, því það þarf ekki mikið að breyta honum til þess að hann geti verið togari. En hv. frsm. verður að gæta að því, að á seinni tímum hefir verið horfið að því að hafa togarana stærri, svo ég býst við, að fáir myndu telja Þór æskilegan sem botnvörpuskip. Hinsvegar gæti ég hugsað mér hann sem ágætt síldveiðiskip og einnig til þess að flytja ísaðan fisk til Englands.
Kröfum Vestur-Ísfirðinga hefir aldrei verið fullnægt, aðeins hinni brýnustu þörf á vissum tímum árs. En nú í haust bregður svo við, að báturinn er tekinn frá gæzlunni, þegar mest á ríður, því öllum, sem nokkuð þekkja til togaraútgerðar, er vitanlegt, að ágangur togara í landhelgi er mestur fyrir Vesturlandi einmitt frá því í septembermánuði og fram í desembermánuð. vegna þess að þá er mikið af kola, sem gengur út af fjörðunum. Ég tel því algerlega ótímabært að selja skipin fyrr en búið er að koma sér fyrir með þá skipulagsbreyt., sem fyrirhuguð er. Að hafa aðeins eitt skip og notast við lélega báta til uppfyllingar tel ég alveg ófullnægjandi.