31.10.1935
Sameinað þing: 18. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í D-deild Alþingistíðinda. (4808)
139. mál, landhelgisgæsla
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Það hefir verið tekið fram, að till. um framtíðarskipulag landhelgisgæzlunnar liggi fyrir fjvn. Það er mikill ókostur, að þessar till. skuli ekki vera orðnar hv. þm. kunnar. Hér skiptir náttúrlega aðallega máli, hvernig hægt er að koma landhelgisgæzlunni þannig fyrir, að hún verði sem ódýrust ríkinu, hvernig hægt er að koma henni þannig fyrir, að hún komi að sem flestum notum, og í þriðja lagi, hvernig hægt er að samræma og sameina landhelgisgæzluna slysavarnastarfseminni, þannig að hvorugt verkefnið biði tjón af. Ef þessar nýju till. um framtíðarskipulag landhelgisgæzlunnar sýndu, að hægt væri að fá góðan árangur í öllum þessum atriðum, þá sýnist mér ekki skipta afskaplega miklu máli, hvort hægt er að selja skipin fyrir 200—300 þús. kr. meira eða minna. Sparnaðurinn af hinu nýja fyrirkomulagi væri ekki mikill, ef hann samsvaraði ekki vöxtum og fyrningu af þeirri upphæð. Og hvað slysavörnunum liður, þá væri ekki mikið unnið á því sviði, ef ekki stærri upphæð ríði baggamuninn. Hér er því um blábert aukaatriði að ræða, hvað skipin mundu seljast fyrir. Hv. þm. Borgf. má því ekki bregða sér við það, þó menn ræði um aðra hluti í þessu sambandi, sem mestu máli skipta, og eingöngu skipta máli. Málið hefir nefnilega fæðzt á afturfótunum hjá hv. n.; hún hefir borið það fram fyrir þingið á öfugum grundvelli. N. átti fyrst að sýna það og sanna, hvaða hagsbætur mundi leiða af þeim breyt. á fyrirkomulagi landhelgisgæzlunnar, sem stungið er upp á.
Ég skal játa, að mér finnst ekki skipta miklu máli, þó hæstv. stj. fengi leyfi til þess að dunda við að leita eftir tilboðum í skipin, ef hún hefir ekkert annað að gera. Ég sé ekki, að neinu sé stefnt í voða með því að fá henni það verkefni í hendur, því á sínum tíma hlýtur hitt að skera úr um, hvað gert verður, hvernig bezt verður fullnægt þeim þremur þáttum málsins, sem ég nefndi áðan. Það skiptir því litlu, hvað ofan á verður um þessa till.; hún er gagnslaus, en einnig meinlaus.