22.03.1935
Efri deild: 32. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (4819)

103. mál, drykkjumannahæli

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Ég skal fullkomlega taka undir með hv. flm. um það — og um það munu ekki vera skiptar skoðanir —, að það er allmikil þörf að koma upp svona hælum. Hitt er náttúrlega ósýnt og að miklu leyti órannsakað. hve mikið á fram að leggja í því skyni, á hvern hátt þessu verður fyrir komið og hver getan er eins og sakir standa til að leggja fram nauðsynlegt fé. Ég vil því mælast til þess, að umr. verði frestað og tíminn notaður til að athuga málið í allshn., áður en umr. er haldið áfram.