19.12.1935
Efri deild: 99. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í D-deild Alþingistíðinda. (4844)

202. mál, Menningarsjóður

Flm. (Jónas Jónsson) [óyfirl.]:

Ég viðurkenni, að það, sem hv. þm. Dal. sagði síðast, er rétt, að hjá þeim, sem hafa staðið að þessum sjóði, og jafnvel þeim, sem standa að honum nú, er, eins og hjá öllum mannanna börnum, ekki allt eins fullkomið og vera skyldi. Ég vil sérstaklega játa, að það er satt, að ekki hefir verið eins mikil festa í stjórn bókaútgáfunnar sem vænta mætti og ætlazt hefir verið til, enda þótt því sé hinsvegar ekki að neita, að sjóðurinn hefir gefið út margar góðar bækur, og er ein af þeim sérstaklega við hæfi sýslumannanna, nefnilega lögbókin nýja. (ÞÞ: Hún er sæmileg). Ég vil taka það fram, að núv. stj. menntamálaráðs telur rétt, ef til kæmi með löggjöf, að breyta stjórn sjóðsins þannig, að það væri fyrirbyggt, eftir því sem föng eru á, að ýmsar af þeim misfellum, sem brögð hafa verið að undanfarið, gætu komið fyrir framvegis. En ég vil þó benda hv. þm. Dal. á það, að það var t. d. varla hægt annað fyrir bókaútgáfudeild sjóðsins en að gera tilraun eins og þegar hann gaf út þýðingu á Tacitusi, gerða af Páli Sveinssyni menntaskólakennara. Stjórn sjóðsins freistaðist til þess að gefa út þetta merkilega sögurit, sem óbeinlínis snertir okkar eigin sögu, og sjálfsagt eru margir, sem eins og hv. þm. Dal. hafa lesið þessa bók að einhverju leyti á sínum yngri árum, sem eru því hlynntir, að slík úrvalsbók úr heimsbókmenntunum sé gefin út. En nú er reynslan sú, að þetta fellur ekki í smekk manna yfirleitt nú á dögum, og þessi ágæta bók í þessari ágætu þýðingu hefir ekki selzt. Þar með er fengin reynsla fyrir því, að bókaútgáfur verða að vera meira sniðnar við kröfur nútímans í þessum efnum.

Út af ásökunum hv. þm. Dal. í minn garð um eyðslusemi í þessu sambandi vil ég taka það fram, að við erum allir þannig gerðir, að við viljum spara á því, sem við teljum síður nauðsynlegt, til þess að geta varið fénu í það, sem við álitum nauðsynlegra, enda þótt það kunni að vera álitin eyðslusemi fljótt á litið. Ég vil einnig taka það fram í þessu sambandi, að við hv. þm. Dal. höfum verið sammála um þá sparnaðartill. hv. fjvn., sem fjallar um möguleikann fyrir fækkun barnakennara, og sú litla byrjun, sem gerð var í þessu efni, er áreiðanlega spor í áttina til algerðrar skipulagsbreyt. á þessu þýðingarmikla máli. En þó sparaðir séu peningar á því, sem sýnist ekki vera sérstaklega nauðsynlegt, og jafnvel illa skipulagt, eins og t. d. þegar einn fullkominn kennari er látinn kenna 7 börnum, eins og á sér sumstaðar stað, þá útilokar það alls ekki, að það geti verið fullkomin nauðsyn á því, að náttúra lands vors sé rannsökuð og að hér geti lifað rithöfundar og listamenn. Í sambandi við það, sem hv. þm. Dal. sagði í þessu efni, vil ég segja það, að ef hv. þm. Dal. hefði verið í stj. síðastl. vor, þegar okkar ágæti krónprins tók það ráð að fá sér eiginkonu, þá býst ég við, að eins hefði farið fyrir honum og núv. hæstv. stj., en hún leitaði til þessara listamanna okkar, sem farið hafa borg úr borg, ef til vill fram undir 20 ár eins og flökkumenn, en alltaf hugsað um sína iðju, — og þegar íslenzka þjóðin þarf að koma fram út á við undir slíkum kringumstæðum, þá getur hún ekki gert annað betra við 1000 kr. en að kaupa fagurt listaverk eftir frægan íslenzkan listamann; hún getur ekki sent saltfisk eða kjöt undir slíkum kringumstæðum, þó það væri kannske gagnleg gjöf. Síðan íslenzka þjóðin varð sjálfstæð 1918. hefir hún oft þurft að leita til listamanna sinna, þegar hún hefir orðið að koma fram sem sjálfstæð þjóð út á við undir svipuðum kringumstæðum og ég nefndi, svo að það verður að teljast eðlilegt og sjálfsagt, að listamenn vorir séu a. m. k. styrktir að einhverju leyti með því að ríkið kaupi af þeim verk þeirra, þegar það þarf á þeim að halda; minna má nú alls ekki vera. — Ég nefni þetta af því að þjóðin hefði óneitanlega orðið að fara einhverja aðra leið, þegar hún hefir þurft að sýna sóma sinn út á við með gjöfum undir einhverjum kringumstæðum, ef hún hefði ekki getað leitað til listamanna sinna, bæði sjálfri sér og þeim ekki síður til gagns. Í þessu sambandi má minna á það, að í sumar, þegar við í þm. fórum til Svíþjóðar á afmælishátíð sænska þingsins, þá höfðum við með okkur prýðilegt málverk af Þingvöllum eftir Ásgrím Jónsson, og færðum við sænska þinginu þetta málverk að gjöf frá Alþingi Íslendinga. Norska sendinefndin kom einnig með málverk af sænskri söguhetju, sem mikið kemur við sögu Noregs. Danir gáfu postulínsvasa, eins og þeir gáfu okkur, og Finnar gáfu málverk af þinghúsi sínu. Við þetta tækifæri gátum við staðið jafnfætis frændþjóðum okkar í þessum efnum, af því að við áttum mann eins og Ásgrím Jónsson. Þegar á allt þetta er litið, álít ég, að samþ. beri þessa till.