25.03.1935
Sameinað þing: 6. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í D-deild Alþingistíðinda. (4856)

21. mál, ríkisrekstur atvinnuvega og ríkiseignarjarða

Forseti (JBald):

Út af ummælum hv. 6. þm. Reykv. vil ég geta þess, að form. Sjálfstfl. hefir farið fram á, að um þetta mál yrðu útvarpsumræður. Alþfl. hafði ekkert við þetta að athuga, og það var síðan látið berast til Framsfl. Sökum þess að útvarpsumr. þurfa að taka nokkuð langan tíma samkv. þingsköpum, þá hefi ég orðið að fresta því að taka þetta mál á dagskrá, til þess að það fengist hentugur tími fyrir málið, sem minnst kæmi í bága við afgreiðslu þeirra mála, sem fyrir liggja.

Af þeim ástæðum, sem nú voru nefndar, en ekki af því, að það hafi verið ásetningur minn að láta þetta mál ekki komast til umr., stafar það að málið hefir ekki enn verið tekið á dagskrá. Vísa ég því þess vegna á bug, að það sé ótvírætt brot á þingvenjum að hafa ekki tekið málið fyrir. Það er á valdi forseta að ákveða, hvenær mál skuli koma fyrir til umr., enda mun ég taka þetta mál fyrir, þegar ég álít, að útvarpsumr. geti farið fram.