25.03.1935
Sameinað þing: 6. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í D-deild Alþingistíðinda. (4857)
21. mál, ríkisrekstur atvinnuvega og ríkiseignarjarða
Sigurður Kristjánsson:
Mér þykir vitanlega gott að heyra, að hæstv. forseti ætlar að taka málið fyrir, en ég vil þó benda á, að það er mjög langt síðan form. Sjálfstfl. fór fram á það, að þessar útvarpsumr. yrðu látnar fara fram. Líka vil ég taka það fram, að þótt hæstv. forseti vilji ekki kannast við, að þessi dráttur sé brot á þingvenjum, þá held ég, að það stafi af því, að hann hafi ekki athugað þetta nógu vel. Þetta er mál, sem ekki hefir fengið afgreiðslu á næsta þingi á undan og var látið daga uppi, þrátt fyrir það, þótt fjöldi mála, sem síðar komu fram, hafi verið afgr. Þetta vil ég segja, að sé óvenjulegt.
Samt mun ég sætta mig við það, að hæstv. forseti láti málið fá afgreiðslu á þessu þingi, og vil ég því spyrja hann, hvort hans ummæli beri að skilja svo, að hann ætli að gera ráðstafanir til þess, að málið fái afgreiðslu áður en þingfrestun verður. Ef svo er, þá er ekkert út á það að setja héðan af, en annars verður það að teljast mjög óviðeigandi.