01.04.1935
Sameinað þing: 7. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í D-deild Alþingistíðinda. (4861)
21. mál, ríkisrekstur atvinnuvega og ríkiseignarjarða
Emil Jónsson:
Sjálfstfl. hefir óskað eftir því, að útvarpað yrði umr. þeim, sem fram fara um þáltill. þá, sem hér liggur fyrir, um þjóðaratkvæði um ríkisrekstur atvinnuvega og ríkiseign jarða, sem hv. 6. þm. Reykv. hefir borið fram. Um það er út af fyrir sig ekki nema gott eitt að segja, að umr. er útvarpað, og væri ekki nema gott og gagnlegt og að vissu leyti lærdómsríkt, að útvarpað væri umr. um fleiri mál. Ég er þess fullviss, að umr. mundu oft og tíðum fá annan svip og fara öðruvísi fram en þær nú fara, ef svo væri. Þm. hefðu þá betur á tilfinningunni en þeir nú hafa, að þeir eru fyrst og fremst og eiga að vera „þjóðnýttir“ menn í þess orðs eiginlegu merkingu, kosnir til starfans með þjóðaratkvæði, og til þess að sjá um fyrst og fremst, að ríkisreksturinn, líka í þess orðs eiginlegu merkingu, fari sem allra bezt úr hendi. Til þess hefir þjóðin gefið þeim umboð sitt, en ég verð því miður að játa það, þó að ég hafi ekki langa þingreynslu að baki, að mér virðast ýmsir hv. þm. oft og einatt furðu gleymnir á þetta.
Þáltill. sú, sem hér liggur fyrir, fer fram á það, að skora á ríkisstj. að láta fram fara þjóðaratkvgr. um eftirfarandi spurningar:
1. Viljið þér, að með nýrri löggjöf sé unnið að þeirri breytingu á þjóðskipulagi Íslendinga, að ríkisrekstur komi í stað einkaframtaks í atvinnumálum?
2. Viljið þér, að stefnt sé að því, að allar jarðeignir á landinu hverfi úr sjálfsábúð og verði ríkiseign?
Till. er svo rökstudd með því, eins og það er orðað í grg., að: „Það er vitað, að kjósendur voru ekki um það spurðir sérstaklega fyrir síðustu kosningar, hvort þeir aðhylltust ríkisrekstur á atvinnuvegum þjóðarinn, og ríkiseign á bújörðum. Þeir hafa því ekki gefið þingmönnum neitt umboð til þess að breytt þjóðskipulaginu með lögum í þessa átt. Tel Ég því segir hv. flm.) óleyfilegt og óverjandi að gera þetta að þjóðinni forspurðri.“
Þetta eru höfuðrökin fyrir till., og svo hitt, að nú sé með ýmsum frv. og lagasmíði mjög stefnt í þessa átt, og það í algerðu heimildarleysi — að þjóðinni forspurðri.
Við skulum nú athuga, hvað rétt er í þessu máli gagnvart Alþfl. og hans kjósendum, því þeir menn, sem kosið hafa okkur alþýðuflokksþm. og gefið okkur umboð sitt, eiga fyrst og fremst heimtingu á, að við stöndum þeim reikningsskil ráðsmennsku okkar, og þjóðinni í heild auðvitað líka. — Spurningin, sem við eigum að svara, verður þá að orðast eitthvað á þessa leið:
„Höfum við Alþýðuflokksmenn farið lengra inn á ríkisrekstrarbrautina en ástæða var til að ætla eftir því, sem við sögðum kjósendum okkar og allri þjóðinni frá fyrir kosningarnar síðustu? Höfum við gengið svo langt í þessu að ástæða sé til að bera það undir þjóðina að nýju, með allsherjaratkvgr., hvort nema eigi staðar á þessari braut eða jafnvel snúa aftur?“
Eitthvað svipað þessu hljóta þær spurningar að hljóða, sem við verðum að leggja fyrir okkur áður en við greiðum atkv. um þessa till. Og ég skal nú leitast við að svara þeim.
Allir flokkarnir hafa einhverja stefnuskrá eða starfsskrá, þar sem afstaðan til hinna veigamestu þjóðmála er meira og minna skýrt mörkuð fyrir hvern flokk. Um þessar stefnuskrár flokkanna snúast svo allar kosningar, jafnt síðustu alþingiskosningar eins og aðrar kosningar. Málið, sem hér er um að ræða, veltur því á því fyrst og fremst, hvort í þessum stefnuskrám flokkanna hefir verið mörkuð afstaðan til ríkisrekstrar og ríkiseignar á jörðum. Og mun ég nú athuga það að því er Alþfl. snertir. Sá flokkur hefir aldrei farið í neinar grafgötur með stefnuskrá sína, hvorki í þessu máli né öðru. Stefnuskráin liggur fyrir prentuð, og hefir verið það lengi. Um þetta atriði segir svo í henni, með leyfi hæstv. forseta:
„Stefnt sé að því að gera allar jarðeignir í landinu að opinberri eign.
Sett verði í lög ákvæði um ábúð á öllum jörðum í landinu, þar sem leiguliða sé tryggð lífstíðar- og erfðaábúð. Erfðaréttur þessi nær þó aðeins til barna og fósturbarna og sé óframseljanlegur.
Að framleiðsla landbúnaðarafurða sé skipulögð með það fyrir augum, að framleiðslan lúti að því að fullnægja sem bezt notkunarþörfum innanlands á öllum vörutegundum, sem íslenzkur landbúnaður getur framleitt. Í þessu skyni sé fjölgað sem mest framleiðsluvörum og þær gerðar svo fullkomnar sem unnt er.
Stofnuð verði samyrkjubú eða þorp í sveitum, þar sem skilyrði eru góð til ræktunar og afurðasölu. Skal ríkið ávallt eiga það land, er þau eru reist á, og taka land eignarnámi, ef með þarf, í þessu skyni. Þar, sem stórar jarðir með miklum möguleikum eru nú einbýlisjarðir, skal styðja menn til fleirbýlis eða til þess, að upp risi félagsbú, sem framfleyti fleiri en einni fjölskyldu.
Ríkið komi á fót vísindalegri búfræðikennslu og rannsóknarstofu í sambandi við háskólann. Einnig komi ríkið upp tilrauna- og fyrirmyndarbúum víðsvegar um landið. Í námunda við kaupstaði, og þar sem skilyrði eru góð, sé komið á fót búum, er rekin séu með stóryrkjusniði.“
Ennfremur segir í grg., sem prentuð er með stefnuskrá Alþfl. í landbúnaðarmálum:
„Það er höfuðskilyrði fyrir því, að landbúnaður geti orðið þjóð vorri til varanlegrar blessunar, að ríkið eignist allar jarðir á landinu, og að það takist sem fyrst. Það eitt getur tryggt bændum, að afrakstur jarðanna lendi hjá þeim sjálfum, og mun fyrirbyggja óeðlilega verðhækkun.
En meðan það fyrirkomulag ríkir, sem nú er, verður komandi kynslóð ávallt að kaupa af þeirri, sem er að líða, og við það skapast of oft skuldir, sem síðan hvíla á bændastéttinni eins og mara, hlaðast á jarðirnar, gera þær loks óbyggilegar vegna afborgana og vaxtaþunga, draga úr umbótamætti bændanna og lama allt framkvæmdarþol þeirra, til stórhnekkis fyrir þjóðarheildina. Ríkiseign á jörðum mun ennfremur algerlega eyða þeim möguleika, að hægt sé að hlaða jarðirnar veðskuldum, sem ýmist stafa af því, að þær hafa verið yfirbyggðar, eða að eigendurnir hafa tekið lán til ýmsra sinna þarfa, sem jafnvel geta verið búrekstri algerlega óviðkomandi. En þetta hvorttveggja getur gert jarðirnar óhæfar til að reka á þeim búskap á heilbrigðum grundvelli.
Styrkur sá, er ríkið veitir nú til jarðræktar, verður oft til þess að hækka jarðirnar í verði við næstu sölu. Sá ókostur leiðir af því, að jarðirnar eru eign einstaklinga, en mun einnig hverfa með öllu, ef þær verða eign ríkisins. Á meðan það fyrirkomulag ríkir, sem nú er, ætti aldrei að veita ríkisstyrk til jarðabóta án þess, að um leið sé fyrirbyggt, að hann geti hækkað jarðirnar í verði, nema með því móti, að verðhækkun sú, er af styrknum leiddi, rynni öll í ríkissjóð; gæti það fremur leitt til þess, að eigendum jarðanna veittist léttara að sjá af eignarrétti sínum til ríkisins.“
Þá segir ennfremur í hinni almennu stefnuskrá Alþfl.:
„Alþýðuflokkurinn vinnur að því að koma á nýju þjóðfélagsskipulagi, þar sem:
Öll framleiðslutæki séu þjóðareign og framleiðslan rekin af hinu opinbera af vísindalegri hugsýni með þarfir þjóðarinnar allrar fyrir augum.
Afurðum framleiðslunnar sé varið til þess að tryggja hverjum einstaklingi, sem leggur af mörkum svo mikið andlegt eða líkamlegt starf, sem geta og góð heilbrigði leyfir, svo og þeim, sem getur starfað fullnæging allra gagnlegra lífsþarfa, andlegra og líkamlegra, sem þjóðfélagið ræður yfir.“
„Ríkið hafi á hendi verzlun með aðfluttar og útfluttar vörur, svo sem kornvörur, sykur, steinolíu, kol, lyf og tóbak, saltfisk, síld, kjöt, ull o. s. frv., og hafi einkasölu á þessum vörum. Ríkið hafi á hendi rekstur járnbrauta, síma, pósts, flutningaskipa, bankarekstur og tryggingar.
Ríkið taki að sér rekstur framleiðslutækja, svo sem námurekstur, fossastórvirkjun. stóriðnað og stórskipaútgerð til fiskveiða og hvalveiða (ef teknar verða upp aftur).
Þar sem ríkisrekstri er komið á að nokkru eða öllu leyti, skulu verkamenn eða samtakastjórnir þeirra með kjörnum fulltrúum hafa þátttöku í stjórn fyrirtækjanna og eftirlit með þeim.
Ríkið styðji samvinnu- og sameignarfyrirtæki í viðskiptum og framleiðslu með hentugri löggjöf og fjárveitingum til fræðslu um þau mál.“
„Meðan stórskipaútgerð til fiskveiða er ekki þjóðnýtt, skal opinbert eftirlit haft með útgerðinni og sölu sjávarafurðanna, og fiskimönnum heimilað að láta kjörna fulltrúa af sinni hálfu taka þátt í því eftirliti. Eftirlit skal aukið með útbúnaði skipa og báta og aðbúð sjómanna á skipum háð eftirliti fulltrúa, er þeir skipa til þess.“ —
Ég fæ nú ekki betur séð en að með þessum stefnuskráratriðum sé mörkuð afstaða Alþfl. í málinu svo skýrt sem verða má. Stefnuskráin er opinbert plagg og hefir verið það lengi. Hún var a. m. k. orðin öllum landslýð kunn löngu fyrir síðustu kosningar, og það var fjögra ára áætlun flokksins líka, sem hv. þm. vitnaði í. Að Alþfl. hafi þess vegna á nokkurn þátt farið á bak við sína kjósendur, eða þjóðina í heild, er því svo mikil fjarstæða, að um slíkt þarf ekki að ræða. Að fara að bera þetta undir atkv. þjóðarinnar væri því alveg sama og venjulegar kosningar, því að um þetta hefir nefnilega verið kosið við allar undanfarandi kosningar.
Það er að vísu rétt, að afstaða hinna flokkanna í þessu máli er ekki jafnskýrt mörkuð og stefna Alþfl. En þó ber þess að gæta, að við síðustu kosningar var almennt gengið út frá því sem sjálfsögðu af öllum frjálslyndum mönnum í landinu, að ef Framsfl. og Alþfl. yrðu þess megnugir að taka sameiginlega við völdum, þá myndu þeir gera það og þá ætti að talast samvinna með þeim um þessi mál. En það hlaut þó öllum að vera ljóst, að sú samvinna gæti ekki tekizt nema löggjöfin og stjórnarframkvæmdirnar að einhverju leyti bæru keim af stefnu okkar Alþýðuflokksmanna, bæði í þessu máli og öðrum. En það hlýtur aftur að þýða það, að mönnum hefir verið það fullljóst, að að einhverju leyti a. m. k. yrði horfið inn á þessar margumtöluðu brautir ríkisrekstrarins, og þess vegna ber þar aftur að sama brunni, að nýtt þjóðaratkvæði um þetta atriði þýðir ekkert annað, en nýjar kosningar fyrir þessa flokka. Nýjar kosningar er út af fyrir sig ekkert að segja um nema gott eitt, því að það er ekki nema sjálfsögð lýðræðiskrafa, að þær fari fram sem oftast, en að hafa kosningar um þetta atriði eitt er alger óþarfi, því að um það hefir verið kosið fyrir tæpu ári síðan, eins og ég nú hefi sýnt fram á.
Í grg. fyrir þingsályktuninn stendur:
„Á þessu þingi (og er þar átt við þingið 1934) hefir stjórnin ýmist sjálf lagt fyrir eða látið stuðningsmenn sína bera fram mörg lagafrv. er stefna að því mjög ákveðið, að opinber rekstur komi í stað einkaframtaks í verzlun, iðnaði, útgerð og landbúnaði.“ — Skal nú gerð nokkur grein fyrir því, hversu langt hefir verið farið út á þessa braut og hver hætta muni geta hlotizt af fyrir land og lýð. Skal ég hér reyna að geta þeirra, frumvarpa, sem fram komu á síðasta þingi og fóru í þessa átt. Þau eru ekki fleiri en það, að ég ætla, að mér takist á tiltölulega stuttum tíma að geta þeirra flestra.
Af einkasölufrv., sem fram voru borin, voru þessi helzt:
1. Áburðareinkasala, sem þó hefir verið í framkvæmd sem nokkurskonar einkasölu síðan 1931 og reynzt ágætlega. Breyting er þetta því engin önnur en sú, að lögfest hefir verið það skipulag á þessari verzlun, sem reynt hefir verið og framkvæmt undanfarin ár og reynzt vel.
2. Einkasala á eldspýtum og vindlingapappír. Þetta er mjög skyld verzlun tóbakseinkasölunni og er sett í samband við hana, án aukakostnaðar fyrir ríkissjóðinn, en með þó nokkrum verzlunarhagnaði fyrir hann. Breytingin, sem þessi einkasala veldur, svo fremi að hægt er að tala um nokkra breyt., er sú, að verzlunarhagnaðurinn af þessari vöru flyzt frá nokkrum einstaklingum í ríkissjóðinn.
3. Einkasala á bifreiðum og rafmagnsáhöldum. Þetta eru sennilega þau einkasölulög, sem sjálfstæðismönnum hefir sviðið sárast, og þá sérstaklega þeim mönnum, sem verzlað hafa með þessa hluti, og það er eðlilegt, því að það er almennt mál manna, að þeir, sem verzlað hafa áður með þessa hluti, hafi haft af þeirri verzlun allmikinn ágóða.
Við þessa einkasölu er unnið tvennt. Það er hægt að fækka mjög mikið þeim tegundum, sem inn eru fluttar, þegar allur innflutningurinn er á einni hendi, og af því er geysilegur þjóðarsparnaður, því að varahlutalagerar verða vitaskuld þeim mun ódýrari, eftir því sem tegundirnar eru færri. Og svo hitt, að hagnaðurinn af þessari verzlun rennur nú í ríkissjóð, í staðinn fyrir að áður lenti hann hjá nokkrum fáum stórinnflytjendum.
Ég veit ekki, á hvoru þessu atriði þjóðin græðir meira, hinum beina hagnaði við söluna eða hinum óbeina við takmörkun og val tegund. anna. — Það eitt er víst, að hún græðir á báðum mikið.
4. eru lög um einkaheimild fyrir ríkisstjórnina til að flytja inn og búa til hárvötn, ilmvötn, bökunardropa og pressuger o. fl.
Þau hafa tvöfaldan tilgang. Í fyrsta lagi að hindra það, að við tilbúning þessar, vörutegunda og notkun séu skapaðir möguleikar til heimabruggs, sem óneitanlega hefir borið mjög á og berjast ber á móti með öllum mögulegum ráðum. Og í öðru lagi fellur þessi framleiðslustarfsemi mjög saman við ýmsa starfsemi áfengisverzlunarinnar og getur gefið henni allmiklar tekjur.
Fleiri einkasölulög voru nú ekki samþ. á síðasta þingi. Þó er skylt að geta þess, að tvö frv. önnur komu fram, en náðu ekki samþykki þá, sem ég skal einnig geta, því að þau hafa bæði komið aftur á þessu þingi, og er allt útlit fyrir, að þau nái bæði fram að ganga lög annað er víst um það bil orðið að lögum).
Það er í fyrsta lagi einkasala á trjáplöntum. En það hafði þá sérstöðu að vera borið fram m. a. af sjálfstæðism., hv. þm. A.-Húnv., sem var meðflm. að frv. (síðasti ræðumaður glymdi því að minnast á þetta af skiljanlegum ástæðum). En það frv. miðar að því að tryggja það fyrst og fremst, að heilbrigðar plöntur flytjist til landsins, en á því mun hafa borið, að misjafnlega góðar plöntur hafi verið fluttar inn og ennfremur er á þennan hátt hægt að tryggja að einvörðungu verði fluttar inn þær tegundir, sem hafa þroskaskilyrði hér —, en á því hefir einnig borið allmikið, að fluttar hafa verið inn trjáplöntur þeirra tegunda, sem erfitt eða jafnvel ómögulegt er að rækta hér. Ágóðinn af þessari einkasölu á að renna til skógræktarinnar í landinu, og eru víst allir sammála um, að hana beri að styrkja.
Þá er annað frv., sem einnig dagaði uppi á síðasta þingi — um ríkisútgáfu námsbóka —, en nær þá vonandi fram að ganga. Meiningin með því frv. var eingöngu sú, að útvega ódýrari kennslubækur. Fyrir síðasta þingi lá skýrsla frá fræðslumálastjóra um það, að með þessu fyrirkomulagi og án verulegra fjárútláta úr ríkissjóði mætti lækka útgáfukostnaðinn og þá um leið sölukostnaðinn, þar sem bækurnar átti að selja með kostnaðarverði, um allt að helming frá því, sem nú er. Yrði það allverulegur og vel þeginn sparnaður fyrir fátækar barnafjölskyldur.
Fleiri voru einkasölufrv. ekki, og get ég ekki séð, að þjóðinni stafi nein yfirvofandi hætta af þessu. Ég hygg þvert á móti, að hér sé áreiðanleg, stefnt í rétta átt, bæði um tekjuöflun fyrir ríkissjóðinn, sem stefnt er að með sumum einkasölunum, og til hagsbóta fyrir þjóðarheildina að einhverju verulegu leyti í þeim öllum. — Auk þessara frv. komu fram nokkur önnur um ríkisrekstur og um íhlutun ríkisvaldsins á ýmsum sviðum. Að því er snertir sjávarútveginn voru þessi helzt:
Lög um kaup á síldarverksmiðjunni á Raufarhöfn, sem eru í beinu framhaldi af þeirri stefnu, sem hafin hefir verið fyrir nokkru um síldarverksmiðjur ríkisins og reynzt hefir mætavel, og meira að segja hefir verið færð lengst út af Magnúsi Guðmundssyni, þegar hann tók leigunámi síldarverksmiðjuna á Sólbakka.
Lög um síldarverksmiðjur ríkisins, sem banna einstaklingum að auka verksmiðjur sínar eða byggja nýjar án leyfis stj., og loks lög um síldarútvegsnefnd og lög um fiskimálanefnd, sem eiga að hafa hönd í bagga um nýjar verkunaraðferðir og nýja markaði, sölu- og veiðileyfi o. fl.
Inn á þessar takmörkunarbrautir hafði verið gengið áður með aðstoð ríkisvaldsins, þar sem Ólafur Thors gaf út fyrstu bráðabirgðalögin um þetta efni, þegar hann var ráðherra, sællar minningar.
Um landbúnaðinn er það að segja, að auk kjötsölu- og mjólkurlaganna, sem fyrst og fremst beinast í þá átt að aðstoða framleiðendur sjálfa til að skipuleggja sölu afurða sinna á innlendum markaði, hafa ekki verið samþ. nein lög á síðasta þingi, sem fara í þá átt, að ríkið taki að sér rekstur né eign nokkurra jarða né neinn ríkisrekstur landbúnaðinum viðkomandi, umfram það, sem verið hefir. Að vísu kom fram frv. um afnám sölu þjóðjarða og kirkjujarða, sem ekki náði fram að ganga, en það er langur vegur frá því, er ríkið hættir að selja þær jarðir, sem það hefir eignarhald á, og yfir í það, að kaupa allar jarðir á landinu.
Ég sé ekki ástæðu til að ræða hér um ríkisútvarpið, ferðamannaskrifstofuna eða líftryggingarnar. Þessi tvö síðari mál voru til umr. á síðasta Alþingi, en voru ekki samþ. þá, en verða væntanlega tekin upp aftur til afgreiðslu. En hv. þm. virtist telja það svo sjálfsagðan hlut, að ríkið reki útvarpið, að hann fann ekki ástæðu til að hreyfa þar neinum mótmælum.
Nú vil ég spyrja hv. þdm. og aðra, sem mál mitt heyra, hvort þeir telji, að svo langt sé gengið hér inn á ríkisrekstrarbrautina, að hag þjóðarinnar sé beinlínis stefnt í voða. — Ég veit, að þeir, sem sanngjarnlega líta á það mál, geta ekki svarað þeirri spurningu öðruvísi en neitandi. Og ég skal lýsa því yfir sem minni skoðun, að ég álít frekar of skammt gengið inn á þessa braut heldur en of langt, og get þess vegna miklu frekar ásakað mig og þá ráðandi þingflokka að hafa farið allt of linlega í þessi mál heldur en of djarflega. Því að það er okkar skoðun og sannfæring, að þetta sé rétt stefna, en ekki röng. Það er að vísu til einn flokkur manna í þessu landi, sem skaðast á þessari stefnu, og frá hans sjónarmiði er náttúrlega of langt farið, og það eru stórkaupmenn og stórframleiðendur, sem hafa hagnazt á þeirri verzlun og þeirri framleiðslu, sem ríkið hefir nú tekið í sínar hendur. En það er svo fámennur hópur manna, að hans hagsmunir verða hiklaust að víkja fyrir hag þjóðarheildarinnar, þó að þá kunni að taka það sárt í bili. Og þó að allur Sjálfstfl. verði settur í hreyfingu til að reyna að bjarga því, sem bjargað verður fyrir þessa herra, er það ekki arðvænleg stefna fyrir flokkinn, og ég ræð honum frá henni.
Ástandið í heiminum er líka þannig nú, að þjóðirnar komast — nauðugar, viljugar — inn á einhverjar þessar leiðir, næstum óviðráðanlega, og það er einkennilegt tímanna tákn, að Ólafur Thors komst ekki hjá því í sinni stuttu ráðherratíð að setja bráðabirgðalög um takmörkun á útflutningi saltfisks, og að Magnús Guðmundsson lét það verða eitt af sínum síðustu ráðherraverkum í fyrra að setja bráðabirgðalög, sem heimiluðu ríkisstj. að taka leigunámi síldarverksmiðju — með eða án samþykkis eigandans, eins og það er orðað í lögunum. Þetta er talandi tákn þess, hversu kringumstæðurnar og erfitt viðskiptaástand í heiminum getur svínbeygt jafnvel forhertustu sjálfstæðismenn til að ganga inn á þær brautir, sem þeir sjálfir fordæma aðra fyrir að ganga inn á. Því þó að þeir væru sjálfstæðismenn og vildu vera sínum principum trúir, voru þeir þó fyrst og fremst ráðherrar og urðu að sjá hag þjóðarinnar borgið, jafnvel þó að þeir yrðu að brjóta odd af oflæti sínu á þennan hátt, enda létu þeir þá þjóðarheildina ráða meiru en flokksprincipin — og það ættu þeir að gera oftar. Ég segi þeim þetta því til lofs, en ekki til lasts.
Allar þjóðir með auðvaldsskipulagi eru nú að kikna undir þessu þjóðskipulagi. Allar reyna þær að finna einhver ný ráð og nýjar leiðir út úr ógöngunum. Flest þau ráð, sem fundin hafa verið — eða reynt hefir verið að framkvæma —, fara meira eða minna inn á þær brautir, sem hv. 6. þm. Reykv. hefir verið að fordæma: að ríkið hafi meiri eða minni afskipti af verzlunarrekstrinum. Hið óskoraða einstaklingsframtak, sem var dáð og lofað fyrir aðeins nokkrum áratugum, eða bara fyrir nokkrum árum, er alstaðar að verða úrelt hugtak. Dæmin um það þarf ekki að sækja til Sovjet-Rússlands, eða annara, sem aðhyllast kenningar sósíalismans, heldur nægir bara að vitna í hið rammasta auðvaldsríki, sem til er í heiminum, Bandaríkin í N.-Ameríku, þar sem ríkisvaldið hefir tekið svo stranglega í taumana, að það ekki aðeins setur takmörk á vinnutíma manna í einkaverksmiðjum, heldur fyrirskipar líka stórfelldar kauphækkanir í fyrirtækjum einstaklinga, og þetta leyfa þeir sér að gera þar án þjóðaratkvæðagreiðslu.
Nei, sannleikurinn er sá, að skipulagið — auðvaldsskipulagið — með sínu skefjalausa einstaklingsframtaki er að syngja sitt síðasta vers Það er mönnum yfirleitt ljóst, hvort sem þeir vilja viðurkenna það eða ekki. Gamli tíminn er að telja út og annar nýr að fæðast, en sú fæðing er erfið, eins og allar fæðingar. Hversu erfið hún verður, fer mjög eftir því, hvernig menn taka henni og hvaða aðbúð hið nýja skipulag eða skipulagsbreyting fær, — hvort þjóðin tekur henni með samúð og velvilja, eða hvort pólitískum og öðrum spekúlöntum tekst að villa henni enn sýn nokkra stund og skapa óeðlilega mótstöðu á móti hinum sjálfsögðu breytingum. í þeirri fánýtu von, að þeim takist enn um stund að hagnast á vesaldóminum.
Ég þykist nú hafa sýnt fram á með nokkrum rökum:
1. Að Alþfl. hefir ekki farið á bak við sína kjósendur eða þjóðina í heild, heldur þvert á móti undirstrikað mjög greinilega afstöðu sína til þessa máls.
2. Að Alþingi hefir yfirleitt farið mjög skammt á þeirri braut, sem þáltill. virðist átelja, og því alls ekki gefið tilefni til þessarar þjóðaratkvgr Ég mun því ekki geta fylgt henni.